Miðflokkurinn og pólitík 101

Einn þingmaður Miðflokksins, Birgir Þórarinsson, vildi styrkja stöðu sína á kostnað samflokksmanna sinna sem lentu í hakkavél eftir Klausturtal. Birgir plantaði í Fréttablaðið falsfréttum um uppreisn grasrótarinnar í Miðflokknum. 

Á alþingi flutti Birgir ræðu um að þingkonur í Evrópu stæðu höllum fæti og lét að því liggja að samflokksmenn hans frá Klaustri bæru ábyrgð á þeirri stöðu. RÚV spilaði með Birgi, hann fékk aðalfréttina í gærkvöldi, bæði í útvarpi og sjónvarpi. Rósa B., samfylkingargræn vinkona Birgis, talaði líka máli hans.

Aðferð Birgis er vel þekkt úr grunnkúrs stjórnmálanna, áfanga 101: ,,Nýttu þér veikleika annarra til eigin frama."

En Birgir klúðraði framkvæmdinni. Hann sást með rýtinginn á lofti sem hann rak ótt og títt í bakið á varnarlausum mönnum. Önnur lexía úr pólitík 101: ,,Ekki sýna þig sem kaldrifjaðan valdasjúkling sem fórnar flokknum fyrir eigin metnað."  


mbl.is Þingflokkur skiptir verkum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ragnhildur Kolka

Vanhugsuð ræða hans Heilagleika og ekki bætir úr samfloti með Rósu B.

Ragnhildur Kolka, 31.1.2019 kl. 10:27

2 Smámynd: Ómar Geirsson

Blessaður Páll.

Stundum þarf jafnvel Shakespeare að passa sig á eplinu eða egginu.

Eitthvað hugsaði maður þegar maður heyrði þessa frétt.  En þú orðaðir þær hugsanir í kjarna hinna fáu orða.

Eiginlega snild.

Þér að segja.

Kveðja að austan.

Ómar Geirsson, 1.2.2019 kl. 22:12

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband