Samfylking boðar skatt á ellilífeyrisþega

Samfylking segir það ,,eignaójöfnuð" að ellilífeyrisþegar eigi húsnæði upp á milljónatugi. Talsmaður flokksins í skattamálum, Ólafur Ágúst Ólafsson, boðar í viðtali á RÚV að Samfylkingin muni skattleggja ,,eignaójöfnuðinn".

Fólk eignast húsnæði sitt með launavinnu út ævina. Það mun ekki njóta afraksturs starfsævinnar ef Samfylkingin kemst í ríkisstjórn. Sparnaðinn ætlar Samfylkingin að skattaleggja með þeim rökum að húseignir eru ,,ójöfnuður".

Við getum komið í veg fyrir samfylkingarskatt á ævisparnaðinn með atkvæði okkar eftir rúma viku.


mbl.is Meðallífeyrisþeginn á 40 milljónir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

RÚV ræðst á tjáningarfrelsið

RÚV réðst á tjáningarfrelsið þegar bloggara var stefnt fyrir dóm vegna gagnrýni á fréttastofu RÚV. Efstaleiti lét sér ekki segjast þegar héraðsdómur sýknaði bloggara heldur reyndi fyrir sér í hæstarétti.

Þegar stórir fjölmiðlar leggja sig í framkróka að klekkja á gagnrýnisröddum er augljóst að fjölmiðlar eru komnir í bullandi pólitík í stað þess að segja fréttir.

Í auknum mæli reyna fjölmiðlar að hafa áhrif á stjórnmál, oft og iðulega í samspili við umræðu á samfélagsmiðlum.

Mannréttindastofnun HÍ ætti fremur að hafa áhyggjur af glæfralegu framferði fjölmiðla við að hanna pólitíska atburðarás fremur en að hnýta í dómstóla. Fjölmiðlar fara óvarlega með það vald sem þeim er treyst fyrir. Dómar í meiðyrðamálum eru almennt í takt við línurnar sem lagaðar eru af Mannréttindadómstól Evrópu.

Vandinn snýr ekki að takmörkun tjáningarfrelsis fjölmiðla heldur valdbeitingu fjölmiðlanna. 


mbl.is Skýrsla um áfellisdóma yfir ríkinu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Stundin: engar fréttir í 10 ár

Stundin telur ekkert fréttnæmt hafa gerst í tíu ár eða frá því að Glitnir fór á hausinn. Svört forsíða Stundarinnar gefur þessa yfirlýsingu:

við megum ekki segja tíðindi úr stolnum gögnum úr þrotabúi Glitnis. Ekkert annað er að frétta. 

Fjölmiðill sem ekki sér neitt fréttnæmt, nema tíu ára endurunnar fréttir, ætti kannski að snúa sér að sagnfræði. En til þess þarf bæði að kunna að meta heimildir og umgangast sannleikann af virðingu. Stundin kann hvorugt.


mbl.is Svört forsíða Stundarinnar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

ESB þvær hendur sínar af Katalóníu

Lýðræðisleg krafa Katalóníu um fullveldi fær ekki hljómgrunn hjá Evrópusambandinu. Katalónar eru ,,aðeins" um 6 milljón manna þjóð en Spánn telur 46 milljónir. ESB hugsar í valdahlutföllum og þar tapa alltaf smáþjóðir.

Ríkisstjórnin í Madríd fær stuðning Evrópusambandsins til að kæfa sjálfstæðistilburði Katalóna. Meginreglur um lýðræði, sem ESB þykist hafa í hávegum, eru einfaldlega lagðar til hliðar þegar þurfa þykir.

Það verður holur hljómur í málflutningi Evrópusambandsins næst þegar valdhafar í Brussel gera sig breiða á alþjóðavettvangi og tala um lýðræði. Í Brussel er lýðræði aðeins upp á punt.


mbl.is Ekki rými fyrir aðkomu ESB
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sjálfstæðisflokkurinn besta vörn stjórnarskrárinnar

Vinstriflokkarnir stefna að pólitísku upplausnarástandi þar sem stjórnarskrá lýðveldisins verður fyrsta fórnarlambið. Stjórnskipunin hvílir á stjórnarskránni.

