Mánudagur, 23. október 2017
Edda viđ Katrínu Jakobs: viđ erum ekki glćpamenn
Vinstrimenn draga upp ţá mynd ađ ţeir sem eiga peninga séu glćpamenn. Samfylkingin bođar eignaupptöku og Vinstri grćnir skatta á lífeyrisţega. Edda Ţórarinsdóttir skrifar formanni Vinstri grćnna opiđ bréf og vegna skattahugmynda Katrínar og félaga.
Edda segir um 7200 manns eiga lífeyrinn sinn í fasteignum og verđbréfum. Og skrifar
Hóp sem hafđi reynt ađ spara til elliáranna og búa sér til sinn eigin lífeyrissjóđ, til dćmis međ ţví ađ fjárfesta í steinsteypu - kaupa eđa byggja húsnćđi - eđa jafnvel međ ţví ađ kaupa ríkisskuldabréf. Ţetta er hvorki ólöglegt né glćpsamlegt.
Edda telur sig ţurfa ađ taka fram ađ heiđarlegt fólk sem á peninga stundi ekki glćpsamlega iđju. Vinstrimenn eru búnir ađ endurtaka svo oft ađ eignafólk sé upp til hópa glćpahyski sem skuli skattleggja út á guđ og gaddinn.
Dćgurmál | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (1)
Mánudagur, 23. október 2017
Vinstristjórn og kjarasamningar: eitruđ blanda
Ef vinstriflokkarnir ná meirihluta í ţingkosningunum á laugardag opna ţeir ríkiskassann skjólstćđingum sínum í ríkisverkalýđshreyfingunni.
Á borđinu er krafa um 30 prósent launahćkkun opinberra starfsmanna.
Ţórunn Sveinbjarnardóttir fyrrum ráđherra Samfylkingar og félagar hennar í samtökum ríkisstarfsmanna sjá fram á jólaveislu ţegar í nóvember. Eftir áramót tekur viđ langur og harđur verđbólguvetur.
Samiđ um allt nema laun | |
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt |
Dćgurmál | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (3)
Mánudagur, 23. október 2017
RÚV stundar pólitík, ekki fréttaflutning
RÚV veltir sér upp úr Glitnis-gögnum, ekki til ađ upplýsa heldur ala á tortryggni. Hálfkveđnar vísur og dylgjur er notađar til ađ koma höggi á Sjálfstćđisflokkinn.
Björn Bjarnason tekur saman síđustu afrek Gróu á Efstaleiti.
Ţađ er ekki bođlegt ađ ríkisrekin fréttastofa standi fyrir pólitískum áróđri.
RÚV dró upp kolranga mynd | |
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt |
Dćgurmál | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (2)
Mánudagur, 23. október 2017
Siđleysi vinstrimanna
Vinstrimenn og fjölmiđlar ţeirra, RÚV, Stundin og Kjarninn, nota stolin gögn til sá frćjum tortryggni í kosningabaráttunni. Gögnin eru úr ţrotabúi Glitnis, meira en tíu ára gömul.
Gögnin geyma persónulegar upplýsingar. Ţrátt fyrir ítrustu tilraunir geta fjölmiđlar vinstrimanna ekki sýnt fram á ađ gögnin varpi ljósi á nein lögbrot. Engu ađ síđur nota vinstrimenn gögnin til ađ efna til fjölmiđlaréttarhalda ţar sem ákćruvald og dómstóll eru RÚV, Stundin og Kjarninn. Markmiđiđ er ekki ađ leiđa sannindi í ljós heldur ala á grunsemdum og tortryggni.
Í allri umrćđunni um Glitnisgögnin vottar hvergi fyrir efasemdum vinstrimanna um siđferđilegt réttmćti ţess ađ nota stolin gögn til ađ grafa undan tiltrú fólks á stjórnmálum.
Ríkjandi viđhorf vinstrimanna er ađ tilgangurinn helgi međaliđ. Lygi, falsfréttir og blekkingar eru lykillinn ađ árangri í pólitík, er viđkvćđi vinstrimanna. Útkoman verđur siđlaust samfélag.
Stuldur á gögnum ekki réttlćtanlegur | |
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt |
Dćgurmál | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (6)