Þriðjudagur, 3. desember 2019
Stórmál en lítil frétt
Efnahagsmál, s.s. verðbólga og skattkerfi, og kjaramál voru til skamms tíma stórfréttir ár og síð í fjölmiðlum. Nú gerist það að lífskjarasamningar eru lögfestir og þjóðarbúið stendur aldrei betur með lágri verðbólgu og litlu atvinnuleysi.
En stóru fréttirnar verða að neðanmálsgreinum í fjölmiðlum.
Í fréttum er það helst að lögreglustjóri hættir og Jón Gnarr skáldar æskuminningu um rassskellingu.
Fjölmiðlar ávallt með aðalatriðin á hreinu.
Frumvarp um þriggja þrepa skattkerfi samþykkt | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Þriðjudagur, 3. desember 2019
80% kennara eru konur, drengir læra ekki að lesa
Konur eru 80 prósent grunnskólakennara. Æ færri drengir læra að lesa, samkvæmt Pisa-rannsókn.
Kvennamenning grunnskólans með ,,yndislestri" virkar ekki fyrir stráka.
Er ekki kominn tími til að tengja?
Staða íslenskra drengja enn verri en áður | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
Þriðjudagur, 3. desember 2019
RÚV svindlar tvöfalt
RÚV leggur leyndarhjúp yfir umsækjendur um stöðu útvarpsstjóra. Til að auka svigrúm til baktjaldamakks er umsóknarfrestur framlengdur.
Spillingin á RÚV er í skjóli einokunarstöðu. Þessi fjölmiðill er sá eini sem fjármagnaður er beint úr ríkissjóði. Aðrir fjölmiðlar eru við það að deyja drottni sínum en RÚV fær sinn hlut á þurru.
RÚV á vitanlega að leggja niður í núverandi mynd. Þá en ekki fyrr skapast svigrúm fyrir frjálsa fjölmiðlun.
RÚV framlengir umsóknarfrestinn | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)