Hægrisveifla á Íslandi

Sjálfstæðisflokkurinn stöðvar blæðinguna til Miðflokksins, sem þó heldur sínu. Þetta er stóra fréttin í nýjustu könnun á fylgi flokkanna. Stórsókn Miðflokksins síðustu missera virðist halda. Flokkurinn er við steypa Samfylkingu af stalli sem næst stærsta stjórnmálaaflið á þingi.

Sósíalistar taka jólin snemma, eru með mann á alþingi. Vöxtur flokka, sem eru hvor á sínum enda pólitíska litrófsins, veit skarpari pólitísk skil en áður. Sem eru góðar fréttir enda þreytandi að horfa upp á Sjálfstæðisflokkinn taka á sig samfylkingarblæ.

Sósíalistar sækja á kjósendahópa Vinstri grænna, Samfylkingar og Pírata, sem munu hallast til vinstri verði þessi þróun staðfest næstu mánuði og skapa þar með aukið rými fyrir borgaralega flokka á miðjunni.


mbl.is Sjálfstæðisflokkurinn stærstur með 20%
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Jákvætt að efnahagshorfur versni

Hrunið kenndi okkur að spenna bogann ekki of hátt. Eftir sjö feit ár koma sjö mögur, segir í gamalli bók, og haft til marks um að efnahagslegur vöxtur er ekki línulegur heldur kemur hann með rykkjum og skrykkjum.

Við teljum okkur trú um að kerfisbreytingar eftir hrun komi í veg fyrir annað hrun. En kerfisbreytingarnar hafa ekki þurft að standast neina prófraun. Kreppan eftir hrun stóð aðeins yfir í fáeina mánuði. Krónan og samstaða á vinnumarkaði komu okkur á beinu brautina í efnahagsmálum.

Pólitíkin glímir aftur enn við afleiðingar hrunsins. Stjórnmál eru brú á milli fortíðar og framtíðar. Samtíminn er á hverjum tíma á miðri brú og sjaldnast glöggt hvers vegna vegferðin var farin og hvert hún stefnir. Stjórnmál eiga að gefa hugmynd um hvað var og hvert stefnir. En þau líkjast meira drukknum manni en allsgáðum á miðri brú sem gæti farið afturábak eða áfram en líka fallið ofan í hyldýpið.  

Fréttir um versnandi efnahagshorfur eru jákvæðar. Við þurfum að prufukeyra lærdóminn af hruninu, hvort við séum með fyrirkomulagi okkar mála og viðhorfum í stakk búin að takast á við samdrátt og mótbyr.


mbl.is Verri efnahagshorfur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 20. desember 2019

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband