Helgi Seljan: vitni eða sakborningur?

Konan sem byrlaði Páli skipstjóra Steingrímssyni, stal síma hans og kom í hendur blaðamanna var með símanúmer Helga Seljan á hraðvali. Þegar konunni var veitt læknisþjónusta, sem hún þurfti á að halda en vildi ekki þiggja, bað hún að haft yrði samband við téðan Helga, sem þá var fréttamaður RÚV.

Tilræðinu gegn Páli skipstjóra var hrint í framkvæmd 3. maí 2021. Fimm vikum áður úrskurðaði siðanefnd RÚV að Helgi hefði alvarlega brotið siðareglur ríkisfjölmiðilsins. Af þeirri ástæðu sást fréttamaðurinn lítið sem ekkert á skjánum. Enda var nóg að gera á bakvið tjöldin. Nú skyldi frétta aflað með afbrotum.

Blaðamenn RÚV, Stundarinnar og Kjarnans, RSK-miðla, vissu með fyrirvara að Páll skipstjóri yrði gerður óvígur til að hægt væri að stela síma hans og skila tilbaka án þess að skipstjórinn yrði þess var. Þrem dögum fyrir tilræðið var Aðalsteinn Kjartansson, samstarfsmaður Helga á RÚV, fluttur í skyndi yfir á Stundina. Yfirmaður beggja er Þóra Arnórsdóttir og yfirmaður hennar er Rakel Þorbergsdóttir. Öll fjögur eru hætt á RÚV - tilviljun segir Stefán útvarpsstjóri. Sumir trúa á jólasveina í júlí.

Opin spurning er hvort hægt sé að sýna fram á í réttarsal að blaðamenn áttu verknaðaraðild en ekki aðeins hlutdeildaraðild að afbrotinu.

Frá miðjum maí 2021 rannsakar lögreglan byrlun Páls og aðkomu blaðamanna. Þann 14. febrúar 2022 fengu fjórir blaðamenn stöðu sakbornings: Aðalsteinn, Þóra Arnórs, Þórður Snær og Arnar Þór. Nafn Helga var ekki nefnt.

Sakborningarnir töfðu rannsóknina, mættu ekki í skýrslutöku fyrr en í ágúst í fyrra. Til stóð að ákæra í febrúar nýliðnum. Nýr vitnisburður leiddi lögregluna á spor gagna sem gætu varpað ljósi á atburðarásina vikur og daga áður en Páli var byrlað.

Lögreglan er með gögn sem sýna að símtöl fóru á milli blaðamanna og byrlara skipstjórans. Innihald símatala er óþekkt.  Öllum tölvupóstum var eytt eftir að blaðamenn urðu varir við lögreglurannsóknina. Nýju gögnin, sem ekki er hægt að staðfesta að lögreglan hafi komist yfir, eru einmitt tölvupóstar sem fóru á milli blaðamanns eða blaðamanna annars vegar og hins vegar konunnar er byrlaði og stal.

Upphaflegir ákæruliðir gegn blaðamönnum snerust um viðtöku þeirra á stolnum gögnum og hvernig þeir fóru með þau gögn sem voru einkaeign Páls, sum mjög persónuleg eins og gefur að skilja. Í síma fólks er meira og minna allt einkalíf þess. Staðsetningarbúnaður í síma Páls sýnir ferðalag símans frá gjörgæslu Landspítalans á Efstaleiti. Þar afrituðu blaðamenn símann áður en honum var skilað. Smitrakningarforrit tækisins varðveitti upplýsingar um hvaða símar voru innan nálægðarmarka.

Lögreglan spurði ekki blaðamenn í skýrslutöku hvernig þeir komust yfir síma Páls. Gögnin úr símanum staðfestu hlutdeildaraðild.

Fáist staðfesting, sem heldur fyrir dómi, að blaðamenn hafi lagt á ráðin og e.t.v. hvatt til að Páll yrði gerður óvígur til stela mætti síma hans og skila án þess að hann yrði var við er hætt við að ákærurnar verði alvarlegri. Í það minnsta líkamsárás með byrlun ef ekki tilraun til manndráps.

Helgi Seljan er margverðlaunaður blaðamaður eins og sakborningarnir fjórir. Í gær fær hann enn ein verðlaunin frá glæpamannafél...afsakið Blaðamannafélagi Íslands.

Enginn blaðamaður á íslenska málsvæðinu spyr Helga Seljan einfaldrar spurningar:

Hvort ertu vitni eða sakborningur, Helgi?

Blaðamennska á Íslandi gengur á síðkastið helst út á það að hylma yfir afbrotum sem blaðamenn eiga aðild að - beina eða óbeina. Yfirhylming með verðlaunum og þögn er aðferð þeirra sem eru komnir í öngstræti. Meðvirkni aðstandenda gerir illt verra.

 


mbl.is Sunna fékk Blaðamannaverðlaun ársins
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fjölmiðlar gegn tjáningarfrelsi og fylgjandi glæpum

Ritstjóri Heimildarinnar, Þórður Snær Júlíusson,  er á móti tjáningarfrelsi. Ritstjórinn stefnir bloggara fyrir dóm að segja almælt tíðindi. Þórður Snær er sakborningur í lögreglurannsókn á byrlun Páls skipstjóra Steingrímssonar, stuldi á síma hans og brota á friðhelgi.

Heimildin birtir í gær ítarlega frétt undir fyrirsögninni ,,Það er hreinlega vegið að tjáningarfrelsi fjölmiðla á Íslandi í dag".

Fréttin er endursögn umræðu á alþingi sem Jódís Skúladóttir þingmaður Vinstri átti frumkvæði að.

Jódís sagði í fyrri ræðu sinni að frjálsir fjölmiðlar væru hornsteinn lýðræðisins, fjórða valdið. Þeir veittu þingmönnum nauðsynlegt aðhald og drægju athyglina að þeim málefnum sem brýnust væru hverju sinni.

Í öllum vestrænum ríkjum þætti stórfrétt að fimm blaðamenn, allir nema einn með bein tengsl við ríkisfjölmiðilinn, séu sakborningar í lögreglurannsókn.

En íslenskir fjölmiðlar þegja þunnu hljóði. Bloggari sem segir fréttir af málinu fær á sig málssókn - frá sakborningi.

Hvað gerir blaðamannastéttin sjálf? Jú, hún veitir sakborningum verðlaun. Upplýst var 14. febrúar á liðnu ári um fjóra sakborninga. Einum og hálfum mánuði síðar fengu þrír sakborningar verðlaun Blaðamannafélags Íslands. Stéttafélag blaðamanna telur sig ríki í ríkinu og að félagsmenn sé friðhelgir þótt þeir eigi aðild að alvarlegum afbrotum

Fjölmiðlar þegja yfir aðkomu blaðamanna að glæpum og stéttarfélagið verðlaunar blaðamenn grunaða um afbrot. Þetta myndi ekki gerast í nokkru vestrænu ríki, - nema Íslandi. Hér er ekki ekki allt með felldu í málefnum blaðamanna og fjölmiðla.

Blaðamenn og málpípur þeirra á alþingi segja þann vanda helstan á fjölmiðlum að þeir fái ekki nógu mikla fjármuni úr ríkissjóði. Hér eru höfð endaskipti á sannleikanum. Fjáraustur ríkisins gerir fjölmiðla ábyrgðalausa og blaðamenn siðlausa. Fjölmiðillinn sem mesta fjármuni fær, RÚV, er miðstöð glæpa og siðleysis.

Í hvað yrði aukið ríkisfé notað? Jú, til að höfða mál gegn bloggurum sem skrifa fréttir annars vegar og hins vegar til að greiða sakarkostnað blaðamanna er stunda glæpi.

Á meðan ríkið fjármagnar fjölmiðla verður ekki sú uppstokkun sem nauðsynleg er til að blaðamennska hér á landi verði húsum hæf.


Hatur á alþingi

Katrín forsætis og Helga Vala þingmaður Samfylkingar ræddu hatur á alþingi. Tilefnið er ætlun Katrínar að efna til námskeiða fyrir opinbera starfsmenn um afleiðingar hatursorðræðu. Helga Vala sagði ekki vanþörf á að þingmenn færu á námskeiðið

Ég verð að segja að ég hef miklar áhyggjur af því hvernig við leyfum okkur að tala hérna inni. Hvernig við leyfum okkur að kynda undir ýmiss konar skautun og hatursorðræðu beinlínis. Ekki kynda undir heldur beinlínis ástunda hatursorðræðu hér í þingsal. Það leyfa ákveðnir þingmenn sér það að mínu mati.

Ekki fóru þær stöllur nánar út í hverjir iðkuðu helst hatur gegn hverjum. Af samhenginu má ráða að helstu þolendur séu þeir sem kalla sig hinsegin fólk.

Eins og margt annað í menningunni er orðræðan um hatur innflutt. Verður að leita til útlanda að fyrirmyndum fyrir hálfkveðnar vísur Katrínar og Helgu Völu.

Í bresku útgáfunni Telegraph er í dag ítarlegt viðtal við samkynhneigða konu, Kathleen Stock, sem varð fyrir slíku hatri að hún fyrir tveim árum hrökklaðist úr starfi sem háskólaprófessor.

Stock vann sér það til óhelgi að segja kyn skipta máli. Hún tók þátt í umræðu og gaf út bókina Efnislegar konur þar sem hún andmælti þeirri tískuhugsun að karlar gætu skipt um kyn si svona. Ástæða andmælanna er að Stock og fleiri samkynhneigðar konur tóku eftir að karlar taka í vaxandi mæli upp á því að gerast konur til að komast inn á sérrými kvenna. 

Karlar sem skipta um kyn eru kallaðir transkonur. Mörgum konum, ekki síst samkynhneigðum eins og Stock, finnst illa að sér vegið með innreið karla inn í heim kvenna með forskeytið trans að vopni.

Stock er femínisti og býr sem slík við uppnefnið TERF, róttækur femínisti með transfóbíu. Hún segist í viðtalinu ekki lengur kippa sér upp við hatursorðræðuna en vill leggja sitt af mörkum til að femínískar samkynhneigðar konur fái um frjálst höfuð strokið og sæti ekki ofsóknum af hálfu transfólks. Tilefni viðtalsins er átak Stock og tenniskonunnar Martínu Navratilovu að vekja athygli á bágri stöðu samkynhneigðra kvenna.

Samkynhneigðar konur eru minnihlutahópur sem verður fyrir ofsóknum annars minnihlutahóps er kennir sig við trans. Hér er komin ástæðan að Katrín forsætis og Helga Vala þingmaður tala í hálfkveðnum vísum. Báðar höfða þær til minnihlutahópa, bara ekki sömu hópanna.

Menningarstríð minnihlutahópa getur tæplega orðið tilefni herferðar stjórnvalda gegn almenningi með ásökunum um að hatursorðræða sé alvarlegt samfélagsmein. Fámennu kjósendahóparnir að baki Katrínu forsætis annars vegar og hins vegar Helgu Völu ættu fremur að slíðra sverðin og finna málamiðlun.

Sígild málamiðlun í anda Þorgeirs Ljósvetningagoða yrði eftirfarandi. Kyn skiptir máli, en sérhver einstaklingur má í huga sér vera af hvaða kyni sem vera skal. Prívatkyni á ekki að troða upp á aðra.

Stundum þarf dómgreind miðaldra hvítra karla til að greiða úr öfgaflækjunni.

 

 


Veður-Grýlan og manngæskuheimska

Fréttin segir frá tilraunum vestrænna stjórnvalda til að fela skort á hlýnun áratuginn eftir aldamót. Byggt er á umfjöllun Daily Mail frá 2013. Síðan eru liðin tíu ár. Er hlýnun vandamál?

Nei, við búum að nákvæmum mælingum á hitastigi jarðar frá 1979 þegar gervihnettir voru teknir í notkun við að mæla hitastig andrúmsloftsins. Niðurstöður birtast mánaðarlega. Samkvæmt yfirliti hefur hiti jarðar hækkað um 0,13 C á áratug s.l. rúm 40 ár. Það þýðir hækkun um eina gráðu á öld, 100 árum.

Eru það hamfarir? Nei, það var hlýrra á miðöldum en það er í dag. Grænlandsjökull upplýsir. Veðurtímabil sem kallast litla ísöld stóð yfir frá um 1300 til 1900. Ef ekki hefði hlýnað værum við enn á litlu ísöldinni.

Allt eru þetta staðreyndir, sannanlegar og kallast þekking. Hvers vegna í veröldinni er talað um hamfarahlýnun? Einfalda skýringin er að frá í kringum 1980 verða til ný trúarbrögð sem ákalla Veður-Grýlu. Hún býr til manngert verður, samkvæmt skurðgoðadýrkendum.

Manngæskuheimskir blóta Veður-Grýlu með því að fórna hagkvæmasta eldsneyti sem völ er á, bensín og dísil. Heimsbyggðin verður fátækari, ekki síst þjóðir Afríku sem fá ekki aðgang að ódýrasta orkugjafanum. Veður-Grýlu verður að blóta. Þjáning og trú haldast í hendur hjá öfgasöfnuðum.

Nú hefur þýska ríkisstjórnin ákveðið að manngert veður gæti kostað Þýskaland billjón evra fyrir 2050, samkvæmt viðtengdri frétt.

Borgaraleg útgáfa í Þýskaland, Die Welt, segir útreikningana að baki hreint bull og kallar efnahagsmálaráðherra landsins, græningjann Robert Habeck, katastrófu.

Allir með eitthvað á milli eyrnanna vita að veður er breytilegt. Trúarsöfnuðurinn kallar allt veður loftslagsbreytingar. Loftslag, samkvæmt vísindum, er veðurfarsbreyting yfir langan tíma, 30 ár og lengur. Að tala um loftslagsbreytingar frá ári til árs er merkingarleysa. Það er ekki loftslagsbreyting þegar styttir upp að kveldi rigningardags.

Síðasta ísöld, þegar stór hluti jarðar var hulinn jöklum, gaf eftir fyrir 11 þúsund árum. Á jarðsögulegum tíma er það í gær, - jörðin ku vera um 4,5 milljarða ára gömul.

Veður er ekki manngert, heldur náttúrufyrirbæri. Menn kunna enn svo lítil skil á veðurkerfum jarðar að spár um veður, sem mark er á takandi, eru ekki gerðar nema 5 til 7 daga fram í tímann. En svo stíga fíflin á stokk og segja það verði hlýrra eftir 30 ár.

Trúarhiti og heimska er hættulegasti persónuleikinn. Fólk haldið þeirri röskun gerir öðrum illt í nafni mannúðar.

 


mbl.is Gæti kostað Þjóðverja næstum billjón evra
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hraðferð hópmorðs, byltingin 1917

Alþingi efnir til ,,hraðferðar" þingsályktunar um að hungursneyð í Úkraínu fyrir 90 árum sé skilgreind sem hópmorð. Ábyrgur fyrir hópmorðinu er ekki Rússi heldur Georgíumaðurinn Jósef Stalín.

Stalín fullframdi byltinguna 1917 þegar kommúnistar náðu völdum í Rússlandi og settu saman Sovétríkin fimm árum síðar - með Úkraínu innanborðs.

Hópmorðið kennt við Holodomor er bein afleiðing af vinstrimennskunni sem í tísku var fyrir einni öld.

Samyrkjubúskapur með ríkistilskipun er upphaf hungursneyðarinnar. Blekkingar og innræting fylgdu. Alexander Wat segir í Öldinni minni: sveltandi bændum af samyrkjubúi var smalað í kvikmyndasal þar sem sýnd var ræma af veisluborði sem svignaði undan kræsingum. Nær hungurmorða bændum var talin trú um að þetta væri veruleikinn en ekki sá sem þeir börðu augum utandyra.

Arftakar kommúnisma, sem eiga fulltrúa á alþingi Íslendinga, ættu að nota tækifærið, líta um öxl, draga lærdóma og játa gamlar syndir.

Vinstrimenn samtímans horfast ekki í augu við fortíð sína. Þeir eru uppteknir að gera jörðina að alþjóðavæddu samyrkjubúi. Innrætingin í dag gengur út á að verði miðstýrðum áætlunarbúskap ekki hrint i framkvæmd muni mannkyn deyja út af völdum loftslagsbreytinga. 

Ef þingheimur ætlar að álykta um eitt og stakt hópmorð vinstrimanna fyrr á tíð yrði það eins og að fjöldamorðingi játi umferðalagabrot. Aukaatriði er blásið upp til að fela aðalatriðið.


mbl.is Viðurkenni Holodomor sem hópmorð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Finnur Þór, síðasta hálmstráið í Namibíumálinu

Síðasta hálmstrá RÚV og Heimildarinnar (Stundin/Kjarninn) í Namibíumálinu er Finnur Þór Vilhjálmsson saksóknari og bróðir Inga Freys blaðamanns Heimildarinnar. Finnur Þór heldur málinu enn opnu af hálfu embættis  héraðssaksóknara þótt undirstöður brotni ein af annarri.

Finnur Þór er þekktur fyrir ,,rannsóknir" langt fram yfir síðasta söludag. Hann hélt systkinum kenndum við Sjólaskip í óvissu í rúm 12 ár áður en málið var fellt niður. Á meðan skrifaði Ingi Freyr bróðir hans fréttir sem héldu fram sekt systkinanna. Þau voru saklaus. Samvinna bræðranna, saksóknarans og blaðamannsins, var tekin til rannsóknar af ríkissaksóknara. Þeirri rannsókn var hætt án skýringa

Sjólaskipaaðferðinni er beitt í Namibíumálinu. Hér raunar skaffaði Ingi Freyr bróður sínum málsgögnin, sem eru þó heldur rýr í roðinu. Jóhannesarguðspjall síðara er vegið og léttvægt fundið, bæði á Aftenposten Innsikt og í Namibíu. Norðmenn báðust afsökunar og Namibíumenn nota ekki vitnisburð uppljóstrarans.

Fyrir fjórum mánuðum sagði yfirmaður Finns Þórs, Ólafur Þór Hauksson héraðssaksóknari, að Namibíurannsókninni væri svo gott sem lokið. Í byrjun árs tilkynnti Skatturinn ­niðurstöðu á ítarlegri úttekt á rekstri Samherja og tengdra félaga árin 2012-2018. Ekkert saknæmt fannst

Skatturinn fór með veigamesta þátt Namibíumálsins. Kjarni málsins er ásaökun Jóhannesar Stefánssonar uppljóstrara um að Samherji hafi stundað stórfelldar mútur í Namibíu til að tryggja sér kvóta í hrossamakríl. Skatturinn hefði fundið ummerki um mútugjafirnar í bókhaldinu. Eins og menn vita eru mútur ekki frádráttarbærar til skatts. Ekkert saknæmt fannst.

Til að halda málinu gangandi lék Finnur Þór biðleik, þegar hann varð þess áskynja að Skatturinn sæi ekkert athugavert við bókhald Samherja.

Finnur Þór skrifaði, sem sagt, bréf til Namibíu stuttu áður en yfirmaður hans tilkynnti að skammt væri í lok rannsóknar. Bréfið er dagsett 17. október s.l. haust, þ.e. þremur árum eftir að rannsókn hófst. Bréfið ber með sér að lítið sem ekkert hafi gerst í rannsókninni í heil þrjú ár. Embættið lagðist í dvala á meðan RSK-miðlar úthrópuðu Samherja fyrir að stunda mútur. Vinstrimenn á alþingi tóku undir. Fjölmiðlaspillingin tekur á sig ýmsar myndir.

Tilfallandi athugasemd fjallaði um bréf Finns Þórs til Namibíu og sagði m.a.

Finnur Þór óskar eftir upplýsingum, sem stórundarlegt er að hann viti ekki nú þegar, t.d. um verðið á hrossamakríl á namibískum fiskmarkaði frá árinu 2012. 

Íslenski saksóknarinn er í veiðiferð að fiska í gruggugu vatni. Hann spyr opinna spurninga um hvort namibísk yfirvöld hafi fundið eitthvað sem gæti hjálpað til við rannsóknina hér heima. Það skýtur skökku við þar sem fram kemur í bréfinu að Finnur Þór hafi fundað með Namibíumönnum í tvo heila daga í Haag í Hollandi síðast liðinn maí auk fjarfunda. Ekkert bitastætt hefur komið fram á þeim fundum, en áfram skal dorgað í von um að eitthvað komi á krókinn.

Í bréfinu kemur fram að saksóknari hefur sent töluvert af gögnum frá Íslandi til Namibíu. Þá var fundur í Reykjavík í júní í sumar þar sem upplýsingar voru veittar. Í því ljósi er kúnstugt að yfirstandandi réttarhöld í Namibíu snúast eingöngu um skattskil en ekki mútur. Ályktunin sem má draga er að samanlögð gögn í Namibíu og á Íslandi sýna ekki fram á neinar mútugjafir.

Samantekið lítur málið þannig út að Finnur Þór skrifar bréf til Namibíu um það leyti sem hann fréttir að skattrannsókn á Samherja sé að ljúka án þess að nokkuð saknæmt finnist. Bréfið er þannig skrifað að engin von er til þess að Namibíumenn svari því nema eftir dúk og disk, - en líklega aldrei. Finnur Þór er kominn með afsökun að halda málinu opnu næstu árin, segist bíða eftir upplýsingum sem aldrei koma.

Aftenposten Innsikt baðst afsökunar á að hafa birt ásakanir Jóhannesar Stefánssonar um mútur Samherja til namibískra embættis- og stjórnmálamanna. Skatturinn hefur fínkembt bókhald Samherja en ekki fundið nein ummerki um óeðlilegar greiðslur í Namibíu. En Finnur Þór, liðsmaður RSK-miðla hjá embætti héraðssaksóknara, þverskallast við að loka málinu sem jafnvel yfirmaður hans segir að sé gott sem dautt hross.

Finnur Þór er síðasta hálmstráið í stórfelldu samkrulli opinbers embættismanns og fjölmiðla að ,,taka niður" eyfirskt útgerðafélag. Þórður Snær ritstjóri, yfirmaður Inga Freys bróður saksóknara, kennir svona hegðun við ,,spillingarmentalítet". Til er einfaldara orð: spilling.

 

 

 


RÚV eftir afsökun Aftenposten

Aftenposten Innsikt baðst afsökunar að hafa birt ásakanir Jóhannesar Stefánssonar uppljóstrara í garð Samherja um mútugjafir í Namibíu. Danski blaðamaðurinn Lasse Skytt skrifaði norræna útgáfu af Kveiksþætti RÚV frá 12. nóvember 2019.

Skytt er lausablaðamaður og seldi Aftenposten Innsikt samantektina. Eftir að hún birtist í febrúarútgáfu tímaritsins fékk ritstjórinn ábendingar um að fréttin héldi ekki máli þar sem aðeins einn væri til frásagnar, - Jóhannes Stefánsson.

Tine Skarland ritstjóri Aftenposten Innsikt ákvað að hefja rannsókn á samantekt Skytt þar sem ekki virtist allt með felldu. Skytt er beðinn að benda á fleiri heimildir en Jóhannes Stefánsson sem staðfesta að Samherji hafi greitt namibískum stjórnmála- og embættismönnum mútur í skiptum fyrir kvóta. Þessar heimildir gætu verið dómsskjöl, vitnisburður annarra eða tölvupóstar þar sem lagt er á ráðin. 

En Skytt, sem tók ítarlegt viðtal við Jóhannes, gat ekki lagt fram eina einustu heimild sem styður frásögn uppljóstrarans. Enga. Samt stendur dómsmál yfir í Namibíu. En þar er óvart Samherji brotaþoli en ekki gerandi. Tilfallandi athugasemd fjallaði um dómsmálið þar syðra og sagði

Samherji einfaldlega keypti kvóta af Fishcor og greiddi fyrir samkvæmt gildandi lögum og reglum. Samherji er brotaþoli, útgerðin var blekkt af namibískum embættismanni, undirmanni Esau.

Skytt gat sem sagt ekki stutt ásakanir Jóhannesar gögnum. Hvað gera bændur þá? Ef um er að ræða fagmenn sem bera virðingu fyrir sjálfum sér og starfinu biðjast þeir afsökunar á að hafa hlaupið á sig og birt sem fréttir tilhæfulausar ásakanir.

Tine Skarland ritstjóri Aftenposten Innsikt bað lesendur sína afsökunar með ítarlegum pistli þar sem beðist er velvirðingar á að verkferlar útgáfunnar hafi brugðist. Í yfirlýsingu Aftenposten Innsikt segir m.a.

Greinin hafði að geyma fjölda staðhæfinga og ekki kom nægilega vel fram að umræddar staðhæfingarnar væru einhliða frásögn uppljóstrarans Jóhannesar Stefánssonar af málsatvikum.

Afsökun Aftenposten Innsikt er ítarleg og án fyrirvara. Beðist er afsökunar á lélegri blaðamennsku með einhliða frásögn. Fjölmiðill sem flytur staðhæfingar einnar heimildar, Jóhannesar í þessu tilviki, verður að gera grein fyrir trúverðugleika heimildarinnar. Það var ekki gert. Ástæðan liggur í augum uppi. Jóhannes er afar ótrúverðug heimild. 

Ferill Jóhannesar sýnir ógæfumann. Eftir að hann komst í sviðsljósið gerði hann sjálfan sig að fórnarlambi og bjó til villtar samsæriskenningar.

Berast nú böndin að RÚV. Var gerð innanhússrannsókn á vinnu Helga Seljan og Aðalsteins Kjartanssonar sem gerðu Kveiksþáttinn er sýndur var í nóvember 2019? Næg ástæða er til að þýfga Helga um gögn, þar sem hann er með brotasögu. Helgi skáldaði skýrslu í fyrri atlögu sinni að Samherja, sem kallast Seðlabankamálið. Vann RÚV heimavinnuna sína og gekk úr skugga um að ásakanir Jóhannesar uppljóstrara héldu máli?

Svarið er nei. Helgi, Aðalsteinn og ritstjóri Kveiks, Þóra Arnórsdóttir, fengu að leika lausum hala og stunda málafylgju en ekki blaðamennsku. Þríeykið bjó ekki við neitt aðhald eða eftirlit. Þegar tækifæri gafst til, tveim árum eftir Kveiksþáttinn, að komast yfir síma Páls Steingrímssonar skipstjóra hjá Samherja með byrlun og þjófnaði stóð ekki á siðlausum fréttamönnum á Glæpaleiti. 

Helgi, Aðalsteinn og Þóra eru ekki lengur starfsmenn RÚV. Það breytir ekki að ríkisfjölmiðillinn verður að gera hreint fyrir sínum dyrum og útskýra hvernig það gerðist að fréttamannaklíka komst upp með vinnubrögð sem eiga ekkert skylt við blaðamennsku og fréttaflutning.

 


Namibíumálið: búið til á Ísland, jarðað í Noregi

Namibíumálið er með fæðingardag, 12. nóvember 2019. Kveiksþáttur RÚV var sýndur þann dag. Kynntur var til sögunnar Jóhannes uppljóstrari Stefánsson, eina heimildin fyrir meintum mútugjöfum Samherja til namibískra embættis- og stjórnmálamanna.

Jarðaför Namibíumálsins fór fram í Noregi 1. mars 2023. Þann dag birtist afsökun norska stórblaðsins Aftenposetn Innsikt. Lykilsetningin er eftirfarandi:

Aftenposten Innsikt hefur enga stoð fyrir þeirri fullyrðingu að Jóhannes Stefánsson hafi komið fram „fyrir hönd“ Samherja í mútumáli til manna í Namibíu né að samningur um eitthvað slíkt hafi verið gerður á milli Samherja og namibískra aðila. Um er að ræða ásakanir Jóhannesar Stefánssonar

Jóhannes Stefánsson er eina heimildin um að Samherji hafi stundað mútur í Namibíu. Allt Namibíumálið byggir á einum manni sem, frómt sagt, er ekki trúverðug heimild. Í blaðamannskólum er kennt að einnar heimildar fréttir beri að varast og því meira sem fréttamálið er stærra.

Þegar heimildin er hatursfullur eiturlyfjafíkill og stórtækur vændiskaupandi, sem hringir í fólk og hótar limlestingum og lífláti, þarf ekki að kunna blaðamennsku til að átta sig á að ekki er um að ræða góðan pappír.

Afsökun Aftenpostin Innsikt 1. mars kemur í kjölfar forsíðugreinar tímaritsins í febrúar. Danskur blaðamaður, Lasse Skytt, skrifaði þar norræna útgáfu af Kveiksþætti RÚV frá 2019. Skytt fékk nýjustu uppfærsluna frá Jóhannesi. Þegar búið er að fara yfir fréttina af ritstjórn Aftenposten Innsikt er niðurstaðan afgerandi. 

,,engin stoð" er fyrir fullyrðingu Jóhannesar Stefánssonar.

Hvers vegna birti RÚV, í félagi með Kjarnanum og Stundinni (nú Heimildinni) staðlausa stafi Jóhannesar uppljóstrara? Jú, RÚV og fylgimiðlar stunda ekki blaðamennsku heldur málafylgju. RÚV ætlaði að ,,taka niður" Samherja og nota til þess ásakanir Jóhannesar.

Namibíumálið er önnur atlaga RÚV að Samherja. Sú fyrri, Seðlabankamálið, hófst 2012. Þá var eina heimildin fölsuð gögn sem Helgi Seljan veifaði framan í myndavélar RÚV um leið og hann ásakaði Samherja um stórfelld brot á þágildandi gjaldeyrislögum. Ítarleg rannsókn og dómsmál leiddu í ljós sakleysi Samherja og óvönduð vinnubrögð RÚV. 

RÚV og fylgimiðlar eru í pólitísku bandalagi með vinstriflokkunum í herförinni gegn Samherja, bæði í Seðlabankamálinu og Namibíumálinu.

Þeir sem fylgjast með pólitískri umræðu hafa tekið eftir að stjórnmálamenn eru steinhættir að tala um Namibíumálið. Svo dæmi sé tekið hefur nýr formaður Samfylkingar ekki sagt eitt aukatekið orð um málið. Ekkert, núll, nada.

Logi Einarsson forveri Kristrúnar lét gamminn geisa á sínum tíma, fékk jafnvel eiginkonuna, héraðsdómara, í lið með sér til að skrifa dóm í þágu fréttamanns RÚV og Heimildarinnar, Aðalsteins Kjartanssonar. Þeim dómi var hnekkt í landsrétti. Ekki löngu síðar hætti Logi sem formaður. Logi og frú reiddu hátt til höggs. Er höggið geigaði varð formaðurinn að taka pokann sinn. 

Málafylgja, sem sagt, og gagnkvæmir hagsmunir. RÚV sér um að búa mál í hendur vinstriflokkunum, sem aftur tryggja að RÚV fái peninga á fjárlögum.

Þórður Snær ritstjóri Heimildarinnar útskýrir spillinguna með þessum orðum

Þess í stað er samfélagið okkar gegnsýrt af spillingarmentalíteti, þar sem reglan um „greiða gegn greiða“ gildir. Aðgangur að tækifærum, upplýsingum og peningum annarra byggist á því að þú standir inni í tjaldinu og pissir út, frekar en að standa utan við það og pissa inn.

RÚV, samkvæmt greiningu ritstjórans, situr í ríkistjaldinu miðju og hótar að míga á allt og alla fái stofnunin ekki sinn skerf af skattfé almennings. Sjálfur er ritstjórinn á kafi í spillingunni. RÚV niðurgreiðir laun hans á Heimildinni með því að hafa hann á föstum verktakasamningi.

Þórður Snær kvartar undan að blaðamenn skipti ekki lengur máli. Ástæðan er að meintir blaðamenn stunda ekki blaðamennsku heldur hafa málafylgju að lifibrauði annars vegar og hins vegar taka þátt í pólitík.

Málafylgjan skeytir hvorki um heiður né skömm, enn síður um lög og reglur. Fimm blaðamenn RÚV og Heimildarinnar eru sakborningar í refsimáli. Siðlaus og glæpsamleg málafylgja er eitt, blaðamennska er annað.

 

 

 


Biðst Blaðamannafélagið afsökunar?

Blaðamannafélag Íslands dreifði sömu umfjöllun um Namibíumálið og Innsikt/Aftenposten, sem hefur beðist afsökunar á að hafa birt óvandaða frétt danska blaðamannsins Lasse Skytt. Blaðamenn af RÚV og Heimildinni (Stundin og Kjarninn) keyptu þjónustu Skytt sem skrifaði greinar í erlendar útgáfur gagngert til að þær yrðu þýddar á íslensku.

Tilgangurinn var að bæta vígstöðu íslensku blaðamannanna sem eru sakborningar í lögreglurannsókn á byrlun, gagnastuldi, stafrænu kynferðisofbeldi og broti á friðhelgi.

Netútgáfa Blaðamannafélags Íslands, press.is, birti umfjöllun um grein Skytt í dönsku útgáfunni Jorunalisten. Líkt og í Innsikt/Aftenposten er Þórður Snær Júlíusson ritstjóri Heimildarinnar, áður Kjarnans, í stóru hlutverki. Eins og í Innsikt/Aftenposten skáldar Þórður Snær ofsóknir á hendur sér og öðrum blaðamönnum. Eftir ritstjóranum er haft

Hann [Þórður Snær} og þrír aðrir blaðamenn fengu skyndiheimsókn í Reykjavík frá hópi lögreglumanna. Þeim var ekið til Akureyrar, sjávarbyggðar á Norðurlandi þar sem Samherji er með höfuðstöðvar.

Íslenskum blaðamönnum var ekki smalað í bíl og þeim ekið norður yfir heiðar. Þetta er haugalygi. Þórður Snær ásamt þrem öðrum blaðamönnum var gert að mæta í skýrslutöku hjá lögreglu í Reykjavík 14. febrúar í fyrra. Þeir lögðu á flótta og létu ekki sjá sig í boðaða yfirheyrslu fyrr en í ágúst og september. Tímann á milli notuðu þeir til að eyðileggja gögn sem bendluðu blaðamennina við byrlun Páls skipstjóra, stuldi á síma hans og broti á friðhelgi.

Netútgáfa Blaðamannafélagsins endurbirtir ekki lygafrásögnina um nauðungarflutninga blaðamanna norður í land. Netútgáfa BÍ segir aftur þetta í endursögninni:

Samherjamálið er rifjað upp, og sú ákvörðun lögreglustjórans á Norðurlandi eystra að hefja sakamálarannsókn gegn fjórum blaðamönnum í tengslum við fréttaflutning af einum anga Samherjamálsins.

Þetta er sama efnisgrein og birtist í Innsikt/Aftenposten og ritstjórinn biðst afsökunar á, sbr.  

yf­ir­heyrsla ís­lenskra blaðamanna hjá lög­regl­unni á Norður­landi eystra hafi „ekki tengst um­fjöll­un þess­ara blaðamanna um um­rætt mál [þ.e. Namibíumálið] og kem­ur þannig mál­inu ekki við“

Hér liggur kýrskýrt fyrir að Þórður Snær og félagar hans sakborningarnir fá útlendan blaðamann til að halda því fram á erlendum vettvangi að lögreglan sé útsendari Samherja. 

Hvorki í Journalisten né í Innsikt/Aftenposten er nafn Páls skipstjóra Steingrímssonar nefnt á nafn. En Páli var byrlað, síma hans stolið og brotið var á friðhelgi hans. Af þeirri ástæðu eru blaðamennirnir sakborningar í glæparannsókn. Ekki vegna skrifa þeirra um Samherja.

Nú þegar fagmenn sem kunna blaðamennsku, ritstjórn Innsikt/Aftenposten, hafa beðist afsökunar ætlar Blaðamannafélag Íslands ekki að gera það sama?

Já, vel á minnst. Höfundur greinarinnar í netútgáfu Blaðamannafélags Íslands heitir Auðunn Arnórsson. Hann er bróðir Þóru Arnórsdóttur sem er sakborningur líkt og Þórður Snær. 

 

 


mbl.is Biðjast afsökunar á rangfærslum um Samherjamálið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Aftenposten biðst afsökunar á RSK-miðlum

Innsikt, tímarit norska stórblaðsins Aftenposten, biðst afsökunar á lélegri blaðamennsku og fjölmörgum staðreyndavillum í fréttagrein sem skrifuð var í þágu íslenskra blaðamann RSK-miðla (RÚV, Stundarinnar og Kjarnans - nú Heimildin).

RSK-miðlar fengu danskan blaðamann, Lasse Skytt, sem einnig auglýsir sig sem almannatengil, til að skrifa fréttasamantekt um Namibíumálið og rannsókn lögreglu á aðild blaðamanna að byrlun Páls Steingrímssonar skipstjóra Samherja. Skytt fékk greinina birta í febrúarútgáfu Innsikt.

Skytt skrifaði styttri útgáfu af greininni og fékk hana birta í dönsku fagriti blaðamanna. Tilfallandi athugasemd fjallaði um vinnubrögð RSK-miðla við að kaupa sér frægð í útlöndum á fölskum forsendum.

Í marsútgáfu Innsikt er löng afsökunarbeiðni þar sem raktar eru margar villur og rangtúlkanir í grein Skytt. Íslensku blaðamennirnir útveguðu Skytt aðgang að Jóhannesi Stefánssyni, svokölluðum uppljóstrara. Jóhannes talar aðeins við þá blaðamenn sem gleypa frásögn hans hráa og fjalla ekki um hve vafasöm heimild uppljóstrarinn er.

Í afsökunarbeiðni Innsikt er tekið fram að útgáfan hafi ekki séð neinar trúverðugar heimildir um að Jóhannes hafi fyrir hönd Samherja mútað embættismönnum í Namibíu. ,,Það hefði átt að koma fram í greininni," segir Innsikt, ,,að Jóhannes er einn til frásagnar um að hafa stundað mútur."

Skytt hafði ekki samband við Samherja þegar hann undirbjó greinina. Enda var Skytt í vinnu hjá RSK-miðlum til að ófrægja Samherja. Aldrei stóð til sjónarmið annarra en RSK-miðla kæmust á framfæri. Afsökunarbeiðni Innsikt segir: ,,Verkferlar hjá okkur brugðust. Grunnatriði blaðamennsku er að ásakanir séu bornar undir þá sem þær beinast að. Það var ekki gert í þessu tilviki."

Innsikt biðst einnig afsökunar á að í grein Skytt séu yfirheyrslur lögreglu yfir blaðamönnum tengd Namibíumálinu. Umfjöllun um skýrslutöku lögreglu af blaðamönnum átti ekki heima í umfjöllun um Namibíumálið, segir í yfirlýsingu Innsikt. Blaðamennirnir eiga aðild að byrlun, gagnastuldi og brot á friðhelgi. Það er sjálfstætt mál kennt við Pál skipstjóra.  

Í Noregi eru grunnatriði blaðamennsku virt. Á Íslandi er enginn munur á almannatengslum og blaðamennsku. RÚV, Stundin og Kjarninn (nú Heimildin) stunda málflutning, ekki fréttaflutning.

Það verður í minnum haft að Aftenposten biðst afsökunar á íslenskri blaðamennsku.

   


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband