Dagur B. með tvö sjálfsmörk

Borgarstjórinn Dagur B. ætlar að veita forystu í starfshópi um braggamálið þar sem Dagur B. er sjálfur aðalsökudólgurinn. Sjálfsmark.

Dagur B. gerir lítið úr konum með sjálfstæðar skoðanir og segir þær ,,handbendi harðlínuafla." Annað sjálfsmark.

Stjórnmálamaður sem hleður á sig sjálfsmörkum veit ekki lengur sitt rjúkandi ráð.


mbl.is „Braggamálið er rétt að byrja“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Verkó óttast samninga, þarf verkfall

Róttæki hluti verkalýðshreyfingarinnar, verkó, óttast að samningar náist án verkfalla. VR, Efling, Framsýn og VA hafa talað í hálft annað ár um nauðsyn verkfalla. Formenn þessara félaga mega ekki til þess hugsa að glæpnum verði stolið af þeim, að samið verði án verkfalla.

Verkó er fangi eigin orðræðu. Þeir heimta að allir fái ráðherralaun því án þeirra launa sé ólíft í landinu. Þeir sem standa fyrir utan bergmálshellinn, þar sem formenn verkó hafa dvalið í 500 daga, vita að ráðherralaun eru ekki í boði.

Verkó veit að engin stemning er í samfélaginu fyrir verkföllum. Ísland er jafnlaunaland þar sem hvergi á byggðu bóli er minni munur milli tekjuhópa. Meðallaun hér á landi eru um 700 þúsund á mánuði. Margir ASÍ-félagar eru með meira en milljón á mánuði.

Í yfirstandandi kjaraviðræðum er bergmálsorðræða verkó um að allir fái ráðherralaun helsta vandamálið. Líklega þarf verkföll til að leysa þann vanda.


mbl.is Segir allt loga í febrúar semjist ekki
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 8. janúar 2019

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband