Miðflokkurinn er umræða, 3OP-sinnar afrita og líma

Miðflokkurinn stendur fyrir umræðu á alþingi um brýnasta mál þjóðarinnar um þessar mundir, forræði náttúruauðlinda. Vegna umræðu Miðflokksmanna koma æ fleiri fram með það sjónarmið að 3. orkupakkinn skerði fullveldið, síðast Svanur Kristjánsson prófessor í stjórnmálafræði.

Hvað gera orkupakkasinnar? Jú, þeir afrita og líma rök djúpríkisins.

Miðflokkurinn styrkir umræðuna og umræðan styrkir Miðflokkinn. Tali þingflokkur þeirra sem lengst í þágu þjóðarhagsmuna..


mbl.is „Varla gengið út í hið óendanlega“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fasisti og maður fólksins - kjarni Trumpisma

Trump fékk kjör sem forseti Bandaríkjanna og nýtur enn traustra vinsælda. Borgarstjóri Lundúna kallar hann fasista og splæsir merkimiðanum á nokkra fleiri leiðtoga: Vikt­or Or­bán, for­sæt­is­ráðherra Ung­verja­lands, Matteo Sal­vini, inn­an­rík­is­ráðherra Ítal­íu, Mar­ine Le Pen, leiðtoga franska Þjóðarflokks­ins, og  Nig­el Fara­ge, leiðtoga Brex­it-flokks­ins.

Þegar stjórnmálamenn með lýðræðislegt umboð fá ítrekað þann stimpil að vera fasistar gangi þeir gegn pólitískum rétttrúnaði er ástæða til að staldra við og spyrja um afleiðingarnar.

Haldi fram sem horfir verður fasisti virðingarheiti stjórnmálamanna sem mótmæla frjálslyndri alþjóðahyggju og djúpríkinu þar á bakvið. 

Trunp og fleiri stjórnmálamenn af sama skóla ná árangri með einföld og sönn skilaboð: lýðræði þarf landamæri. Án landamæra ríkir siðleysi fjölmenningar sem splundrar samheldni þjóðfélagsins. 

Hagfræði frjálslyndrar alþjóðahyggju, nýfrjálshyggja, ætti að drepa og grafa, segja jafnvel hófsemdarmenn eins og Joseph Stiglitz, sem seint verða sakaðir um Trumpisma.

Síðasta hálmstrá frjálslyndrar alþjóðahyggju er trúin á manngert veðurfar þar sem 16 ára sænsk skólastelpa er sett í hlutverk Jóhönn af Örk sem einfeldningslegur frelsari.

Trumpismi er viðbrögð við öfgum frjálslyndrar aljóðahyggju djúpríkisins.

 


mbl.is Segir Trump eins og 20. aldar fasista
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Trump styður Boris

Verði Boris Johnson formaður Íhaldsflokksins og forsætisráðherra Bretlands getu hann að einhverju leyti þakkað það stuðningi Trump.

Breski Íhaldsflokkurinn er í uppnámi eftir að hafa klúðrað úrsögn Bretlands úr ESB, en þjóðaratkvæðagreiðslan fór fram 2016 og enn eru Bretar fastir í klóm Brussel.

Bretar eru vinafáir í Evrópu en Trump býður þeim faðminn, - verði Boris forsætis.

Sígild pólitík.

 


mbl.is „Yrði frábær forsætisráðherra“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Valdið fer frá alþingi, Áslaug, það er vandinn

Orkupakki ESB er ekki á dagskrá alþingis í þágu íslenskra hagsmuna, heldur erlendra. Íslenskur almenningur er sáttur við raforkumál, fær trygga orku á hagstæðu verði. En íslensk stjórnvöld stóðu ekki vaktina og Ísland var tengt raforkustefnu ESB með orkupakka eitt og tvö þegjandi og hljóðalaust.

Fullur hryllingur orkustefnu ESB rennur upp fyrir Íslendingum með orkupakka 3; einkavæðing orkunnar kemst á dagskrá og yfirstjórn orkumála flyst til Brussel.

Almenningur andmælir. Grasrótarsamtök, Orkan okkar, eru stofnuð. Fundir eru haldnir í stjórnmálaflokkum, t.d. Sjálfstæðisflokknum og Framsókn, þar sem nær allir viðstaddir eru á móti.

En hvað gerir alþingi? Jú, meirihlutinn þar segir að Ísland verði, vegna EES-samningsins, að samþykkja 3. orkupakkann.

Svo kemur Áslaug Arna ritari Sjálfstæðisflokksins og formaður utanríkisnefndar alþingis og segir að ,,valdið er hjá alþingi".

Hvers vegna þessar blekkingar, Áslaug Arna? 

Við getum stöðvað yfirtöku ESB á raforkumálum þjóðarinnar með því að hafna 3. orkupakkanum. Rökin eru okkar megin. Enginn sæstrengur er enn á milli Íslands og Evrópu. Skýr og ótvíræð fordæmi eru fyrir undanþágum í slíkum tilfellum, t.d. er varða reglur um lestir og skipaskurði.

Miðflokkurinn, einn þingflokka á alþingi, hefur staðið í ístaðinu gegn ásælni ESB í íslenska raforku. Miðflokkurinn er merkisberi sjálfstæðismanna. Flokkur Áslaugar Örnu er ESB-úlfur í sauðagæru.


mbl.is Valdið hjá Alþingi óháð fyrirvörunum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband