Dagdraumar í leðurbuxum - ristruflanir í stjórnmálum

Miðaldra karlar í stjórnmálum glíma við tvíþættan vanda. Æskuþokkinn er farinn en virðingin sem fylgir opinberum embættum skilar sér ekki sökum þess hve pólitíkin er alræmd nú um stundir.

Tvö dæmi úr liðinni viku: fjármálaráðherra er sakaður um geðvonsku og forsætisráðherra um geðveiki. Vinstribloggherinn beinir spjótum sínum að ríkisstjórninni en dregur öll stjórnmál niður í svaðið.

Dagur Bergþóruson Eggertsson borgarstjóri skrifar sig í leðurbuxur með tísti á Júróvisjónkveldi. Borgarstjóri mætir kynþokkafullur og ljósmyndavænn á þriðjudag í vinnuna og slær nokkrar pólitískar keilur.

Það er á huldu hvort leður sé redding stjórnmálamanna í lágu rykti. Nýjar rannsóknir á sviði mannlegrar reisnar vísa í aðra átt. Það kemur á daginn að kaffibolli eða tveir bæta atgervi manna til þjónustu við lífsmáttinn. Þeir sem eru eldri en tvævetur vita að með kaffi kemur spjall.

Niðurstaða: leður er fyrir dagdrauma. Stjórnmálamenn ættu að fá sér kaffibolla og ræða málin. Þeir myndu eflast að dug og þreki, bæði inn á við og á opinberum vettvangi. Kökusneið með kaffinu myndi ekki skemma.


mbl.is Ætlar að standa við stóru orðin
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kökustjórnmál í Frakklandi og Íslandi

- Hvers vegna borðar fólkið ekki kökur, er haft eftir Maríu Antoinette í aðdraganda frönsku byltingarinnar. María sagði aldrei þessi orð um fólk í hungursneyð. Stjórnarandstaða þess tíma bjó þau til í áróðursskyni til að sýna fram á andstöðu allsnægtanna í Versölum og fátækar almennings.

Stjórnarandstaðan á Íslandi bjó til kökustjórnmál utan um forsætisráðherra. Svandís, Guðmundur, Róbert, Birgitta og málþófsliðið á alþingi ásakaði Sigmund Davíð um að borða heldur köku í matsal þingsins en hlusta á ræðuhöldin um fundarstjórn forseta.

Kökustjórnmálin í Frakklandi þjónuðu þjóðfélagslegum tilgangi. Þessi útgáfa stjórnmálanna hér á landi gerir ekkert annað en að auglýsa rætni stjórnarandstöðunnar.


mbl.is Telur árangurinn framar vonum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Píratar í þægilegri innivinnu (staðfest)

Á vinnumarkaði ættu Píratar helst heima á vernduðum vinnustað, þar sem tekið er tillit til þess að þeir eru ekki eins og fólk flest. Píratar stunda helst ekki vinnuna, þeir eru án skoðana í öllum stærstu málum en rífa samt kjaft og heimta laun fyrir.

Þingmyndin af Pírötum, sem fylgir fréttinni, er af fólki með hendur í vösum, sem líkast til eru tómir eins og pólitíkin sem Píratar standa fyrir.

Píratar eru á alþingi fyrst og fremst fyrir sjálfa sig. Þeir eru á höttunum eftir þægilegri innivinnu þar sem ábyrgðin er engin og vinnuskyldan eftir því.

Aðeins umburðarlynd velmegunarþjóð gerir þjóðþingið sitt að vernduðum vinnustað.

 


mbl.is Píratar nýttu 45% nefndarfundardaga
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Íslensk múslímatrú vekur andstyggð

Útflutningur á íslenskri múslímatrú er misheppnaður. Útflutningurinn vekur andstyggð á öllu íslensku enda er um að ræða menningarlega, trúarlega og sögulega fölsun með stimpli stjórarráðsins.

Illugi Gunnarsson menntamálaráðherra ber ábyrgð á þessari hörmung. Hann ætti að biðja Ítali, Feneyinga sérstaklega, afsökunar á dómgreindarleysi.

Gagnvart Íslendingum ætti Illugi að hugsa sín mál vel og vendilega. Starfsorka hans nýtist líklega betur hjá Orku Energy en á vettvangi stjórnmála.


mbl.is Moskunni í Feneyjum lokað
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Dauðvona fyrirtæki úr landi er gott mál

CCP er tískufyrirtæki í viðurkenndum bóluiðnaði leikjaframleiðenda. Fyrirtækið er dottið úr tísku og dauðvona eftir því.

Forstjóri fyrirtækisins hótar að flytja úr landi, eins og ekki hafi farið fé betra.

Það er landhreinsun þegar úrelt fyrirtæki fara af landi brott. Starfsmennirnir fara í nýtileg störf í stað þess að framleiða tap.


mbl.is CCP tapaði níu milljörðum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Verkalýðsforystan einangruð - lífeyrissjóðir í hættu

Verkalýðsforystan er einangruð í kröfu sinni um verðbólgusamninga. Enginn pólitískur stuðningur er við verkalýðsforystuna á alþingi. Engar líkur eru á því að ríkisstjórnin setji lög á verkföllin og skeri þannig verkalýðsforystuna úr snörunni.

Verkalýðsforystan er með nokkra daga til að taka sönsum og semja á nótum stöðugleika. Ef til þess kemur að stóru verkföllin skella á verður minna til skiptanna enda mun strax sjá á ferðamannastraumnum til landsins.

Undir forystu ríkisstjórnar Sigmundar Davíðs er sterk samstaða í þjóðfélaginu að hverfa ekki til verðbólgu síðustu aldar.

Verkalýðsforystan ræður ferðinni í stærstu fyrirtækjum landsins í gegnum lífeyrissjóði. Hún ber því tvöfalda ábyrgð, á afkomu fyrirtækja annars vegar og hins vegar á kjarasamningum.

Með því að stefna afkomu fyrirtækja lífeyrissjóðanna í hættu með verkföllum er verkalýðsforystan að setja lífeyrir félagsmanna sinna í uppnám.

Ef verkalýðsforystan tekur ekki sönsum á næstunni hlýtur löggjafinn að taka lagaramma lífeyrissjóðanna til endurskoðunar enda öllum ljóst að þeir eru í höndunum á óábyrgum þjóðfélagsöflum.

 

 


mbl.is Möguleg áhrif á efnahagsmál
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

ESB-sinni hættir á alþingi

ESB-sinni í þingflokki Sjálfstæðisflokksins, sá eini yfirlýsti, ætlar að hætta á alþingi eftir kjörtímabilið.

Samkvæmt frásögn Ásgerðar Halldórsdóttur bæjarstjóra á Seltjarnarnesi af ummælum Ragnheiðar Ríkharðsdóttur hefur  Ragnheiður sagt ,,að hún gefi ekki áfram kost á sér að loknu þessu tíma­bili."

Ragnheiður gefur til kynna að sem kveðjugjöf vilji hún varaformennsku í Sjálfstæðisflokknum.

Dream on.


mbl.is „Ég er upp með mér“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kaupþing var stærsta lygi bankanna þriggja

Stjórnvöld veðjuðu á Kaupþing í hruninu, að bankinn stæði af sér áhlaupið þegar bæði Íslandsbanki og Landsbanki hrundu. Kaupþing gaf þær upplýsingar að vera stöndugur banki og með hjálp stjórnvalda yrði hann starfhæfur til frambúðar.

í Al-Thani málinu sannaðist á stjórnendur Kaupþings sýndarviðskipti til að ljúga til sín traust með því að erlendir fjárfestar keyptu í bankanum - þegar þeir í reynd keyptu ekki. Í yfirstandandi markaðsmisnotkunarmáli sýnir saksóknari fram á að Kaupþing kerfisbundið hélt uppi verði á hlutabréfum bankans - beinlínis í þeim tilgangi að blekkja.

Stjórnendur Kaupþings blekktu ríkisvaldið til að styðja við bakið á gjaldþrota banka. Og það getur ekki verið refsilaust að svæla til sín opinbert fé til að eyða í fjárglæfra.


mbl.is Árni dregur ummæli um Björgólf til baka
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Björk ritskoðar í nafni Jesú Krists - samfylkingarfasismi

Björk Vilhelmsdóttir borgarfulltrúi Samfylkingar segist vita fyrir hönd Jesú Krists hvaða skoðanir almenningur megi hafa í frammi í kirkjum.

Björk ætlar að kæra prest til biskups fyrir að lána húsnæði kirkjunnar til fólks með óæskilegar skoðanir.

Komist Björk og Samfylkingin til valda á Íslandi verður eflaust stofnað til trúarlögreglu sem fylgist með að trú og siðir þjóðarinnar falli að samfylkingarfasisma. 


Lög á verkföll heilbrigðisstétta

Atvinnulífið þarf að vinna sig í gegnum yfirstandandi kjaradeilur. Þar stendur valið á milli stöðugleikasamninga eða verðbólgusamninga. Krónur og aurar eru í húfi. Allt öðru máli gegnir um heilbrigðisstéttir.

Líf og heilsa almennings er í húfi í verkfalli heilbrigðisstétta. Það er beinlínis ósiðlegt að þessar stéttir séu með líf og limi almennings í hendi sér þegar deilt er um kaup og kjör.

Lög á verkföll heilbrigðisstétta þjónuðu tvíþættu hlutverk. Í fyrsta lagi að koma í veg fyrir heilsutjón almennings. Í öðru lagi að skapa atvinnulífinu svigrúm að átta sig á efnahagslegum staðreyndum.

Einboðið er að setja lög á heilbrigðisstéttir sem banna verkföll. 


mbl.is „Velferð þjóðarinnar í húfi“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband