Veirubónus: vinstrimenn þegja

Fyrir C-19 faraldurinn tóku vinstrimenn reglulega til máls að hóta okkur dauða og tortímingu vegna manngerðs veðurfars. Viðreisn, Samfylking, Vinstri grænir og Píratar minntu okkur í tíma og ótíma á yfirvofandi heimsendi.

Nú þegja vinstrimenn sem fastast en voru áður óstöðvandi í málæði.

Borgarfulltrúi Samfylkingar gat þó ekki á sér setið og gaf yfirlýsingu þar sem efnahagslegum afleiðingum faraldursins var fagnað. Annars er grafarþögn í herbúðum vinstrimanna. 

 

 


97% og þrjú prósentin - ónæmiskerfi þjóðarinnar

Breski sóttvarnarlæknirinn, starfsbróðir Þórólfs íslenska, segir að tveir af hverjum þrem Bretum þurfi helst að fá kórónuveiruna til að byggja upp ónæmiskerfi þjóðarinnar. Þannig yrði ónæmisvörn tryggð til framtíðar. Að öðrum kosti er hætta á að veiran skjóti upp kollinum annað veifið með tilheyrandi heilsuvá.

Þórólfur segir góð tíðindi að aðeins eitt prósent Íslendinga séu smitaðir. Ef sú prósenta helst verða 99 prósent þjóðarinnar óvarin til framtíðar gegn veirunni, sem er lífshættuleg fyrir aldraða og sjúka.

Annað hvort er breski sóttvarnarlæknirinn út í móa eða hann Þórólfur okkar.

Haft er fyrir satt að 97 prósent af þeim sem smitast af kórónuveirunni fái væg eða alls engin einkenni. En um 3% smitaðra deyja.

Bretar ætla að biðja alla yfir 70 ára að fara í sjálfskipaða sóttkví. Sömu tilmæli fara án efa til allra með undirliggjandi sjúkdóma. Þetta er þrjú prósent hópurinn.

Ef sá breski hefur rétt fyrir sér er hrein og klár hörmung að aðeins eitt prósent Íslendinga fái smit. Við yrðum algerlega óvarin gegn kórónuveirunni í framtíðinni.

Þetta er stórt ef.

Viðbót 12:59: Þórólfur okkar er á sömu skoðun og sá breski. Sjá hér. Í framhaldi þarf að svara hversu hratt æskilegt sé að veiran fari yfir. Þúsundir eru e.t.v. í sóttkví að nauðsynjalausu, með tilheyrandi röskun á hversdagslífi og efnahagskerfi.


mbl.is Skimun ÍE bendir til að 1% landsmanna beri veiruna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Alþjóðavæðingin í einangrun

Kórónuveiran er útlensk, nema, auðvitað, í Kína þar sem hún varð til. Sérhvert ríki reynir að einangra sig frá útlensku veirunni. Að faraldri loknum verður alþjóðahyggjan enn í einangrun.

Veiran ferðast með fólki, ekki vörum og þjónustu. Af því leiðir verða takmarkanir á fólksflutningum sjálfsagðar í framtíðinni. 

Faraldurinn kennir þjóðum heims mikilvæga lexíu. Staðbundið vald, ekki alþjóðlegt, virkar til að hemja útlenda vágesti.

Á miðöldum óx staðbundnu valdi fiskur um hrygg í Evrópu þegar álfunni var ógnað úr þrem áttum. Víkingar herjuðu úr norðri, múslímar úr suðri og Ungverjar úr austri. Í tímans rás varð staðbundið vald að þjóðríkjum. 

Þjóðríkið er einmitt skásta fyrirkomulagið til að verja og viðhalda samfélagi.

 

 


mbl.is Útgöngubann á Spáni og hluta Frakklands lokað
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 15. mars 2020

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband