Pútín er Sesar samtímans

Frjálslynd alþjóðahyggja er úrelt, segir Pútín Rússlandsforseti. Einarðir vinstrimenn og fjölmenningarsinnar, t.d. dálkahöfundur Guaridan, rjúka upp til handa og fóta og fordæma Pútín en viðurkenna jafnframt að forsetinn fer með rétt mál.

Sesar boðaði endalok lýðveldis Rómar á fyrstu öld fyrir Krist. Róm var orðið heimsveldi en stjórnkerfi lýðveldisins var hannað fyrir bændasamfélag í kringum borgina sem Rómúlus er sagður hafa stofnað 753 fyrir okkar tímatal og verð lýðveldi rúmum tveim öldum síðar.

Alþjóðavædd fjölmenning hefur riðið húsum á vesturlöndum frá og með hippakynslóðinni. Grunnurinn var lagður með velferðarkerfinu eftir seinna stríð en hipparnir héldu að staðbundið fyrirkomulag kristinna gilda gæti átt við alla heimsbyggðina mínus kristnu gildin. Allsherjarhrun þessarar grunnhyggnu hugmyndafræði hófst með vestrænni innrás í Írak 2003, útþenslu ESB inn í rússneskt áhrifasvæði nokkrum árum síðar og síðast en ekki síst stórfelldum innflutning á múslímum til vesturlanda, sem þiggja vestræna velferð en fyrirlíta vestræn gildi.

Bakslagið gegn bláeygri fjölmenningu hófst með látum árið 2016 þegar Bretar kusu úrsögn úr ESB, Brexit, og Bandaríkjamenn gerðu Trump að forseta.

Ekki frekar en Sesar fyrir 2050 árum veit Pútín hvað tekur við eftir úreldingu frjálslyndrar alþjóðahyggju. Brútus og félagar í öldungaráði lýðveldisins drápu Sesar áður en hann náði að móta nýtt fyrirkomulag. Öldungaráð samtímans er framkvæmdastjórn ESB. Þar eru fyrir á fleti fyllibyttan Juncker og andlitslausir og ólýðræðislegir embættismenn sem hugsa ekki um annað en maka krókinn.

Ef lýðræðið á ekki að fara fjandans til með frjálslyndu fjölmenningunni þurfa vesturlönd að efla samheldni í sínum þjóðríkjum. Pútín barði samheldni inn í rússnesku þjóðina eftir 75 ára misheppnaða tilraun með kommúnisma, sem lengi var eftirlæti hippakynslóðarinnar.

Skarpur maður, Pútín.


Bloggfærslur 29. júní 2019

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband