Fimmtudagur, 31. janúar 2019
Fríða frjálslynda og dýrið
Í þessu tilfelli hefði ég kosið dýrið eitt.
Þingmenn setja hlaðvarp í loftið | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Fimmtudagur, 31. janúar 2019
Listin, brauðið og vinstrimenn
Almenningur glímir við fátækt hér á landi, er viðkvæði vinstrimanna. Í fátæktarríkinu eiga opinberir aðilar ekki að bruðla og kaupa rándýra list.
Reykjavíkurborg ætti fremur að borga starfsmönnum leik- og grunnskóla hærri laun en eyða í list.
En nú koma listamenn, yfirleitt til vinstri í pólitík, og segja listina nauðsyn ekki síður en brauðstritið.
Erum við kannski ekki fátæk, - nema þá í anda?
Listaverk verða ekki til án kostnaðar | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Fimmtudagur, 31. janúar 2019
Ríkið niðurgreiðir pólitíska fjölmiðla
Hægt er að tala um tvo almenna fréttamiðla á Íslandi, RÚV og Morgunblaðið. RÚV er þegar á framfæri ríkisins en ekki Mogginn. Þeir fjölmiðlar sem nýtt frumvarp heldur á floti með ríkisstyrkjum hverfast um pólitík.
Fjölmiðlaveldi Jóns Ágeirs 365 miðlar, sem búið er að hluta í sundur, voru gerðir út fyrst og fremst fyrir pólitísk áhrif: Stöð 2, Bylgjan, Fréttablaðið. Nýmiðlar eins og Stundin og Kjarninn eru pólitík fyrst en síðast almennar fréttir.
Stjórnmálaflokkar eru þegar á framfæri almennings. Óþarfi er að ríkisvæða fjölmiðla.
Endurgreiðsla geti numið 25% | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Fimmtudagur, 31. janúar 2019
Miðflokkurinn og pólitík 101
Einn þingmaður Miðflokksins, Birgir Þórarinsson, vildi styrkja stöðu sína á kostnað samflokksmanna sinna sem lentu í hakkavél eftir Klausturtal. Birgir plantaði í Fréttablaðið falsfréttum um uppreisn grasrótarinnar í Miðflokknum.
Á alþingi flutti Birgir ræðu um að þingkonur í Evrópu stæðu höllum fæti og lét að því liggja að samflokksmenn hans frá Klaustri bæru ábyrgð á þeirri stöðu. RÚV spilaði með Birgi, hann fékk aðalfréttina í gærkvöldi, bæði í útvarpi og sjónvarpi. Rósa B., samfylkingargræn vinkona Birgis, talaði líka máli hans.
Aðferð Birgis er vel þekkt úr grunnkúrs stjórnmálanna, áfanga 101: ,,Nýttu þér veikleika annarra til eigin frama."
En Birgir klúðraði framkvæmdinni. Hann sást með rýtinginn á lofti sem hann rak ótt og títt í bakið á varnarlausum mönnum. Önnur lexía úr pólitík 101: ,,Ekki sýna þig sem kaldrifjaðan valdasjúkling sem fórnar flokknum fyrir eigin metnað."
Þingflokkur skiptir verkum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Miðvikudagur, 30. janúar 2019
Að vera leiður er ekki geðrænn vandi
Leiði er hluti af lífinu. Án leið myndum við ekki njóta gleðistunda, þær yrðu hversdags.
Geðrænan vanda má kalla það þegar við verðum illa starfhæf í einkalífi, námi eða starfi. Sumir glíma því miður við slíkan vanda og hann getur verið alvarlegur.
En það þjónar litlum tilgangi að víkka út geðrænan vanda og hann ná til leiða, skammtímasveiflna í skapi, tímabundins önuglyndis eða vangaveltna um tilgangsleysi lífsins. Sjúkdómsvæðing á heilbrigðum lífsháttum hjálpar hvorki þeim sem þurfa að hrista af sér slenið né hinum sem eru í erfiðari stöðu og ættu að leita sér aðstoðar.
Leiðar hugrenningar endrum og sinnum gera okkur ekki þunglynd eða geðveik. Þær eru eðlilegur þáttur í lífinu sjálfu.