Verði hér mynduð vinstristjórn eftir kosningar er einboðið að pólitískir og efnahagslegir óvissutímar fari í hönd.

Eina leiðin til að koma í veg fyrir vinstristjórn er að Sjálfstæðisflokkurinn fái sterkt umboð kjósenda.


mbl.is Hvað á að gera við stjórnarskrána?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Píratar dreifa falsfréttum í útlöndum

Smári McCarty þingmaður Pírata dreifir óhróðri um Ísland í útlöndum. Smári reyndi að koma því inn hjá erlendum fjölmiðlum að barnaníðingar sætu í æðstu stjórn landsins.

Píratar vonast til að erlendir miðlar taki upp falsfréttirnar og að þær verði síðan þýddar yfir í íslenska fjölmiðla.

Markmiðið er að þjóðin fyllist sjálfsfyrirlitningu og kjósi Pírata.


mbl.is Forstjóri Landsvirkjunar í falsfréttum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Engar fréttir, aðeins umræða (sem er mest bull)

Þingnefndarfundur um tjáningarfrelsi sumra blaðamanna, þó ekki Loga Bergmann, er umræðusirkus.

Þingnefndin er ekki með neina aðkomu að lögbanni Glitnis. Dómstólar kveða upp úr um lögmætið, ekki þingnefnd eða framkvæmdavaldið.

Þingnefndarfundurinn er engin frétt, aðeins tilbúin umræða. Og umræðan er mest bull.


mbl.is „Nenni ekki að sitja undir svona bulli“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sjálfstæði og máttur orðsins

Sjálfstæði er orð, ekkert meira og ekkert minna. Katalónar eru á þröskuldi þess að segja orðið sjálfstæði og það mun hafa víðtækar afleiðingar hvort þeir hrökkva eða stökkva.

Spánn er í upplausnarástandi vegna orðsins. Fyrrverandi utanríkisráðherra Þýskalands segir sjálfstæðisyfirlýsingu Katalóna tilræði við sjálft Evrópusambandið.

,,Í upphafi var orðið..." stendur í tvö þúsund ára Jóhannesarguðspjalli. Sígild speki sem gildir enn í dag.


mbl.is Hefur ekki lýst yfir sjálfstæði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Logi útilokaður í eitt ár - tjáningarfrelsið

Logi Bergmann gerði fyrir 12 árum ráðningarsamning við 365-miðla sem sjónvarpsmaður. Á þeim tíma var hörð samkeppni milli RÚV og Stöðvar 2 um starfsfólk. Í samningnum var ákvæði sem takmarkaði möguleika Loga að fara til samkeppnisaðila.

Logi færði sig yfir í útvarp og pistlaskrif. Hann gerir fyrir nokkrum dögum ráðningarsamning við Árvakur. En þá bregður svo við að vinnuveitandi hans, 365-miðlar, krefjast lögbanns á störf Loga hjá Árvakri.

Logi starfar við að tjá sig í ræðu og riti. Lögbannið snertir augljóslega meginreglur um tjáningarfrelsið.

En það er engin umræða um tjáningarfrelsi Loga. Vinstrimenn og fjölmiðlar þeirra eru samt í góðri æfingu hafandi hellt sér yfir lögbann Glitnis á fréttaflutningi af gögnum bankans.

Vinstrimenn og fjölmiðlar þeirra telja tjáningarfrelsi einstaklingsins léttvægt, eyða ekki orðum á það. Hvað veldur?


mbl.is „Hef meiri áhyggjur af gengi United en lögbanninu“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Tjáningarfrelsi Loga - vinstrimenn þegja

Lögbann er sett á tjáningarfrelsi Loga Bergmann. Vinstrimenn, sem þykjast sérstaklega næmir á tjáningarfrelsið, þegja þunnu hljóði. Engin öskur á samfélagsmiðlum, ekkert fréttaflóð frá fjölmiðlum vinstrimanna.

Eru vinstrimenn aðeins hlynntir tjáningarfrelsi þegar það þjónar pólitískum hagsmunum þeirra?


mbl.is Lögbann á störf Loga
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband