Laugardagur, 14. mars 2020
Gulli ekki velkominn í Washington, afsögn strax
Gulli utanríkis stórmóðgaði Bandaríkin þegar hann í reiðikasti aflýsti heræfingunni Norðurvíkingi í hefndarskyni við ferðabann Trump. Utanríkisráðherra Bandaríkjanna neitar að tala við Gulla.
Ísland er komið í skammarkrókinn vegna vanstillingar utanríkisráðherra.
Gulli getur ekki verið utanríkis lengur. Þjóðarhagsmunir eru í veði, Gulli verður að víkja.
Fundi Guðlaugs og Pompeos aflýst | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Laugardagur, 14. mars 2020
Björn: Ísland samþykkti 3OP vegna Noregs
Það var ekki vegna íslenskra hagsmuna sem 3. orkupakkinn var leiddur í lög hér á landi. Björn Bjarnason fór fyrir þeirri nefnd utanríkisráðherra sem beitti sér fyrir samþykktinni. Björn skrifar í dag:
Úrlausn þessa máls [þ.e þriðja orkupakkans]skipti Norðmenn hins vegar miklu vegna þess að sæstrengir frá vatnsaflsstöðvum þeirra skapa Dönum, sem treysta mjög á vindorku, orkuöryggi.
En hvers vegna fengu Íslendingar ekki undanþágu? Björn svarar því ekki og sú þögn segir mikla sögu um hve óhagstæður EES-samningurinn er okkur Íslendingum. Hagsmunir Norðmanna ríkja, íslenskir hagsmunir víkja.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Laugardagur, 14. mars 2020
Hávaðinn milli lífs og dauða
Við munum öll deyja. Enginn veit hvenær. Án dauða væri ekkert líf. Á milli þess sem við fæðumst og deyjum er hávaði sem lemur hlustirnar með hverjum andardrætti.
Hávaðinn ærir suma á meðan aðrir heyra takt og hljómfall. Oft eru það rithöfundar og heimspekingar sem kunna helst að lesa merkingu hávaðans milli lífs og dauða.
Einn þeirra er Markús Árelíus sem stóð í miðju argaþrasinu, var keisari Rómarveldis.
Lífið er skoðun, sagði sá rómverski.
Nokkuð snjallt.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)