Setningu ársins 2020 á Sigríður

,,Þótt sjálfsagt hafi þetta verið nota­leg stund hjá rík­is­starfs­mönn­un­um við hljóðnem­ann þótti mér þetta virðing­ar­leysi þeirra við at­vinnu­rekst­ur í land­inu ekki nota­legt."

Setningu ársins á Sigríður Á. Andersen, þingmaður Sjálfstæðisflokks og formaður utanríkisnefndar.

Í einni setningu afhjúpar Sigríður hjarðmennsku vinstrimanna annars vegar og hins vegar bergmálshellinn sem hjörðin dvelur í.


mbl.is Sendir þáttarstjórnanda Rásar 1 tóninn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kjánahrollur með kryddsíld

Vinstriflokkarnir vilja ræða fjármálaráðherra án grímu en sópa undir teppið grímulausum skorti á bóluefni.

Skylda alþingis er að ræða kortér í lífi ráðherra, segir Logi formaður Samfylkingar.

Þar með er lýkur erindi Samfylkingar.


mbl.is „Aum er þeirra pólitík“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þorgerður Katrín: við erum aumingjar

Án ESB-aðildar er ekki hægt að búa á Íslandi, er áramótakveðja formanns Viðreisnar til þjóðarinnar.

Íslendingar kunna ekki og geta ekki rekið fullveðja samfélag. Í Brussel er aftur uppskriftin að sæluríkinu.

Þorgerður Katrín lætur þess ógetið að Evrópusambandið var stofnað á rústum tveggja öfga, nasisma og kommúnisma. Nasisminn kynnti hugmyndina einn foringi, eitt ríki á meðan kommúnisminn boðaði alræði öreiganna. Evrópusambandið er millivegurinn: eitt ríki undir skrifræði embættismanna.

Sú Evrópuþjóð sem sneyddi að mestu hjá öfgum 20. aldar losna loksins, loksins undan Evrópusambandinu þessi áramót. Líkt og Íslendingar eru Bretar eyþjóð sem kjósa frjáls samskipti i austur og vestur fremur en skrifræðið norður og niður.

Flokkar eins og Viðreisn og Samfylking eru holl áminning um frjálslynda léttlyndið fyrir miðja síðustu öld sem drakk og dansaði á meðan Evrópa tyllti sér á bjargbrún helfararinnar.

 


mbl.is Leita formlegs samstarfs við ESB
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ragnar Þór í VR: verðum fátækari

Forstjóri Icelandair er viðskiptamaður ársins. Ragnar Þór formaður VR fær skammarverðlaunin.

Vegna Ragnars Þórs varð lífeyrissjóður verslunarmanna, LIVE, af milljörðum króna þegar sjóðurinn hafnaði aðild að hlutafjárútboði Icelandair. Þjóðin tók þátt en LIVE sat hjá að kröfu formannsins.

VR ku standa fyrir virðingu og réttlæti. Með Ragnar Þór í brúnni nægir einn bókstafur. F fyrir fátækt.

 


mbl.is Óraunhæft að reka tvö flugfélög á Íslandi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ólafur afturkallar sjálfan sig frá Evrópu

Ólafur Ólafsson keypti Búnaðarbankann undir því yfirskini að erlendur fjárfestir væri meðkaupandi. Ólafur fékk dóm fyrir Al Thani málið, sem var áþekkt leikrit undir formerkjum Kaupþings.

Svo mikla trú hafði Ólafur á skáldskap að hann kærði til Evrópu dómara sem áttu hlutafé í Landsbanka en dæmdu í Kaupþingsmáli.

Afturköllun á kærunni til Evrópu er viðurkenning á að jafnvel fjármálaskáldskapur íslenskra auðmanna á sér takmörk. 

 


mbl.is Ólafur afturkallar kæru til MDE
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bretar sleppa við orkupakka ESB

Brexit-samningurinn tryggir Bretum meira fullveldi en Ísland og Noregur hafa með EES-samningi við Evrópusambandið.

Meðal annars eru Bretar undanþegnir orkupökkum ESB sem jafnt og þétt ganga á fullveldisrétt Íslands og Noregs.

Þetta kemur fram í umsögn norskra stjórnmálamanna um Brexit-samninginn.


mbl.is Undirrita samning Breta og ESB á morgun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Áfengi, eldsneyti og RÚV

Þegar verð á vöru og þjónustu hækkar á neytandinn þess kost að draga úr neyslunni. Hann getur drukkið minna og gengið meira þegar áfengi og eldsneyti hækka í verði.

En þegar RÚV á í hlut bregðast lögmál framboðs og eftirspurnar og einstaklingurinn er sviptur valfrelsi. 

RÚV hækkar áskriftina um áramótin um 2,5 prósent. Og hvort sem manni líkar betur eða verr þarf að borga skylduáskrift að þessum fjölmiðli fárra vinstrimanna.

Það á að heita að við búum í lýðræðisríki. Í réttnefndu lýðræðisríki er skoðanafrelsi en ekki skylduáskrift að einum fjölmiðli sem fámennur minnihluti stjórnar.


mbl.is Dýrara að drekka, reykja og hlusta
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Tilboð um taugaáfall

Þingmenn eins og Helga Vala og Þórhildur Sunna eru með standandi tilboð til þjóðarinnar um taugaáfall.

Til að koma tilboðinu á framfæri kemba þær stöllur frétta- og samfélagsmiðla í leit að fjöður er gæti orðið fimm hænur.

Í samspili með Gróu á Efstaleiti tekst einatt að sprengja púðurkellingar. Fýkur þá dómgreind ístöðulítilla sem heimta nýja stjórnarskrá og inngöngu í Evrópusambandið til að bæta andlega líðan.

 


mbl.is Þingmenn sem hafa ekkert fram að færa
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bóluefnið og bræðurnir á Bakka

Þríeykið plús Svandís heilbrigðis taka á móti bóluefni fyrir fimm þúsund landsmenn. Minnir á söguna af Bakkabræðrum. Svandís pantaði ekki nóg, Þórólfur reddaði en Víðir veiktist. 

Alma landlæknir er í hlutverki föðurins sem kallaði á kútinn. Ekki fyrir sjálfa sig heldur þjóðina.

Fremur lítið er í kútnum, rétt nóg fyrir eitt prósent þjóðarinnar.

 


mbl.is Bóluefnið komið til Íslands
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Brandarakall í þingflokki Vinstri grænna

 „Það er alls ekki hægt að halda því fram að þetta sé lítið mál. Þetta er al­var­legt mál sem mun hafa áhrif á sam­starfið. Hvort það komi brest­ir í sam­starfið er ekki hægt að segja til um.“

Tilvituð orð eru höfð eftir Ólafi Þór Gunnarssyni þingmanni Vinstri grænna sem er læknir í þokkabót.

Var Ólafur Þór að tala um stórkostlegt klúður Svandísar heilbrigðisráðherra í bóluefnamálum þjóðarinnar, klúður sem Þórólfur sótti og Kári reyna að bjarga?

Nei, læknirinn Ólafur Þór hefur engar áhyggjur af því að þjóðin fái ekki bóluefni. Ólafur Þór er aftur með böggum hildar vegna þess að fjármálaráðherra var kortér í samkvæmi sem fleiri en tíu manns sóttu.

Nú getur verið að Ólafur Þór sé að reyna að vera fyndinn. Þá er húmor læknisins smitandi. Á ljósmynd með fréttinni situr hann við hlið kvenmanns. Myndatextinn er eftirfarandi: ,,Ólaf­ur Þór Gunn­ars­son er til hægri á mynd­inni."


mbl.is Málið er alvarlegt og mun hafa áhrif
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband