Þriðjudagur, 10. desember 2019
Píratar hata jólin, elska spillingu
Jólin eru ,,tilfinningaleg kúgun" segir einn þingmaður Pírata á meðan annar er hugfanginn af spillingu.
Jaðarhópur eins og Píratar eru nauðsynlegir hverju samfélagi, þjóna sama hlutverki og hirðfífl í konungsgarði forðum.
Umburðalyndi og velmegun þjóðarinnar má lesa úr því að heill þingflokkur er á opinberu framfæri til þess eins að gera uppsteyt á þingi og níða skóinn af samborgurum sínum.
Hótaði að slíta þingfundi vegna framíkalla | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Þriðjudagur, 10. desember 2019
Jón Sigurðsson var Miðflokksmaður
Sveinn Máni Jóhannesson skrifar í nýjasta hefti tímaritsins Sögu að einkunnarorð Jóns Sigurðssonar og fylgismanna hans fyrir þjóðfundinn 1851 hafi verið að landsstjórn Íslands ætti að vera ,,kröftug, concentreruð og í landinu sjálfu."
Frelsishetjan styddi Miðflokkinn í dag. Þar á bæ eru menn með fullveldið á hreinu, öfgalausir í beitingu ríkisvaldsins og einbeita sér að málefnum er varða velferð þjóðarinnar.
Sigmundur Davíð og félagar eiga skilið liðsstyrk Jón Sigurðssonar. Það munar um minna.
Jón fylgjandi ríkisafskiptum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)