Sunnudagur, 13. desember 2020
Lilja niðurgreiðir Helga og Viðreisn
Helgi Magnússon fjárfestir gerir út stjórnmálaflokk, Viðreisn, og útgáfu, Fréttablaðið og fleiri miðla. Samlegðaráhrif eru töluverð. Fjölmiðlaútgáfa styður við flokksútgerð og á alþingi eru sett lög sem m.a. hafa áhrif á fjölmiðla.
Nú setur Helgi 600 milljónir í útgáfuna enda kosningaár í vændum. Allir raftar skulu á sjó dregnir. Helgi útskýrir að kófið sé ástæðan. Líklega dýrt að láta blaðamenn fylgjast með fundum þríeykisins á einum skjá og skrifa fréttir á annan skjá.
Á alþingi lagði Lilja Alfreðs ráðherra mennta fram frumvarp um fjárhagsstuðning við fjölmiðla. Viðreisn, sem nýlega lagði áherslu á frjálshyggju og einkaframtak, sneri við blaðinu og studdi framlag úr ríkissjóði til fjölmiðla Helga. Samlegðaráhrifin eru sterkari en pólitísk sannfæring.
Helgi setur 600 milljónir inn í Torg | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)