Laugardagur, 21. október 2017
Fáeinar hræður á Austurvelli - hópefli vinstrimanna
Fáeinar hræður mættu á Austurvöll. Líklega nógu margar til að hræða fugla frá haustberjum. Baugsskáldið og frambjóðandi Samfylkingar hélt ræðu um stjórnarskrá vinstrimanna.
Valdefling vinstriflokka tekur á sig sérkennilegar myndir.
Vilja svör við stjórnarskrármálinu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Laugardagur, 21. október 2017
Þrír skattaflokkar: Vinstri grænir, Samfylking og Píratar
Vinstriflokkarnir þrír eru allir skattaflokkar. Eignaupptaka á öldruðum og almennar skattahækkanir eru forsenda fyrir kosningaloforðum þeirra.
Eins og það sé ekki nóg ætla skattaflokkarnir að ráðast að stjórnarskránni og með góðu eða illu gera Ísland að ESB-ríki.
Þjóðin hefur viku til stefnu að gera upp við sig hvort hún vill skattaflokkana þrjá til landsstjórnar eða velja sér hófsamari stjórnmálaöfl til forystu.
Vinstri grænir lækka flugið | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Laugardagur, 21. október 2017
Einu sinni voru fréttir og skoðanir sitthvað
Fréttir eru byggðar á staðreyndum, skoðanir eru álit eða túlkun. Einu sinni voru fréttir fjölmiðla aðgreindar frá skoðunum. Dagblöð voru með fréttasíður fyrir tíðindi dagsins þar sem staðreyndir voru í forgrunni. Leiðarar og skoðanir voru á vísum stað, oft á miðopnu.
Aðrir fjölmiðlar, útvarp og sjónvarp, buðu upp á staðreyndir í fréttatímum en ekki leiðara eða skoðanir.
En nú er öldin önnur. Fjölmiðlar taka þátt í ,,umræðunni" þar sem enginn greinarmunur er gerður að staðreyndum og skoðunum. Það er talað um ,,inngrip í umræðuna" þegar fullkomlega eðlileg meðferð á persónuverndarmáli leggur hömlur á opinbera birtingu stolinna gagna.
Undir yfirskini ,,umræðunnar" eru skrifaðir leiðarar og þeir kallaðir fréttir. Í stað sjálfstæðra heimilda tekur einn fjölmiðill skoðun frá öðrum fjölmiðli og gerir að frétt. Fjölmiðlar eiga það til að framleiða eigin heimildir, t.d. tímalínur, og vitna síðan í sjálfa sig og kalla sjálfstæða heimild.
Í umræðufréttum eru skoðanir meðhöndlaðar sem hlutlægar staðreyndir. Í umræðunni er enginn munur gerður á sannindum eða ósannindum. Tjáningarfrelsið er notað sem skálkaskjól fyrir bullið.
Forsíðan er svert í mótmælaskyni | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)