Ákæruvaldið á samfélagsmiðlum

Ríkissaksóknari fer með opinbert ákæruvald. Í vaxandi mæli framselur ríkissaksóknari ákvarðanir sínar í hendur samfélagsmiðla.

Starfsmenn ríkissaksóknara láta fréttast að þeir séu óánægðir með tiltekna niðurstöðu dómstóla. Í framhaldi verða umræður á samfélagsmiðlum um að þetta og hitt sé ótækt.

Í ljósi umræðunnar tekur embætti ríkissaksóknara ákvörðum um hvort skuli áfrýja eða una dómi.

Það liggur í augum uppi að þessi þróun er ótæk fyrir réttarríkið. Þegar ríkissaksóknari framselur ákæruvaldið til samfélagsmiðla er fjandinn laus. Við búum ekki lengur í réttarríki heldur múgræði.

Ef einhverjir fullorðnir starfa enn hjá embætti ríkissaksóknara ættu þeir að grípa í taumana áður en það verður um seinan. Ef það eru aðeins samfélagsmiðlafígúrur sem starfa hjá embættinu á að leggja það niður.


mbl.is Ákæruvaldið áfrýjar til Landsréttar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ragnhildur Kolka

Það er ekki laust við að mann gruni að þessi snúningur (saksóknari-samfélagsmiðlar-fjölmiðlar-saksóknari) sé tekin sérstaklega þegar kynferðismál eiga í hlut. Tíðarandinn er “fórnarlömbum” hliðhollur og því auðvelt að kynda undir múgæsing.

En réttarkerfið á ekki að  knýja áfram með tilfinningalegum uppþotum. Það ætti Guðmundar og Geirfinnsmálið að hafa kennt okkur.

Ragnhildur Kolka, 2.8.2018 kl. 09:02

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband