Húfan og mittismál Þórhildar Sunnu

Lítil húfa á stórum skrokki segir myndmálið í viðtengdri frétt.

Hver er lýðheilsustefna Pírata?


mbl.is Mótmæltu með „Fokk ofbeldi“-húfum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bára ekki tilviljun heldur útsendari

Bára einstaklingur segist hafa fyrir tilviljun hljóðritað einkasamtal þingmanna á Klaustri. Aftur tók einhver mynd fyrir Báru sem notuð var til að myndaskreyta fréttir af einkafundi þingmannanna.

Bára sat ekki á Klaustri í um 4 klukkustundir og beið eftir að æfing í Iðnó hæfist, líkt og hún sagði fyrst ,,hugsaði með mér að það væri fínt að setjast þar aðeins niður fram að æfingunni og fá sér kaffi."

Bára var ekki tilviljun á Klaustri. Bára var útsendari.


mbl.is Segja upptökurnar skipulagða aðgerð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Katrín: ESB-umsóknin mistök - hvað með EES?

ESB-umsóknin 2009 var mistök, viðurkennir Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra. Umsóknin var frekja dómgreindarlausasta stjórnmálaflokks í seinni tíma sögu landsins, Samfylkingarinnar.

Forveri Samfylkingar, Alþýðuflokkur, knúði í gegn á alþingi - án þess að spyrja þjóðina - EES-samninginn árið 1993. Þáverandi formaður, Jón Baldvin Hannibalsson, seldi þinginu samninginn eins og skransali með slagorðinu allt fyrir ekkert.

Nú liggur fyrir að vegna EES-samningsins ætlar ESB sér ítök í raforkumálum þjóðarinnar, með 3. orkupakkanum. Það er nokkru meira en ,,ekkert".

Er ekki tímabært að viðurkenna að EES-samningurinn var mistök? Og í framhaldi leiðrétta mistökin.


mbl.is Hefðu átt að halda þjóðaratkvæði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 5. febrúar 2019

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband