Nei, Þórhildur Sunna, sakleysi þarf ekki að sanna

Píratinn Þórhildur Sunna og félagi hennar Björn Leví þjófkenndu samþingmann sinn, Ásmund Friðriksson.

Nú stendur til að forsætisnefnd kanni hvort ummæli Píratann brjóti gegn siðareglum.

Svar Þórhildar Sunnu er þetta: fyrst þarf Ásmundur að sanna að hann sé ekki þjófur.

Í réttarríkinu er gerð krafa um að þeir sem ákæra sanni mál sitt. Píratarnir vilja snúa á hvolf þessari grunnreglu. Nú skal sá ákærði sanna sakleysi sitt.


mbl.is Verði að meta sannleiksgildi ummælanna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: rhansen

Piratar  bæta hvorki lyðheilsu ne geðheilsu ALÞINGIS og væru betur kon-mnir utan veggja þess !

rhansen, 28.1.2019 kl. 20:04

2 Smámynd: Ragnhildur Kolka

Er það ekki Þórhildur Sunna sem státar af lögfræðiprófi? Eru grunnreglur réttarríkisins ekki örugglega enn á námsskrá? 

Ragnhildur Kolka, 28.1.2019 kl. 21:18

3 Smámynd: Þorsteinn Siglaugsson

Það er vitanlega hún sjálf sem þarf að setja fram rök máli sínu til stuðnings. Það er afar undarlegt ef manneskjan heldur að hún geti bara varpað fram einhverjum órökstuddum fullyrðingum, en svo sé það annarra að rökstyðja þær.

Þessi manneskja er greinilega afar illa gefin.

Þorsteinn Siglaugsson, 28.1.2019 kl. 22:16

4 Smámynd: Sigurður Kristján Hjaltested

Það eru fleiri Píratar sem státa sig af Háskólagráðum

þótt aldrei hafi fengið þær.

En það er í lagi.

Píratar, eða orðið Pírati segir allt sem segja þarf

um þennan flokk.

Sigurður Kristján Hjaltested, 28.1.2019 kl. 22:20

5 Smámynd: Gunnar Heiðarsson

Spænski rannsóknarrétturinn .....

Gunnar Heiðarsson, 28.1.2019 kl. 22:36

6 Smámynd: Benedikt Halldórsson

Ekki held ég að Þórhildur Sunna og Björn Leví skorti vit en....

Sá sem hóstar er líklega með kvef en það er ekki víst. Sá sem gagnrýnir Ísrael en aldrei Hamas er líklega með vinstri heilkenni ósjálfráðra "skoðana" sem lýsa sér m.a. í sjúklegu hatri á pólitískum andstæðingum til hægri. Fólk getur fengið einstaka "óvini" svo illa á heilann að vel gefið fólk með góða menntun verður að misþroska kjánum. 

Benedikt Halldórsson, 29.1.2019 kl. 04:35

7 Smámynd: Þorsteinn Siglaugsson

Þessi umræða er reyndar um aksturskostnað, ekki um Ísrael embarassed

Þorsteinn Siglaugsson, 29.1.2019 kl. 08:50

8 Smámynd: Jóhannes Laxdal Baldvinsson

Nei Þorsteinn, þessi umræða er um meintan þjófnað Ásmundar Friðrikssonar.  Píratar fóru fram á að forsætisnefnd sannreyndi akstursreikninga Ásmundar. Forsætisnefnd beitti skrifstofu Alþingis fyrir sig sem hafnaði að rannsaka réttmæti útgefinna reikninga. Þetta er náttúrulega ekki í lagi eins og flestar ákvarðanir forsætisnefndar þingsins þessa dagana. Mér finnst borðleggjandi að alþingi láti gera réttmætisrannsókn á öllum útgefnum akstursreikningum, minnst 5 ár aftur í tímann. Þetta fyrirkomulag var misnotað eins og sést í máli Ásmundar. Virkir í athugasemdum á þessu bloggi þurfa ekki annað en bera saman akstursreikninga Ásmundar fyrir og eftir afhjúpun.

Jóhannes Laxdal Baldvinsson, 29.1.2019 kl. 13:22

9 Smámynd: Jóhannes Laxdal Baldvinsson

Túlkun Páls á fréttinni hlýtur að skrifast á fljótfærni. Páll veit að Þórhildur Sunna er ekki að tala um sekt Ásmundar. Hún er að benda á, að fyrst þurfi Forsætisnefnd að láta framkvæma réttmætiskönnun á útgefnum reikningum Ásmundar vegna meints aksturs, eins og Píratar hafa formlega farið fram á. Svo geta þeir tekið erindi Ásmundar, um ásakanir Pírata á hendur sér.  Er þetta of flókið Páll?

Jóhannes Laxdal Baldvinsson, 29.1.2019 kl. 14:07

10 Smámynd: Heimir Lárusson Fjeldsted

Laganám Sunnu kemur ekki að gagni.

Heimir Lárusson Fjeldsted, 30.1.2019 kl. 08:35

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband