Sóttkví virkar á smit og svínvirkar á atvinnulífið

Þjóðin stundar sóttkví og smitvarnir af samviskusemi sem einkennir allan þorra Íslendinga. Mannslíf eru í húfi og allir leggjast á árarnar.

Viðkvæmustu landsmönnum er komið fyrir í einangrun, aldraðir fá ekki heimsóknir og veikir eru heima eða á sjúkrahúsum þar sem heimsóknarbann er í gildi.

Atvinnulífið leggst í dróma þegar ýmist er bannað í þágu sóttvarna að veita þjónustu eða vegna samdráttar í verslun og viðskiptum sem hlýst af samviskusemi almennings að láta sem minnst á sér kræla.

Sóttkví verður hugarástand þjóðarinnar þangað til ljóst verður að heilbrigðiskerfið ráði við fyrirsjáanlegar fjöldainnlagnir. Það gerist um og eftir páska. 


mbl.is Aðeins 21 nýtt smit síðasta sólarhringinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Smitskömm

Vísbending um þjóðfélagsbreytingar er að ný orð skjóta upp kollinum til að lýsa ástandi eða atburðum sem ekki voru áður frásögur af. Orðið smitskömm kemur fyrir í viðtengdri frétt. Fyrir nokkrum dögum sást nafnorðinu kóviti bregða fyrir.

Fyrir áratug fékk annað nafnorð nokkra útbreiðslu, hrunkvöðull. Sagt var að eitthvað væri svo 2007 þegar vísað var í úrelt hugarfar.

Við skiljum heiminn með orðum. Þegar samtíminn breytist þá breytist orðaforðinn.


mbl.is 20 af 24 manna skíðahópi smitaður
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Veiruhættan er minni en fólk heldur

Innan við prósent smitaðra deyja af kórónuveirunni, segir Guardian eftir breska sóttvarnarlækninum. Hlutfallið er enn lægra, segir Ioannidis faraldsfræðingur við Stanford-háskóla í Bandaríkjunum.

Mögulega veldur, þegar upp er staðið, kórónuveiran ekki fleiri dauðsföllum en gengur og gerist í hörðu flensuári.

Yfirvöld, bæði á Íslandi og erlendis, vilja fyrir alla muni forðast ,,ítalskt" ástand þar sem heilbrigðiskerfið hrynur undan holskeflu sjúklinga í andnauð, flestir aldraðir.

Þess vegna eru gerðar ráðstafanir, í hverju landi fyrir sig, sem taldar eru duga til að koma í veg fyrir hrun heilbrigðiskerfa. Sæmilegar líkur eru á að það takist og Ísland gæti orðið þar í sérflokki.

Til að réttlæta víðtækar aðgerðir var ekki slegið á múgæsingu sem tröllríður félagsmiðum og fjölmiðlum, bæði hér heima og í útlöndum. Múgæsingin fær sjálfstætt líf og sækir sér fóður í hamfarafréttir, rétt eins og annar tryllingur, glópahlýnun, sækir sér staðfestingu í hversdagslegum fyrirbærum eins og skógareldum í Brasilíu og Ástralíu.

Múgæsingin gæti varað lengur en farsóttin kennd við kórónu og COVID-19.  


mbl.is Mörkin sett við 20 manns
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

ESB leggur á flótta frá Íslandi

Æðsti embættismaður Evrópusambandsins á Íslandi, sjálfur sendiherrann, tilkynnir flótta héðan ,,í flýti".

Sumir skilja ekki hvers vegna sendiherrann sé að flýja það land í heiminum sem best stendur sig í sóttvörnum.

En, sem sagt, raunveruleg ástæða flótta sendiherrans er sú að hann óttast að eftir faraldurinn sé ekkert Evrópusamband að flýja til - aðeins rjúkandi rústir þess sem var.


mbl.is Sendiherra ESB fór í flýti
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Thunberg-kynslóðin hefnir sín - trúir vísindaskáldskap SÞ

Alþjóðasinnar, með Sameinuðu þjóðirnar sem helsta bakhjarl, bjuggu til herferð um að gamlingjar eyðilögðu plánetuna með manngerðu veðri. Thunberg-kynslóðin svaraði kallinu og hóf fjöldamótmæli á heimsvísu.

Alla þessa öld hafa alþjóðasinnar og Sameinuðu þjóðirnar klappað sama steininn, vísindaskáldskapinn um að maðurinn stjórni loftslaginu og heimsendir sé í nánd. Vísindamenn sem standa undir nafni hafa mótmælt en á þá er ekki hlustað. Gervivísindamenn leggja hugmyndafræðinni lævís rök sem halda ekki máli.

Svo kom kórónuveiran. Hvað gerir unga fólkið? Jú, það hugsar sem svo, samkvæmt breskri könnun, að nú er hægt að losna við sóðalappirnar yfir sextugu með því að dreifa COVID-19 út um allar trissur. Hugsunin er eftirfarandi: slátrum gamlingjum með kóvitköfnun áður en þeir leggja heiminn í eyði með koltvísýringi.

Í Sameinuðu þjóðunum eru menn frávita af hræðslu við rökrétta hugsun unga fólksins sem lærði hjarðhegðun af apaköttunum alþjóðahyggjunnar. Sameinuðu þjóðirnar bjuggu til Thunberg-kynslóðina með endalausum ráðstefnum og falsfréttum um manngert veður.

Kjúklingarnir eru komnir heim að kæfa hænurnar.

Þegar það rennur upp fyrir almenningi að vísindaskáldskapurinn er hugmyndafræði en ekki þekking munu alþjóðasinnar og Sameinuðu þjóðirnar eiga virkilega erfiða daga. Þeir alþjóðafávísu vöktu upp draug sem í bráð verður ekki kveðinn í kútinn. Dauðatollurinn hækkar þegar fólk ánetjast hugmyndafræði en lætur skynsemi lönd og leið.


mbl.is Ungt fólk ekki ósigrandi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Yfirvegað, víðtækt og snjallt - stórsigur stjórnarinnar

Þjóðarfundur ríkisstjórnarinnar um efnahagsaðgerðir vegna farsóttar fer í sögubækurnar sem hrein og tær snilld, að innihaldi, útfærslu og framkvæmd.

Takk fyrir mig.

ps.sérstakur plús til ríkisstjórnar að opna ekki á spurningar blaðamanna. Blaðamenn eru sérfræðingar að týna aðalatriðum en einblína á smáatriði.


mbl.is Aðgerðir upp á 230 milljarða króna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kóviti - spár, traust og æðruleysi

Kóviti er nýtt nafnorð yfir þann sem veit allt betur um kórónuveiruna en yfirvöld sóttvarna.

Áróðursbragð kóvitans er að taka spár um útbreiðslu veirunnar sem heilagan sannleik og bera saman við mældan fjölda smitaðra dögum eða vikum síðar. Kóvitinn segir: sagði ég ykkur ekki það er ekkert að marka yfirvöld, spárnar gengu ekki eftir.

Ekki-kóvitar vita að spár eru ágiskun, kóvitar vilja ekki vita það.

Veruleikinn er sá að enginn veit hvernig farsóttin mun þróast, hvorki hér á landi né í heiminum. 

Kóvitinn ætti að láta af iðju sinni, treysta sóttvarnaryfirvöldum og tileinka sér æðruleysi.


mbl.is 473 smitaðir af kórónuveirunni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Veiran er 3 farsóttir; sú pólitíska varir lengst

Kórónuveiran er þrjár farsóttir í einni. Sú fyrsta er COVID-19 sem er lífshættuleg öldruðum og þeim sem veikir eru fyrir. Spálíkön segja að hún vari í sex til tólf mánuði, með hættu á endurteknum faraldri. Mögulega finnst bóluefni sem heldur COVID-19 í skefjum.

Önnur farsóttin er efnahagsfárið sem hlýst af lömuðu atvinnulífi á meðan barist er við COVID-19. Gjaldþrot, atvinnuleysi og neikvæður hagvöxtur er afleiðingin. Efnahagskerfið tekur við sér nokkrum mánuðum eftir hámark sjúkdómsins, 2021 gæti orðið sæmilegt ár en kannski verðum við að bíða til 2022.

Þriðja farsóttin er sú pólitíska sem mun vara lengst. Við sáum það á hruninu 2008, sem var ,,bara" peningar, að stjórnmálin voru óstöðug lengi eftir að efnahagsmálin voru komin í fínt lag. Stjórnarkreppur, mótmæli á Austurvelli, ris og fall stjórnmálaflokka voru daglegt brauð þótt allir hefðu nóg að bíta og brenna og landið fylltist af útlendingum að taka þátt í góðærinu.

Hrunið 2008 sundraði þjóðinni. Kórónuveiran, sem komið er, sameinar þjóðina. Víst eru einhverjir sem ekki skrifa upp á sóttvarnir yfirvalda en yfir línuna ríkir sátt. Stjórnarandstaðan, sem vön er að rífast um tittlingaskít, Samfó-Logi hótaði nýlega málþófi ef kosið yrði að hausti, grátbiður ríkisstjórnina að fá að komast inn í sáttahlýju samfélagsins.

Munurinn á 2008 og 2020 er að fyrir tólf árum óttaðist fólk um peningana sína, núna um líf sitt og sinna. Peningum fylgir argaþras og öfund, lífshætta kallar á samstöðu.

Á tímum samstöðu er ekki pláss fyrir 8 til 9 stjórnmálaflokka. Það er beinlínis hlægilegt að dreifa samstöðunni á smákóngaveldi kverúlanta sem ekkert leggja til málanna nema leiðindi. Eftirmálar kórónuveirunar drepa tvo ef ekki þrjá stjórnmálaflokka. Farið hefur fé betra.


mbl.is „Við erum öll í sóttkví núna“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Brussel hótaði, Kata og Gulli gáfust upp

Evrópusambandið hótaði að loka á heilbrigðisvörur til Íslands ef ríkisstjórnin tæki ekki þátt í lokun Schengen-svæðisins. Katrín forsætis hringdi í æðsta embættismann ESB í gær og tilkynnti uppgjöf Íslendinga. ESB ræður því hvort landamæri Ísland eru opin eða lokuð.

Gulli utanríkis var áður búinn að segja að lokun Schengen-landamæra væri pólitísk ákvörðun, ekki byggð á rökum farsóttarvarna og hann mótmælti. Sólarhring síðar gafst Gulli upp með Kötu.

Frá Bandaríkjunum berast okkur vinargjafir, lækningatæki, en ESB hótar okkur.

Á blaðamannafundinum í Hörpu á morgun munu Kata og Gulli helst ekki ræða hótun Brussel og uppgjöf ríkisstjórnarinnar. ESB-sinnaðir blaðamenn munu ekki knýja svara.

Harpa stendur þar sem öndvegissúlur fyrsta landnámsmannsins rak að landi, samkvæmt Landnámu. Forfeður okkar flúðu miðstjórnarvald og óskuðu sér annarrar tilveru en að vera undirsátar. Kata, Gulli og kó vinna skipulega að hinu gagnstæða: ESB-Íslandi.


mbl.is Ráðherrar boða til blaðamannafundar í Hörpu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ríkisstjórnin gefst upp - kosningar strax eftir farsótt

Með ákvörðun sinni að loka Íslandi í samkvæmt skipun frá Evrópusambandinu gefst ríkisstjórn lýðveldisins upp á að stjórna landinu.

Ríkisstjórnin hefur ekki umboð til að framselja fullveldi þjóðarinnar til útlendinga.

Krafan er; kosningar strax eftir farsótt.


mbl.is Ísland tekur þátt í ferðabanni ESB
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband