Áfeng könnun sýnir Samfylkinguna stærsta

Könnun sem tekin var söluhæstu dagana í vínbúðum sýnir stórsókn vinstriflokkanna í stjórnarandstöðunni. Samfylking stærst og í humátt fylgja Viðreisn og Píratar.

Þjóðin er ýmist á barmi örvæntingar þegar hún velur vinstriflokk, samanber hrunið, eða vel hífuð.

En eftir taugaáfall og timburmenn tekur við hversdagsleikinn og lægra fylgi vinstriflokka. 


mbl.is Samfylkingin mælist stærst
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fall hvítu kristnu drengjanna

Kristnir hvítir drengir voru fyrir nokkrum kynslóðum erfingjar heimsins. Um aldamótin 1900 urðu þeir skátar og lærðu að taka við heimsveldi hvítu kristnu foreldra sinna. Jósep Conrad skrifaði um þá sögu, Hjarta svartnættisins, þar sem hugtakið ,,sigrandi spilling" kom fyrir.

Kristnu hvítu drengirnir voru kallaðir á heimavígstöðvarnar fyrir hundrað árum og úthelltu blóði í fjögur löng ár 1914-1918. Margir urðu fráhverfir kristninni, gerðust kommúnistar og nasistar. Hvítu drengirnir háðu annað stríð, 1939-1945, sýnu blóðugra en það fyrra.

Eftir stríðið var búið um drengina í velferðarríki. þeim ungað út til að verða tannhjól í gangverki atvinnulífsins og fara með friði og spekt. Kristni var úthýst fyrir fjölmenningu.

Undir lok aldar var hvítu drengjum kennt að skammast sín fyrir uppruna sinn. Drengjamenning varð að eitraðri karlmennsku.

Skólapláss sem einu sinni voru eingöngu ætluð hvítum kristnum drengjum eru núna frátekin fyrir annað kyn og þel.

Sigrandi spilling hvítu kristnu drengjanna át þá sjálfa. Alveg eins og í sögu Conrad. 


mbl.is Hafna styrkjum fyrir hvíta drengi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Góða fólkið býr til samsæri

Ólifnaður er ekki saknæmt athæfi. Ekki heldur að vera lögmaður og stunda kennslu í Háskóla Íslands. Aftur er nauðgun glæpur, mannrán sömuleiðis og dóp er orð yfir ólögleg fíkniefni.

Lögreglurannsókn verður ekki stunduð í beinni útsendingu með réttlætispáfa sem álitsgjafa.

Það er til marks um samfélagsbrenglun að dómsmálaráðherra er kallaður í fjölmiðla að gefa yfirlýsingu um traust á yfirstandandi lögreglurannsókn. Fjölmiðlaperrar, löglærðir almannatenglar og virkir í athugasemdum eru ekki heppilegasta fólkið til að höndla réttlætið. 


mbl.is Treystir því að lögreglan vinni faglega
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Frjálslynda vinstrið - vald og samfélag

Frjálslyndir vinstrimenn töpuðu síðasta áratug. Svo segja vinstriútgáfur í Bandaríkjunum og núna Will Hutton í Guardian. Hutton er einn af höfundum þriðju leiðar Tony Blair sem átti í byrjun aldar að leggja heiminn að fótum frjálslyndra og vinstrimanna.

Í íslensku samhengi eru Samfylking og Viðreisn í heild sinni frjálslyndir vinstriflokkar. Sneiðar af Sjálfstæðisflokki og Vinstri grænum eru undir sama hatti, meira frjálslyndi í XD (brennivín i búðirnar) en vinstrimennska í VG (skattleggjum ríkar ekkjur), eins og gefur að skilja.

Hvað brást frjálslyndum vinstrimönnum síðasta áratug? 

Til að byrja með fór það framhjá þeim að stjórnmál urðu gildishlaðin á kostnað reikningshalds um efnahagslegan ábata. Holdtekjur gildishlaðinna stjórnmála eru Trump, Brexit, AfD í Þýskalandi, Svíþjóðardemókratar og Salvini á Ítalíu, svo dæmi séu tekin. Siðir og gildi trompa alltaf krónur og aura. Í siðleysi verða efnahagsleg verðmæti merkingarlaus.

Ekki svo að skilja að frjálslyndir vinstrimenn séu siðlausir. Fremur er vandinn sá að þeir hugsa smátt. Á meðan þeir veltu fyrir sér hvort kynin væru þrjú, fimm eða sjö óttuðust hægrimenn að vestræn menning (tvíkynja, auðvitað) væri á hverfandi hveli. Frjálslynd orðræða er naflaskoðun unglings á gelgjuskeiði. 

Seinni grundvallarmistök þeirra vinstrifrjálsu er að skilja ekki eðli valds. Í sinni einföldustu mynd er vald tvíþætt (eins og kynin): þeirra fáu sem boða og hinna mörgu sem breyta eftir boðvaldinu. Þarna á milli þarf að vera samfélag. Þeir sem breyta eftir boðvaldinu telja sig hluta af samfélagi. Án valds er ekkert samfélag, aðeins villimennska, eins og Hobbes sagði okkur fyrir hálfu árþúsundi.

Það er engin tilviljun að fyrstir á Austurvöll að mótmæla eru frjálslyndir vinstrimenn. Ekki heldur er það hending að á framboðslistum slíkra flokka er fólk sem í gamla daga var kallað aumingjar en núna skjólstæðingar félagsþjónustunnar. Jaðarfólk er sneytt þeirri hugsun að tilheyra samfélagi.

Frjálslyndir vinstrimenn breiða yfir skilnings- og þekkingarleysi á valdi með því að óska sér yfirvalds langt í burtu. Evrópusambandið og Sameinuðu þjóðirnar eru vinstrafrjálslyndinu hugstæðar. Hængurinn er sá vald langt í burtu myndar ekki samfélag með þeim sem eiga að hlýða valdinu. Vald langt í burtu verður í besta falli óábyrgt, handahófskennt og tilgangslaust. Englendingar vissu þetta undir Rómverjum, bandarísku nýlendurnar undir Bretum, Frakkar undir einveldinu og Íslendingar undir Dönum. Trúarsöfnuðum er fyrirmundað að skilja þessi einföldustu rök sögu og reynslu. Guðhræddir trúa á almættið en vinstrifrjálsir á loftslagsvá og Grétu spákonu.

Næsti áratugur verður frjálslyndum vinstrimönnum ekki gjöfulli en sá liðni. Stjórnmálahugsun sem ekki skilur vald og samfélag er í raun andófsgelgja, sem eldist ekki af sumu fólki.  

 


Hann var fullur/dópaður

Almenn regla í samfélaginu er að sérhver ber ábyrgð á gerðum sínum. Í fjölskyldum og vinahópum er stundum sagt um einstakling er verður sjálfum sér til minnkunar eða öðrum til vandræða að viðkomandi hafi verið ölvaður eða undir áhrifum annarra efna. Jafnvel að hann hafi átt erfiða æsku, missti vinnuna eða standi í hjónaskilnaði.

Fjölskyldur og vinir vilja fyrirgefa sínum nánustu. Það er falleg og mannleg viðleitni að sjá í gegnum fingur sér við þann sem manni þykir vænt um.

Aftur gengur þessi afstaða ekki í samfélaginu sem heild. Þegar fjölskyldu- og vinatengslum sleppir, og einhver brýtur gegn öðrum, að ekki sé talað um lögbrot, er það ekki lengur neitt elsku mamma.

Menn bera ábyrgð á sjálfum sér.


Ítalir varaðir við Svíþjóð: ofbeldi og nauðganir

Ítalir er varaðir við að ferðast til Svíþjóðar vegna hættu á ofbeldisglæpum, skotárásum og nauðgunum. Sænskur fjölmiðill segir frá aðvörun ítalska utanríkisráðuneytisins.

Fyrir daga fjölmenningar þótti Svíþjóð friðsælt land.

Jafnvel móðurland mafíunnar tekur nú vara á þegnum sínum að heimsækja Svíaríki.


Spilling vandamál í Namibíu

Spilling er vandamál í Namibíu, segir í skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins frá 2018. Yfirvöld framfylgja ekki lögum og embættismenn komast upp með spillta siði óáreittir, kemur fram í skýrslunni:

The law provides criminal penalties for conviction of corruption by officials; however, the government did not implement the law effectively, and officials sometimes engaged in corrupt practices with impunity. There were reports of corruption by individuals in government. The Anti-Corruption Commission (ACC) continued implementation of the four-year National Anticorruption Strategy and Action Plan, aimed at increasing accountability in all areas of government and preventing corruption.

Sérstakt átak til að uppræta spillingu innan ríkisstjórnarinnar gefur til kynna landlæga spillingu.

Fyrir 15 árum var efnt til herferðar gegn opinberri spillingu í Namibíu. Tveim árum síðar var sérstök deild stofnuð til höfuðs spillingu, ACC, sem bandaríska skýrslan vísar í hér að ofan.

Hér á Fróni er reynt að telja okkur trú um að namibísk spilling eigi sér íslenskt upphaf. 


mbl.is Mál sexmenninganna tekið fyrir í dag
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

EES einangrar Ísland frá Bretlandi

Bretland er Íslandi mikilvægara en meginland Evrópu, bæði í viðskiptalegu og menningarlegu tilliti. Bretland er á leið úr félagsskap meginlandsríkjanna, Evrópusambandinu, en sljó og seinfær íslensk yfirvöld binda sitt trúss við EES-samninginn.

Yfirlýsing forsætisráðherra Breta um að allt regluverk ESB fari á haugana eftir Brexit afhjúpar einfeldningslega og grunnhyggna utanríkispólitík Sjálfstæðisflokksins síðustu ára. 

Forystu Sjálfstæðisflokksins er fyrirmunað að hugsa sjálfstætt, samanber 3. orkupakkann, og lætur öll eggin í Brussel-körfuna. Í deilunni um 3. orkupakkann var tækifæri til að senda skýr skilaboð um að hagsmunir Íslands væru fríverslun en ekki yfirþjóðlegt samband við meginland Evrópu. 

Brexit kippir fótunum undan EES-samningnum. Sjálfstæðisflokkurinn situr uppi með Svarta-Pétur.


mbl.is Engin aðlögun að reglum ESB
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Trump er - líka þegar hann er ekki

Frétt um Trump, sem gengur út á að hann sé ekki, þar sem hann þó einu sinni var, í Hollywood-mynd, sýnir styrk pólitísks vörumerkis forseta Bandaríkjanna.

Enginn kemst með tærnar þar sem Trump er með hælana. 

Í forsetakosningunum á komandi ári er Trump með slíkt forskot að jafna má við stöðu Liverpool í ensku deildinni.


mbl.is Klipptu Trump út úr Home Alone
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Seld stúlkubörn og gefin

Lögreglukona á Suðurnesjum spyr hvort nokkur 5 ára stúlka ætli sér í vændi. Svarið hlýtur að vera nei. En vill nokkur 15 ára stúlka eiginmann sem foreldrarnir velja og er e.t.v. nokkrum áratugum eldri? Svarið hlýtur að vera nei.

Nema maður sé múslími. Leiðtogar þeirra í Palestínu, nánar tiltekið ættarhöfðingjar, jafn nútímalegt og það hljómar, harma hækkun giftingaraldurs stúlkna úr 15 árum í 18.

Jafnframt leggjast ættarhöfðingjarnir alfarið gegn aðild Palestínu að sáttmála Sameinuðu þjóðanna um kvenréttindi frá 1979, já 40 ára gömlum sáttmála.

Úr Jerusalem Post, sem greinir frá andstöðu ættarhöfðingjanna: ,,Kvenréttindi stríða gegn arabískri menningu og trú múslíma."

Um leið og vestrænir drengir og karlar eru uppfræddir um skaðræði vændiskaupa ætti einnig að vekja athygli á kerfisbundnu misrétti kvenna í trúarmenningu múslíma. Það er bitamunur en ekki fjár hvort stúlkubarn er selt eða gefið.  


mbl.is Fimm ára stúlkur ætla sér ekki í vændi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband