Fimmtudagur, 2. ágúst 2018
Mannréttindatrú og sæmd
Kaþólska kirkjan leggst gegn dauðarefsingu enda hún árás á friðhelgi og sæmd hvers manns.
Dauðarefsingum er sjaldnast beitt nema gegn morðingjum, þ.e. þeim sem hafa tekið annars manns líf og sæmd þar með.
Trú á mannréttindi vex jafnt og þétt á vesturlöndum frá frönsku byltingunni í réttu hlutfalli við minna gengi trúarbragða. Með afstöðu sinni fetar kaþólska kirkjan slóð veraldlegrar mannhelgi.
Sæmd er aftur eldra hugtak en kristni. Rauði þráðurinn í Ilíad, söguljóði Hómers frá 8. öld fyrir Krist, er glötuð sæmd Akkillesar. Íslendingasögur, sem gerast á mörkum heiðni og kristni, eru stappfullar af sæmd manna. Manndráp voru stunduð hægri vinstri af sómakærum mönnum er áttu auðvelt með réttlætinguna. Sæmd þeirra var í húfi.
Dauðarefsing er aðeins á valdi ríkisvaldsins, samkvæmt viðtekinni skoðun. Sæmd, aftur á móti, er hvorki ríkisins að gefa eða taka. Afstaða kaþólsku kirkjunnar opnar dyrnar fyrir þeirri hugsun að aðrir en ríkisvaldið bjargi sæmdinni þegar að henni er hoggið. Við búum á síðkristnum tíma, rétt eins og Íslendingasögur mótuðust í síðheiðni.
![]() |
Segir dauðarefsingu aldrei réttlætanlega |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Fimmtudagur, 2. ágúst 2018
Trumpfólk og frjálslyndi
Einu sinni voru frjálslyndir vinstrimenn í Bandaríkjunum fullir efasemda um kommúnistaandúð hægrimanna. Þeir frjálslyndu töldu leyniþjónustuna CIA verkfæri til að steypa af stóli lýðræðislega kjörnum leiðtogum og stunda siðlausar tilraunir á fólki.
Sjálfsímynd frjálslyndra vinstrimanna fyrir hálfri öld eða svo var að taka heiminn mátulega hátíðlega og tortryggja það sem þeir tóku alvarlega.
Í tímaritinu Harpe's er grein eftir Walter Kirn, sem var á heimavelli í frjálslyndi áttunda áratugar síðustu aldar. Hann dregur upp þá mynd að þeir frjálslyndu séu komnir sömu skotgrafir og hægrimenn fyrir hálfri öld. Frjálslyndir samtímans sjá Rússasamsæri í hverju horni og upphefja CIA sem máttarstólpa samfélagsins - vegna þess að Trump er hliðhollur Rússum og CIA keppist við að grafa undan Trump.
Fyrirsögn greinar Kirn er ,,ófrjálslyndi". Hann finnur í stuðningsmönnum Trump sama viðhorf og var ríkjandi með frjálslyndum fyrir hálfri öld, uppreisn gegn yfirvaldi. Þeir sem kenna sig við frjálslyndi í dag eru aftur á móti hreintrúarfólk, ávallt tilbúið með reiðilestur yfir þeim sem hugsa öðruvísi en ráðandi kennisetningar leyfa.
Bandaríkjamenn reyna að skilja bakland Trump og breytingar á pólitískri menningu þjóðarinnar. Grein Kirn er framlag í þá umræðu. Annað athyglisvert framlag má lesa í vinstriútgáfunni Nation. Þar segir að pólitískur hugmyndafræðingur Trump-bylgjunnar sé Hunter S. Thompson, sá er skrifaði um Vítisengla á hippatímabilinu.
Það er margt í mörgu.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Miðvikudagur, 1. ágúst 2018
Ákæruvaldið á samfélagsmiðlum
Ríkissaksóknari fer með opinbert ákæruvald. Í vaxandi mæli framselur ríkissaksóknari ákvarðanir sínar í hendur samfélagsmiðla.
Starfsmenn ríkissaksóknara láta fréttast að þeir séu óánægðir með tiltekna niðurstöðu dómstóla. Í framhaldi verða umræður á samfélagsmiðlum um að þetta og hitt sé ótækt.
Í ljósi umræðunnar tekur embætti ríkissaksóknara ákvörðum um hvort skuli áfrýja eða una dómi.
Það liggur í augum uppi að þessi þróun er ótæk fyrir réttarríkið. Þegar ríkissaksóknari framselur ákæruvaldið til samfélagsmiðla er fjandinn laus. Við búum ekki lengur í réttarríki heldur múgræði.
Ef einhverjir fullorðnir starfa enn hjá embætti ríkissaksóknara ættu þeir að grípa í taumana áður en það verður um seinan. Ef það eru aðeins samfélagsmiðlafígúrur sem starfa hjá embættinu á að leggja það niður.
![]() |
Ákæruvaldið áfrýjar til Landsréttar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Miðvikudagur, 1. ágúst 2018
Verður samið um kaupLÆKKUN í vetur?
Tiltrúin á íslensku atvinnulífi er í lægð, allar tölur rauðar í kauphöllinni síðustu daga. Fasteignaverð stendur í stað eða lækkar sem undirstrikar litla trú á framhaldi hagvaxtar síðustu ára.
Atvinnulífið skapar þau verðmæti sem eru til skiptanna milli fjármagns og launa. Ef minna er til skipanna fá allir minna, bæði fjármagnseigendur og launþegar.
Engar launahækkanir standa til boða í vetur. Það myndi teljast gott að halda launum í horfinu.
Svo geta menn, auðvitað, farið í verkföll til að tryggja sér kauplækkun. Verkföll skapa engin verðmæti.
![]() |
Skörp lækkun Icelandair í kauphöllinni |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Miðvikudagur, 1. ágúst 2018
Stjórna Rússar Bandaríkjunum í gegnum Facebook?
Frjálslyndir vinstrimenn í Bandaríkjunum trúa að Rússar gerðu útslagið í forsetakosningunum og tryggðu kjör Trump með falsfréttum á samfélagsmiðlum. Sami tónn er sleginn fyrir þingkosningarnar þar í landi.
Til að trúa staðhæfingunni þarf maður fyrst að samþykkja þá forsendu að Facebook og aðrir samfélagsmiðlar skipti sköpum í kosningum. Það er einfaldlega ólíklegt.
Á árdögum sjónvarpsins var uppi svipuð kenning, að sjónvarpið væri mesti áhrifavaldurinn í kosningum. Kennedy var sagður sigra Nixon vegna sjónvarpseinvígis sem þeir háðu 1960.
Sjónvarpið, ólíkt samfélagsmiðlum, er ritstýrður miðill. Samfélagsmiðlar eru almannavettvangur, stafrænt fundartorg þar sem milljónir taka til máls.
Sjónvarp var tiltölulega nýr miðill fyrir hálfri öld, líkt og samfélagsmiðlar eru í dag. Freistandi er að búa til samsæriskenningar um áhrifamátt þeirra.
Vestur í Bandaríkjunum kaupa ekki allir vinstrimenn kenninguna um mátt Rússa. Sósíalistinn Seth Ackerman segir að þráhyggjan muni enda í tárum. Íhaldsmaðurinn Buchanan vekur athygli á hve Rússland er í raun lítil ógn við Bandaríkin.
En þeir sem stjórna Facebook verða að sýnast líta málið alvarlegum augum. Og loka nokkrum síðum sem fáir fylgdust með.
![]() |
Facebook hendir út falsaðgöngum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)