10,3% nema HR glíma við þunglyndi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Miðvikudagur, 30. janúar 2019
Heimildir herma: falsfréttir
Slúður berst með ljóshraða, ekki síst pólitískar kjaftasögur. Fréttablaðið féll fyrir einni:
Heimildir Fréttablaðsins herma að Birgir Þórarinsson og Sigurður Páll Jónsson séu afar ósáttir við framgöngu og endurkomu samflokksmanna sinna ...
Íslenskir fjölmiðlar nota oft þetta orðalag ,,heimildir herma". Oftast er það játning að viðkomandi blaðamaður hefur ekki trúverðuga heimild.
Og engin frétt er betri en heimildin fyrir henni.
Þetta er tómt kjaftæði | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Miðvikudagur, 30. janúar 2019
Elítan: áhyggjur af loftslagi ekki skattaundanskotum
Alþjóðlega auðmannaelítan flaug á einkaþotum til Davos að ræða lofthita og hrun alþjóðahyggju en tók ekki á dagskrá brýnasta málið: skattaundanskot fjölþjóðafyrirtækja og auðmanna.
Sagnfræðingur á Davos-fundinum slær í gegn með því að benda á hið augljósa, að auðuga elítan borgar ekki sanngjarnan skatt.
Auðmenn eru í bandalagi við elítu menntamanna og sérfræðinga sem telja lofthita meira vandamál en efnahagslegt misrétti.
Almenningur ber kostnaðinn af þessu bandalagi með hærri neyslusköttum á eldsneyti.
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 11:20 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Þriðjudagur, 29. janúar 2019
Rósa B. hissa að menn vinni störf sín
Samfylkingarþingmaður Vinstri grænna, Rósa B. Brynjólfsdóttir, kveðst hissa á að Bergþór Miðflokks skuli stýra þingnefnd þar sem hann er formaður.
,,Þó svo hann hafi tekið setu á þinginu í síðustu viku þá kom þetta virkilega á óvart og enginn fyrirvari á því," segir Rósa B. og er miður sín á tali við RÚV.
Rósa B. er viðkvæm sál og finnst sér ofboðið ef menn rækja störf sín. Alþingi er líklega ekki heppilegasti vinnustaðurinn fyrir snjókorn.
Orðbragðið engu skárra en á Klaustri | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Þriðjudagur, 29. janúar 2019
Falsfréttir eru flókið mál, Lilja
Í meginatriðum eru til tvær útgáfur af falsfréttum. Í fyrsta lagi skáldskapur frá rótum, t.d. ,,Elvis lifir". Áður voru þetta kallaðar flökkusögur og urðu til þegar fólk vildi trúa einhverju ósönnu. Nýlegt dæmi er ,,Gunnar Bragi fullur í leikhúsi".
Í öðru lagi fréttir sem eru misvísandi, ýktar, mikilvægum efnisatriðum sleppt eða aðeins sagt frá einu sjónarhorni. Frétt RÚV um ástandið í Venesúela, þar sem ekki var minnst á sósíalisma, fellur í þann flokk.
Deilur um falsfréttir eru oft harðvítugar. Sá sem þetta skrifar var stefnt fyrir dóm vegna ærumeiðinga þegar hann gagnrýndi RÚV fyrir falsfrétt um Evrópumál.
Virðingarvert er af Lilju menntamálaráðherra að vekja máls á falsfréttum, þær eru vandamál.
Besta leiðin til sporna við falsfréttum er umræða um hvernig fréttir verða til, hlutverk fjölmiðla og áhrif samfélagsmiðla. Þetta má kenna í skólum. Það þarf bara að setja viðfangsefnið í námskrá.
Skólakerfið sporni við falsfréttum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 06:59 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Mánudagur, 28. janúar 2019
Nei, Þórhildur Sunna, sakleysi þarf ekki að sanna
Píratinn Þórhildur Sunna og félagi hennar Björn Leví þjófkenndu samþingmann sinn, Ásmund Friðriksson.
Nú stendur til að forsætisnefnd kanni hvort ummæli Píratann brjóti gegn siðareglum.
Svar Þórhildar Sunnu er þetta: fyrst þarf Ásmundur að sanna að hann sé ekki þjófur.
Í réttarríkinu er gerð krafa um að þeir sem ákæra sanni mál sitt. Píratarnir vilja snúa á hvolf þessari grunnreglu. Nú skal sá ákærði sanna sakleysi sitt.
Verði að meta sannleiksgildi ummælanna | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |