Dagur stigi til hliðar sem formaður borgarráðs

Borgarráð samþykkir tillögu sjálfstæðismanna að innri endurskoðun borgarinnar rannsaki gjafagjörninginn er olíufélögin fengu afhentar ókeypis lóðir andvirði tugi milljarða króna. Gjafagjörningurinn fór fram í borgarstjóratíð Dags B. Eggertssonar með tilheyrandi leynimakki.

Innri endurskoðun er hluti af stjórnsýslu Reykjavíkurborgar. Þótt Dagur sé hættur sem borgarstjóri situr hann enn í borgarstjórn og er formaður borgarráðs. Um borgarráð segir á heimasíðu Reykjavíkurborgar:

Borgarráð fer, ásamt borgarstjóra, með framkvæmda- og fjármálastjórn Reykjavíkurborgar. 

Það gefur auga leið að til að lágmarstrúverðugleiki sé á rannsókn innri endurskoðunar borgarinnar getur Dagur ekki setið áfram sem formaður borgarráðs. Dagur er yfirmaður þeirra sem rannsaka gjafagjörninginn.

Dagur hlýtur að stíga til hliðar sem formaður borgarráðs á meðan rannsókn stendur yfir á embættisverkum hans sem borgarstjóra.

 


mbl.is Innri endurskoðun gerir úttekt á máli olíufélaganna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðmundur Böðvarsson

Þá glotti Gráni..

Guðmundur Böðvarsson, 8.5.2024 kl. 10:51

2 Smámynd: Heimir Lárusson Fjeldsted

Hvað segir Samfylkingin - Kristrún um ástandið í Reykjavík undir stjórn Samfylkingarinnar?

Heimir Lárusson Fjeldsted, 8.5.2024 kl. 11:05

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband