Miðvikudagur, 23. desember 2020
Helgi kynnir 3 flokka vinstristjórn
Auðmaðurinn Helgi Magnússon, sem rekur bæði Fréttablaðið og Viðreisn, kynnir þriggja flokka ríkisstjórn vinstrimanna til sögunnar í frétt um skoðanakönnun. Orðalag Helgaútgáfunnar er þetta:
Þeir þrír flokkar sem hafa verið nokkuð samstíga í stjórnarandstöðu, Samfylking, Viðreisn og Píratar, bæta við sig í heildina. Höfðu 41,1 prósent í september en 42,8 nú.
Miðflokkurinn er, samkvæmt fyrirsögn, helsta hindrunin í vegi þriggja flokka vinstristjórnar.
Könnunin er forsíðuuppsláttur Helgaútgáfu. Myndskreytingin er þriggja dálka mynd af sorgmæddri Katrínu forsætis að faðma kjósanda á Austurlandi, höfuðvígi Miðflokksins. Táknmál fréttar og myndar segir að forsætisráðherra sé miður sín yfir stöðu Miðflokksins.
Minnsta fylgi Miðflokksins frá Klausturmáli | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)