Glópahlýnun: 400 ppm eða 0,04%?

Í glópafræðum um hlýnun af mannavöldum er iðulega sagt að hlutfall koltvísýrings í andrúmslofti er 400 ppm. Vísindamenn, bæði þeir sem eru alvöru og hinir sem eru í trúboði, eru sammála að þetta sé rétt.

En hvers vegna þessi mælieining, ppm? Hún þýðir einingar af milljón.

Ef við breytum ppm yfir í prósentur fáum við að koltvísýringur er 0,04% af andrúmsloftinu.

Við skiljum prósentur en ekki ppm. Hvers vegna er ekki talað um 0,04 prósent? Jú, vegna þess að 400 er stærri tala, er sterkari í áróðursstríðinu.

Einn brandari í lokin um glópahlýnunarfræðin: af þessum 0,04 prósentum af koltvísýringi í andrúmsloftinu eru 98% á ábyrgð náttúrunnar. Maðurinn er aðeins ábyrgur fyrir um 2 prósentum af af öllum koltvísýringi í andrúmsloftinu sem þó er samtals ekki stærra hlutfall en 0,04 prósent.

En auðvitað trúum við á manngert veður. VÍSINDIN SEGJA ÞAÐ.

Hahahahahahaha


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Emil Þór Emilsson

Ef þetta er sagt nógu oft og nógu mikið gert af slæmum fréttum þá fer fólk að trúa vitleysunni.

Þetta hefur ekki verið sett fram áður á þennann hátt fyrir mig amk. 98% náttúran. Sem stemmir við að co2 sem kemur frá t.d. Heklu á hverjum degi er mikið meira en frá allri þjóðinni.

Ég hef heldur ekki skilið hvernig co2 sem er plöntufóður getur verið svona rosalega slæmt

Emil Þór Emilsson, 11.9.2019 kl. 21:00

2 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

Glöggur ertu Páll! Lest þessa heimsenda vitleysu eins Gagn og gaman. Minnir á gamalt sölutrikk í vöruverði kr.14.999.-(í stað 15000.)-í kaupæði munar það svo  miklu í sjón og heyrn. 

Helga Kristjánsdóttir, 11.9.2019 kl. 21:20

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband