Mánudagur, 28. desember 2020
Tilboð um taugaáfall
Þingmenn eins og Helga Vala og Þórhildur Sunna eru með standandi tilboð til þjóðarinnar um taugaáfall.
Til að koma tilboðinu á framfæri kemba þær stöllur frétta- og samfélagsmiðla í leit að fjöður er gæti orðið fimm hænur.
Í samspili með Gróu á Efstaleiti tekst einatt að sprengja púðurkellingar. Fýkur þá dómgreind ístöðulítilla sem heimta nýja stjórnarskrá og inngöngu í Evrópusambandið til að bæta andlega líðan.
Þingmenn sem hafa ekkert fram að færa | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Mánudagur, 28. desember 2020
Bóluefnið og bræðurnir á Bakka
Þríeykið plús Svandís heilbrigðis taka á móti bóluefni fyrir fimm þúsund landsmenn. Minnir á söguna af Bakkabræðrum. Svandís pantaði ekki nóg, Þórólfur reddaði en Víðir veiktist.
Alma landlæknir er í hlutverki föðurins sem kallaði á kútinn. Ekki fyrir sjálfa sig heldur þjóðina.
Fremur lítið er í kútnum, rétt nóg fyrir eitt prósent þjóðarinnar.
Bóluefnið komið til Íslands | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)