Vinstri grænir setja náttúruna á markað, segir Þórdís ráðherra

Þórdís iðnaðarráðherra fær umboð Vinstri grænna að selja útlendingum íslensk fallvötn undir formerkjum markaðsvæðingar raforkumála.

Þórdís segir þriðja orkupakkann ,,markaðspakka" sem Vinstri græni hafi samþykkt í ríkisstjórn.

Ef þetta er rétt þá er orðin stefnubreyting hjá Vinstri grænum, sem fáir vissu af. Og alls ekki kjósendur flokksins.


mbl.is Hefja viðræður um kaup á Landsneti
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vinstrimenn vildu þjóðargjaldþrot

Ríkisstjórn Jóhönnu Sig. vann markvisst að þjóðargjaldþroti eftir valdatöku vorið 2009. Icesave-samningarnir voru liður í þjóðargjaldþrotastefnu vinstrimanna.

Þjóðargjaldþrotið var liður í þeirri stefnu Jóhönnustjórnarinnar að veikja andstöðuna við inngöngu Íslands í Evrópusambandið og uppstokkun stjórnskipunar með því að afnema gildandi stjórnarskrá.

Í nafni þjóðargjaldþrotsins voru útlendingum gefnir bankarnir og skrifað var upp á texta í anda uppgjafar Þjóðverja í fyrra stríði sem kennd er við Versali.

En, sem sagt, þjóðin hafnaði þrotastefnu vinstrimanna. Tvær þjóðaratkvæðagreiðslur þurfti til, slíkur var ásetningur Jóhönnustjórnarinnar að keyra Ísland í þrot.


mbl.is Icesave var á máli Versala-samninga
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Mótmælaskóli Gunnars Smára

,,Áhugafólk um mótmæli", sækir námskeið hjá Gunnari Smára. Virkum í athugasemdum býðst vettvangur að láta til sín taka á götum og torgum með mótmælaspjöld í hendi.

Þeir sem lemja lyklaborðið einir heima fá tækifæri að hitta sálufélaga er brenna í skinninu að mótmæla öllu heimsins óréttlæti. Ekki síst tómleika eigin tilveru.

Gunnar Smári skaffar slagorðin: kúgun, auðvald og arðrán. Ef þeir virku eru heppnir býður Smárinn þeim kannski heim í 125 milljón króna kotið.

 

 


mbl.is „Hverju eigum við að mótmæla og hvernig?“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þorsteinn Már vill hefnd en ekki réttlæti

Seðlabanki Íslands undir forystu Más Guðmundssonar stýrði íslensku krónunni í höfn eftir ólgusjó hrunáranna, þar sem Þorstein Már Samherjasnillingur fokkaði upp eins og 1/3 af fjármálakerfi landsins - sem handlangari Jóns Ásgeirs Baugsstjóra.

Þorsteinn Már er í persónulegri hefndarför gegn Má. En það er ekki Már sem ber nokkra ábyrgð á mesta klúðri Þorsteins, gjaldþroti Íslandsbanka 2008.

Í stað þess að herja á Má vegna tittlingaskíts, 15 millj. kr. sektar, ætti Þorsteinn Már að þakka Má fyrir að hreinsa upp eftir hrunið. En Þorsteinn er of lítill maður til að að sjá réttlætið. Hann vill hefnd.


mbl.is Bréf Más lýsi „sjúklegri þráhyggju“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Efling hótar og rógber

Efling hótar verkföllum gegn Ístak, sem varð að segja upp starfsfólki vegna slæmrar verkefnastöðu. Efling ber út róg um ferðaþjónustuna, segir formaður fyrirtækja í hótel- og gistihúsarekstri.

Hótanir og rógur eru verkfæri sem sósíalistum í Eflingu eru töm.

Hvorugt skilar launafólki betri lífskjörum. Enda stendur það ekki til. Forysta Eflingar er í pólitík, ekki kjarabaráttu.


mbl.is 56 missa vinnuna hjá Ístaki
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Góða fólkið og ógeðssamfélagið

Tilvera góða fólksins byggist á þeirri sannfæringu að aðrir séu vondir. Mest lesna efnið á RÚV er pistill sem segir í lokaorðum: 

Kjarabarátta verkalýðsins veturinn 2019 snýst í hjarta sínu ekki um hærri laun, heldur er hún pólitísk barátta gegn ríkjandi samfélagsgerð. Undir henni kraumar tilfinningin fyrir því að þótt Ísland sé gott og öruggt samfélag á yfirborðinu, skárra en mörg önnur, þá sé það engu að síður ógeðslegt og gegnsýrt af misskiptingu og skinhelgi.

Góða fólkið ætlar sem sagt að uppræta eitthvað sem ekki er til, þ.e. misskiptingu á Íslandi. Hvernig verður það gert? Jú, með ímyndinni um misskiptingu og djúpri sannfæringu um að á bakvið standi vont fólk, - sem þarf að uppræta.


Brexit ónýtir EES, Katrín

Úrsögn Breta úr Evrópusambandinu, Brexit, hvort heldur með eða án samnings, kippir stoðunum undan EES-samningnum sem gildir á milli Íslands og ESB.

Ástæðan er þessi: fordæmi Breta mun afhjúpa þá blekkingu að EES-samningurinn sé einhvers virði fyrir Ísland.

Ef Bretar gera samning við ESB verða ákvæði hans ekki nærri eins íþyngjandi og EES-samningurinn er fyrir okkur. 

Bretar hafa þegar hafnað aðild að EES, þar sem við erum föst ásamt Noregi og Liechtenstein.

Katrín forsætis ætti að taka mið af Brexit og hyggja að uppsögn EES-samningsins.


mbl.is Varar við Brexit án samnings
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Tilfinningar í stað umræðu

Sósíalistarnir í Eflingu finna stöðugt nýstárlegri leiðir að halda á sér athyglinni. Í gær var það uppákoma á hóteli þar sem Sólveig Anna formaður stundaði áróður á kjörstað. Í dag er það ,,skammarlisti" á ónefndu hóteli er ,,lítilsvirðir" starfsfólk.

Sósíalistar hræra í tilfinningalífi fólks í von um að það láti blekkjast til fylgis við hugmyndafræði eymdarinnar.

Tilfinningar og ódýr áróður skila launafólki ekki betri lífskjörum. Snillingarnir á bakvið eru aftur með allt sitt á þurru.

 

 


mbl.is Halda „skammarlista“ yfir veikindadaga
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sósíalismi gegn lífskjörum

Innistæðulausar kauphækkanir munu fella gengi krónunnar. Í framhaldi kemur verðbólga sem lækkar kaupmáttinn. Margir verða fyrir tvöföldu höggi, lægri kaupmætti og hærri vaxtagreiðslum vegna verðtryggðra lána.

Skæruliðahernaður sósíalistanna í verkó verður þjóðinni dýrkeyptur áður en yfir lýkur.


mbl.is Verðbólgan gæti farið yfir 4%
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Áróður á kjörstað - skrípaleikur verkó

Það þætti ekki gott lýðræði ef þingmenn leiddu kjósendur inn i kjörklefana eða otuðu að þeim kjörkassa í utankjörstaðaatkvæðagreiðslu.

Sólveig Anna á formannslíf sitt í Eflingu undir því að félagsmenn kjósi ,,rétt". Hún ferðast á milli kjörstaða í beinni útsendingu samfélagsmiðla í leit að uppákomum um leið og hún falast eftir atkvæðum.

Þessi skrípaleikur sýnir að verkalýðshreyfingin er orðin að skopmynd af sjálfri sér.


mbl.is Segist ekki hafa meinað fólki að kjósa
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband