Þriðjudagur, 17. desember 2019
Ónýta Ísland vinstrimanna: pólsk-íslenska dómaramálið
Vinstrimenn, með aðstoð RÚV og heimaríkra lögmanna, báru Ísland út og gerðu þjóðinni skömm til með því að afflytja ástæður þess að Sigríður Á. Andersen, þáverandi dómsmálaráðherra, gætti kynjajafnréttis við skipun dómara í landsrétt.
Ónýta Ísland, var viðkvæði vinstrimanna í málflutningi. Dómur Mannréttindadómstólsins í Evrópu var svindl æskuvinanna Robba og Villa.
Svindlið þjónaði tilgangi sínum. Íslandi var stillt upp sem pólsku vandamáli þar sem ríkisvaldið hlutast til um niðurstöður dómstóla.
Heimaríku lögmennirnir, sem öllu vilja ráða um skipan dómara, breyttu aðferðafræði sinni þar sem hún hélt ekki vatni. Lögmannaelítan sýndi sig dómgreindarlausa í landsréttarmálinu. Enda vinstrimenn þar fyrirferðamiklir.
Horfið frá reiknileið í dómaravali | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
Þriðjudagur, 17. desember 2019
Kristinn og RÚV blekkja - birtu einkapósta
Tölvupóstar Jóhannesar uppljóstrara voru ekki birtir af ,,tillitssemi við almenna starfsmenn fyrirtækisins sem ég er viss um að eru upp til hópa sómafólk," segir Kristinn Hrafnsson ritstjóri Wikileaks. RÚV birtir frétt Kristni til stuðnings. En Kristinn og RÚV fara með rangt mál.
Viljinn birtir fjölmörg dæmi um að tölvupóstar um einkamálefni fóru úr tölvu Jóhannesar á síðu Wikileaks.
Kristinn og RÚV eru flæktir í eigin spuna. Tölvupóstar Jóhannesar voru valdir með það í huga að sýna fram á sekt Samherja og draga fjöður yfir hlut Jóhannesar. Allar líkur stand til að tölvupóstum sem féllu ekki að spunanum hafi verið sópað undir teppið.
Eins og Kristinn sagði í upphafi RÚV-spunans: það þarf að ,,matreiða og verka þessi mál."
Rangt að Jóhannes hafi handvalið tölvupósta | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)