Heimsent áfengi og heimsend veira, nei takk

Áfengi er lýðheilsumál. Baráttan við kórónuveiruna er lýðheilsumál. Peningaleg rök veitingamanna fyrir leyfi að selja áfengi með heimsendum mat eru jafn ógild og rökin fyrir því að við ættum ekki að viðhafa neinar varnir gegn kórónuveirunni.

Hugsunin að baki er sú sama: þeir eru svo fáir sem veikjast - og deyja ef til vill. Við sem ekki eru næm á skaðann af áfengi/veiru eigum ekki að sæta ábyrgð vegna þeirra sem fyrirsjáanlega missa heilsuna.

Stjórnvöld sem hlusta á svona hugsun stunda skipulegt skemmdarverk á lýðheilsu.


mbl.is „Gæti reynst sem plástur á svöðusár“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Glópa-Gummi fær veirupeninga til að berjast gegn vísindum

Umhverfisráðherra fær almannafé til að setja í verkefni sem ,,nýt­ast í bar­átt­unni gegn lofts­lags­breyt­ing­um."

Vísindamenn, sem kunna skil á loftslagsmálum, t.d. Richard Lindzen og Christopher Essex, segja okkur að náttúran ræður ferðinni í loftslagsbreytingum en ekki maðurinn.

Meðalhiti á Íslandi er um 5 gráður. Hér var hlýrra á landsnámsöld en í dag. Fólk deyr fremur af kulda en hita. Loftslagsmál er spurning um þekkingarfræði ekki siðfræði eða pólitík.

Ekkert af þessu skilur Glópa-Gummi sem ætlar að sáldra veirupeningum í vísindaskáldskap um manngert veður.

 


mbl.is 500 milljónir í loftslagsmál
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 26. mars 2020

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband