Fasisti og maður fólksins - kjarni Trumpisma

Trump fékk kjör sem forseti Bandaríkjanna og nýtur enn traustra vinsælda. Borgarstjóri Lundúna kallar hann fasista og splæsir merkimiðanum á nokkra fleiri leiðtoga: Vikt­or Or­bán, for­sæt­is­ráðherra Ung­verja­lands, Matteo Sal­vini, inn­an­rík­is­ráðherra Ítal­íu, Mar­ine Le Pen, leiðtoga franska Þjóðarflokks­ins, og  Nig­el Fara­ge, leiðtoga Brex­it-flokks­ins.

Þegar stjórnmálamenn með lýðræðislegt umboð fá ítrekað þann stimpil að vera fasistar gangi þeir gegn pólitískum rétttrúnaði er ástæða til að staldra við og spyrja um afleiðingarnar.

Haldi fram sem horfir verður fasisti virðingarheiti stjórnmálamanna sem mótmæla frjálslyndri alþjóðahyggju og djúpríkinu þar á bakvið. 

Trunp og fleiri stjórnmálamenn af sama skóla ná árangri með einföld og sönn skilaboð: lýðræði þarf landamæri. Án landamæra ríkir siðleysi fjölmenningar sem splundrar samheldni þjóðfélagsins. 

Hagfræði frjálslyndrar alþjóðahyggju, nýfrjálshyggja, ætti að drepa og grafa, segja jafnvel hófsemdarmenn eins og Joseph Stiglitz, sem seint verða sakaðir um Trumpisma.

Síðasta hálmstrá frjálslyndrar alþjóðahyggju er trúin á manngert veðurfar þar sem 16 ára sænsk skólastelpa er sett í hlutverk Jóhönn af Örk sem einfeldningslegur frelsari.

Trumpismi er viðbrögð við öfgum frjálslyndrar aljóðahyggju djúpríkisins.

 


mbl.is Segir Trump eins og 20. aldar fasista
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Halldór Jónsson

Mauður er ekki óvanur  því að vera kallað'ur nasisti og fasisti henær sem maður stígur á tærnar á kommatittunum alvísu eða sumum netfíflunum sem eru sídritandi heimsku sinni á síður venjulegs fólks. Hjá þeim eer dauðaaök að hrósa Trump eða vara ósammála CO2 bullinu.

Halldór Jónsson, 2.6.2019 kl. 11:00

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband