Miðflokkurinn er umræða, 3OP-sinnar afrita og líma

Miðflokkurinn stendur fyrir umræðu á alþingi um brýnasta mál þjóðarinnar um þessar mundir, forræði náttúruauðlinda. Vegna umræðu Miðflokksmanna koma æ fleiri fram með það sjónarmið að 3. orkupakkinn skerði fullveldið, síðast Svanur Kristjánsson prófessor í stjórnmálafræði.

Hvað gera orkupakkasinnar? Jú, þeir afrita og líma rök djúpríkisins.

Miðflokkurinn styrkir umræðuna og umræðan styrkir Miðflokkinn. Tali þingflokkur þeirra sem lengst í þágu þjóðarhagsmuna..


mbl.is „Varla gengið út í hið óendanlega“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Þorsteinn Siglaugsson

Svanur er að tala um EES samninginn, ekki þriðja orkupakkann.

Það hefur ekkert nýtt komið fram í þrasi Miðflokksmanna um þetta mál. Nákvæmlega ekkert. Alveg sama hversu oft það er endurtekið.

Þorsteinn Siglaugsson, 2.6.2019 kl. 16:29

2 Smámynd: Páll Vilhjálmsson

Svanur ..sagði marga komna á þá skoðun að ef EES samningurinn hafi ekki brotið gegn stjórnarskrá í upphafi, þá geri hann það núna. Ekki aðeins vegna þriðja orkupakkans, heldur fjölda annarra mála." 

Páll Vilhjálmsson, 2.6.2019 kl. 17:44

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband