Jafnvægi á Íslandi, sjálfsmorðshlýnun í heiminum

Náttúran velgir og kælir á víxl, vitum við á Íslandi. Trausti okkar Jónsson rekur skilmerkilega hvernig náttúran gefur og tekur yl og svala síðustu 200 ár hér á Fróni.

Út í heimi er verri sögu að segja. Þar stefnir í sjálfsmorðshlýnun á næstunni ef við hættum ekki að nota jarðefnaeldsneyti, segir Ant­onio Guter­res, aðal­fram­kvæmda­stjóri Sam­einuðu þjóðanna.

Ætli náttúran hætti að virka um leið og við sleppum henni út fyrir landsteinana? Eða getur verið að Guter­res, Gréta Thunberg og Al Gore kunni eitthvað lítið fyrir sér í náttúrufræðum en þess meira í pólitískum áróðri og aðgerðastjórnun til að hræða fólk til fylgis við hindurvitni?

Heimurinn gengur reglulega af göflunum. Ekki vegna manna eins og Trausta Jónssonar heldur af sortinni Guter­res, Thunberg og Gore. 

Náttúran, aftur, heldur sínu striki, bæði gefur og tekur.


mbl.is Meðalhiti í ár lægri en undanfarin ár
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 5. desember 2020

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband