Fimmtudagur, 5. mars 2020
Efling krefst launahækkunar kennara
Efling segist í fréttatilkynningu ,,krefjast efnda á loforðum borgarstjórnarmeirihlutans um leiðréttingu á launum kvennastétta."
90 prósent leik- og grunnskólakennara eru konur.
Síðast þegar að var gáð hafði Efling ekki samningsumboð fyrir kennara.
![]() |
Efling krefst fundar í dag |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 10:45 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Fimmtudagur, 5. mars 2020
Alþjóðahagkerfið hikstar, hrynur ekki í bili
Kórónuveiran lamar framleiðslu víða um lönd og fækkar flugfarþegum og veldur samdrætti í hagvexti. Hrun á hlutabréfamörkuðum er ekki stöðvað með hefðbundnum hætti eins og nýleg vaxtalækkun bandaríska seðlainkans leiddi í ljós.
Hagkerfi stórvelda sem smáríkja mun láta á sjá. Það verður minna til skiptanna og í framhaldi samfélagsórói þegar almenningur lætur óánægju sína í ljós. Fitulag eins og sjálfspíningin með loftslagsruglið verður skorið burt.
Að því gefnu að veiran hagi sér eins og flensufaraldur og fjari út með vorinu mun alþjóðahagkerfið jafna sig á næstu tveim árum aða svo.
Aftur eru líkur á að kórónuveiran munu breyta pólitík til lengri tíma. Alþjóðahyggjan, sem fyrir stóð illa, verður urðuð. Farið hefur fé betra.
![]() |
Flybe hættir rekstri |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Miðvikudagur, 4. mars 2020
Sólveig Anna vill fjölmiðlahasar ekki samninga
Sólveig Anna formaður Eflingar setur skilyrði fyrir að hitta borgarstjóra:
að þú fallist á að mæta mér eða öðrum fulltrúa Eflingar í setti í útvarps- eða sjónvarpsviðtali áður en vikan er úti.
Sólveig Anna ætlar sér í framboð fyrir Sósíalistaflokkinn í næstu þingkosningum. Til að vekja athygli á sér og málstað sósíalista vill formaðurinn komast sem oftast í fjölmiðla. Kaup og kjör Eflingarfólks er aukaatriði í sjálfri heimsbyltingunni.
![]() |
Setur skilyrði fyrir fundi með borgarstjóra |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Miðvikudagur, 4. mars 2020
Grikkland skjöldur Evrópu gegn innrás múslíma
Innrás múslíma í Evrópu þarf að stöðva í Grikklandi, segir Ursula von der Leyen, forseti framkvæmdastjórnar Everópusambandsins. Evrópskir ráðamenn eru herskáir gagnvart Erdogan forseta Tyrklands sem stendur að baki innrásarinnar.
Fyrir sex árum opnaði Merkel kanslari Þýskalands landamæri Evrópu fyrir múslímskum hælisleitendum. Núna heitir það innrás.
Múslímarnir taka með sér trúarmenningu sem virkar ekki. Ríki múslíma loga í óeirðum þar sem takast á stjórnmál og hugmyndafræði er fóru á mis við vestræna upplýsingu og mannréttindavakningu. Trúarmenning múslíma virkar ekki í heimalöndum þeirra og enn síður í Evrópu.
Þess vegna er talað um innrás.
![]() |
Grikkir fá 700 milljónir evra |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Þriðjudagur, 3. mars 2020
Inga Sæland - farðu varlega
Inga Sæland formaður Flokks fólksins skrifar á Facebook í kvöld:
Lang flestu smitin miðað við fólksfjölda á Norðurlöndunum og reyndar í Evrópu að undanskilinni Ítalíu.
Margir aðrir hafa sagt upphátt sömu hugsun. En stöldrum við.
Allir smituðu eru Íslendingar sem komu frá útlöndum. Íslendingar ferðast mikið og varla er það slæmt.
Íslendingar hljóta alltaf að vera velkomnir heim. Þeir eiga þetta land til jafns á við okkur sem heima sitjum.
Fólk ætti ekki, stjórnmálamenn sérstaklega, að gera það tortryggilegt að Íslendingar komi veikir heim frá útlöndum.
Í glímunni við kórónuveiruna eigum við að sýna samstöðu, ekki skapa úlfúð.
![]() |
Atburðarásin hefur komið á óvart |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Þriðjudagur, 3. mars 2020
Sósialistar fara í manninn
Gunnar Smári atyrti samningamann Reykjavíkurborgar. Núna kemur skjólstæðingur formanns Sósíalistaflokksins og krefur borgarstjóra um að hósta upp peningum til að Efling blási af verkföll sem bitna á smælingjum samfélagsins. Hvorttveggja er persónuskítkast í engum tengslum við veruleikann.
Einu sinni kunnu sósíalistar eitthvað í marxískum fræðum um ópersónuleg öfl sem ráða sögulegri framvindu. Núna eru í fyrirsvari miðaldra gelgjur sem fara í manninn og flytja alþjóð marklaust tilfinningaklám.
Verkfall Eflingar í borginni er mistök sem aldrei átti að gera. En þegar miðaldra gelgjur í tilfinningauppnámi taka ákvarðanir hlýtur illa að fara. Heimurinn lýtur ekki hugdettum kjána.
![]() |
Vonar að borgarstjóri bregðist við með sæmd |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 14:00 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Þriðjudagur, 3. mars 2020
Forysta Eflingar er vandamálið, ekki launin
Félagsmönnum Eflingar býðst sama hækkun launa og samið var um á almenna vinnumarkaðnum með lífskjarasamningum. En sósíalísk forysta Eflingar vill óeirðir og upplausn en ekki samninga. Út á það gengur sósíalisminn.
Sósíalistarnir nota þau rök sem hendi eru næst til að skapa úlfúð. Þeir segja að ófaglærðir starfsmenn leikskóla séu að stærstum hluta konur. Jafnréttismál sé að laun þeirra hækki. En, óvart, þá eru fagmenntaðir leik- og grunnskólakennarar 90 prósent konur. Er líklegt að þær konur sætti sig við að fá sömu laun og ófaglærðar konur? Ó, nei.
Ísland er eitt mesta jafnlaunaland í heimi, samkvæmt alþjóðlegum samanburði. Það verður ekki gengið lengra í að jafna laun nema almenningur fylki sér á bakvið ein laun fyrir öll störf - ríkislaun.
En það er bara enginn áhugi fyrir ríkislaunum. Allir vita þetta. Nema forysta Eflingar.
![]() |
Undanþágur dragi úr krafti verkfallsvopnsins |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Mánudagur, 2. mars 2020
Mótsögn veirufrétta
Líkamlega veikir ættu helst ekki að fá kórónuveiruna. Þeir sem búa við tæpt sálarástand; eru trúgjarnir úr hófi og kunna illa að aðgreina ýkjur frá sannleikskornum ættu helst ekki að heyra af umræðunni.
Hér er mótsögn. Til að verja líkamlega veika frá smiti þarf að láta eins og himinn og jörð séu að farast. En við það tapa sér andlega vanheilir, ekki aðeins samfylkingarfólk.
Yfirvöldum er nokkur vorkunn.
![]() |
Ber að vernda þá viðkvæmu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Mánudagur, 2. mars 2020
Efling ógnar lýðheilsu landsmanna
Efling segir sig úr lögum við samfélagið með því að neita undanþágu fyrir þrif í grunnskólum í blóra við tilmæli sóttvarnalæknis.
Framkvæmdastjóri Eflingar svarar undanþágubeiðninni með þessu orðum:
Við teljum nokkuð ljóst að röksemdirnar sem tengjast sérstaklega þessum faraldri eigi ekki við um skólastarfsemi vegna þess að þar eru ekki þessir sérstaklega viðkvæmu hópar á ferð
Kórónuveiran er lífshættulegur smitsjúkdómur sem berst á milli fólks án tillits til aldurs. Þeir smituðu eru settir í sóttkví og einangrun, hvort heldur þeir eru ungir eða aldraðir.
Hreinlæti og þrif eru helsta vörnin gegn útbreiðslu veirunnar. Allir sem vettlingi geta valdið leggja sitt af mörkum til að hindra smitleiðir. En Efling segir nei.
Verkalýðsfélög starfa eftir lögum frá alþingi. Í þeim lögum er ekki gefin heimild til að ógna lýðheilsu landsmanna. Alþingi getur sett lög sem banna starfsemi er ógnar líf og heilsu almennings. Sérstakar kringumstæður kalla á sérstök lög.
![]() |
Mótmæla með því að breyta ráðhúsinu í leikvöll |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Sunnudagur, 1. mars 2020
Sósíalísk læknisfræði stefnir lífi fólks í hættu
Sósíalistar í Eflingu neita Reykjavíkurborg um undanþágu til að þrífa grunnskóla, eins og sóttvarnarlæknir leggur til í baráttunni við kórónuveiruna.
Nei, segja sósíalistar, börn eru ekki í hættu vegna kórónuveirunnar og því óþarfi að þrífa grunnskóla.
Þessi sósíalíska læknisfræði er líklega það alheimskasta sem fullorðin manneskja getur látið út úr sér. Halló Hafnarfjörður, börnin fara heim eftir skóla inn á heimili mömmu og pabba og afa og ömmu. Smit sem börnin gætu tekið með sér úr skóla fylgja þeim en verður ekki eftir þegar skóladegi lýkur.
Hvort eru sósíalistar illa innrættir eða viðáttuheimskir?
![]() |
Undanþágubeiðni vegna þrifa í grunnskólum hafnað |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)