Hatursfé Katrínar forsætis

Hötuðustu hóparnir í samfélaginu eru eftirfarandi 1. Andstæðingar bólusetninga 2. Andstæðingar fóstureyðinga 3. Raunsæisfólk í loftslagsmálum. Þessir hópar búa við 50 til 60 prósent hatur samkvæmt könnun Fjölmiðlanefndar. Fréttin greinir frá.

Engin félagasamtök þeirra hötuðustu fá stuðning frá ríkinu hennar Katrínu forsætis. Transhópurinn Samtökin 78 fær á hinn bóginn 55 milljónir árlega til ,,að vinna gegn bak­slagi gegn hinseg­in fólki í sam­fé­lag­inu," segir í meðfylgjandi frétt.

Hvaða bakslag?

Samkvæmt könnun Fjölmiðlanefndar, sem er opinber stofnun, býr transfólk aðeins við 5, segi og skrifa fimm, prósent hatur. Hatrið er svo léttvægt að varla tekur að nefna það; einstakir bloggarar eru duglegri að afla sér haturs.

Til samanburðar glíma stuðningsmenn Miðflokksins við 25 prósent hatur í samfélaginu, fimmfalt á við transfólk. Til að gæta jafnræðis ætti Katrín að veita fótgönguliðum Miðflokksins 275 milljónir króna til að verjast ,,bakslagi."

En auðvitað gerir Katrín ekkert slíkt. Hún tekur Sturgeon á þetta. Grefur sig ofan í woke-holu með 5 prósent hatrinu og finnur sig heima þar. Forsætisráðherra er með sömu fylgistölu, 5%. Mínus fimm prósent og plús fimm prósent gerir eitt stórt núll. Gildir bæði um transhugmyndafræði og hatursfræði Katrínar forsætis.


mbl.is Samtökin '78 fá aukinn styrk
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Finnur Þór og Ingi Freyr: bræður í glæpum

Finnur Þór Vilhjálmsson er saksóknari hjá embætti ríkissaksóknara. Ingi Freyr bróðir hans er blaðamaður á Stundinni, nú Heimildinni. Báðir þjösnast þeir áfram í Namibíumálinu, sem var búið til af Inga Frey og félögum á RSK-miðlum (RÚV, Stundin og Kjarninn) sumarið og haustið 2019.

Arna McClure lögfræðingur Samherja er með stöðu sakbornings eftir að Finnur Þór tók við gögnum frá bróður sínum og RSK-miðlum um ætluð brot útgerðarinnar í Namibíu. Arna átti engan hlut að máli og ekkert hefur komið fram sem réttlætir að hún sé grunuð um glæp.

Arna höfðaði mál til að fá aflétt stöðu sinni sem sakborningi. Málflutningur var í gær. Í frétt RÚV er haft eftir héraðssaksóknara að ,,fjarstæða" sé að það þyki óeðlilegt að bræðurnir saksæki sömu einstaklingana hvor á sínum vettvangi, annar sem handhafi ákæruvaldsins en hinn sem blaðamaður með dagskrárvald fjölmiðla að baki sér.

Fjarstæðan er ekki meiri en svo að embætti ríkissaksóknara tók til rannsóknar háttsemi bræðranna í sambærilegu tilviki. Bræðurnir unnu báðir að máli systkinanna í Sjólaskipum. Ingi Freyr skrifaði ákærufréttir í fjölmiðla en Finnur Þór vélaði um sem saksóknari.

Ríkissaksóknari tók til rannsóknar samvinnu bræðranna en hætti rannsókninni án skýringa.

Málarekstrinum gegn systkinunum í Sjólaskipum var endanlega hætt síðasta sumar en hafði þá staðið yfir í rúm 12 ár. Systkinin voru sakborningar að ósekju. Enginn fannst glæpurinn. En í áravís skrifaði Ingi Freyr sakamálafréttir og Finnur Þór saksótti. Málið var allt handónýtt. Byggt á falsfréttum. Finnur Þór gafst upp og Ingi Freyr varð að éta ofan í sig glæpafréttirnar ósönnu.

Hversu mikil áhrif hafði það á dómgreind saksóknara að bróðir hans átti bæði faglega og starfstengda hagsmuni að Sjólaskipamálið myndi leiða til ákæru en í versta falli dragast á langinn? Blaðamaðurinn gat ,,skúbbað" aðra fjölmiðla trekk í trekk. Í störfum blaðamanna eru tengsl við fréttalindir mikils metnar.

Hvaða réttlætis njóta sakborningar, sem reynast saklausir? Þeir verða fyrir tvöfaldri saksókn, í fjölmiðlum og af hendi saksóknara. Þegar saksóknari fellir málið niður standa fréttirnar eftir, öllum aðgengilegar á netinu. Í fréttum segir að glæpur hafi verið framinn en svo var alls ekki.

Þrem mánuðum eftir lok Sjólaskipamála taka bræðurnir aftur höndum saman. Ingi Freyr og félagar á RSK-miðlum setja saman Namibíumálið og Finnur Þór tekur við málinu sem saksóknari. Þetta gerist 2019. Sama fyrirkomulagið og í málum systkinanna í Sjólaskipum sem máttu þola tvöfaldan opinberan málarekstur í rúm 12 ár. Veigamesti hluti Namibíurannsóknarinnar, sá sem sneri að skattamálum, hefur þegar verið felldur niður.

Ingi Freyr er iðinn við kolann að birta sakamálafréttir á Stundinni/Heimildinni og RÚV endurbirtir. í huga almennings eru sakborningar sekir áður en ákæra liggur fyrir. Dagskrárvald fjölmiðla sér til þess. Finnur Þór tryggir hæga málsmeðferð til að RSK-miðlar fái tíma að birta raðfréttir um ósannaðar ásakanir og telja almenningi trú um að glæpir hafi verið framdir.  

Samspil embættis héraðssaksóknara og fjölmiðla að búa til ásakanir á hendur einstaklingum er ekki í samræmi við meginreglur réttarríkisins um sjálfstæði ákæruvaldsins og hlutlæga málsmeðferð.

Þegar Finnur Þór tekur ákvarðanir sem saksóknari, t.d. um réttarstöðu einstaklinga, eru í húfi hagsmunir bróður hans blaðamannsins. Það sjá allir í hendi sér, sem nenna að gefa málinu gaum, að þetta verklag réttarkerfisins er ólíðandi. Það mætti allt eins útvista ákæruvaldinu til einkaaðila. Bræður í glæpum ehf.

  


Kynjahopp, trans og afsögn Sturgeon

Transkonan Isla Bryson felldi Sturgeon forsætisráðherra Skota. Isla hét áður Adam Graham og nauðgaði tveim konum. Adam komst undir manna hendur og skipti óðara um nafn og kyn. Skosk lög leyfa kynjahopp og Adam vildi í kvennabúr, afsakið, kvennafangelsi sem Isla.

Samkvæmt transhugmyndafræðinni er kyn ekki spurning um líffræði heldur hugarfar. Sturgeon gleypti transið hrátt og sat uppi með Adam undir nafni Islu á leið í sérrými kvenna að þjóna eðli sínu.

Skotar brjáluðust. Fæstar konur í kvennafangelsum sitja inni fyrir kynferðis- eða ofbeldisglæpi. En nú átti að hleypa tvöföldum nauðgara inn á varnarlausar konur. Ríkið færir geranda fórnarlömb á færibandi.

Transkonur eru konur, sagði Sturgeon í sjónvarpsviðtali, en ... 

Þetta ,,en" kostaði Sturgeon forsætisráðherraembættið.

Sumt í lífinu er bæði og. Sumt annað hvort eða. Enginn er smávegis karl og svolítil kerla, nema í yfirfærðri merkingu. Hjá Sturgeon var transkona aðeins kona ef hún var ekki nauðgari. Hvað með ofbeldisfulla transkonu, sem lætur þó hjá líða að nauðga? Er hún kona? Hvar liggja mörkin ef það er hugarfar sem ræður kyni en ekki líffræði? 

Transhugmyndafræðin stóð á berangri sem óverjandi þvættingur. Eftir að rökleysa hugmyndfræðinnar varð öllum ljós reyndi Sturgeon að bera í bætifláka fyrir transið. Hún sagði efnislega að kyn væri bæði og. Óvart er það aðeins annað tveggja, kvenkyns eða karlkyns.

Kynjahopp gengur í lokuðum félagsskap, hjá þeim sem hafa gaman af hlutverkaleikjum. Hver og einn má vera hvað sem er í huga sér; karl eða kona, köttur eða mús. En samfélagið hættir að virka ef við látum eins og kyn sé hugarfar. Fall Sturgeon staðfestir að þeir sem víkja skarpt frá veruleikanum enda út í mýri.


mbl.is Sturgeon segir af sér
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

5 blaðamenn ákærðir i febrúar

Fimm blaðamenn RÚV og Heimildarinnar, áður Stundin og Kjarninn, fá birta ákæru næstu tvær vikurnar vegna aðildar að að byrlun, gagnastuldi, stafrænu kynferðisofbeldi og broti á friðhelgi tveggja starfsmanna Samherja, Páls Steingrímssonar og Örnu McClure.

Eyþór Þorbergsson aðstoðarsaksóknari lögreglunnar á Norðurlandi eystra staðfesti í viðtali við danska blaðamanninn Lasse Skytt að ákærur yrðu birtar fyrir lok mánaðar.

Danski blaðamaðurinn var ráðinn af Blaðamannafélagi Íslands og RSK-miðlum, nú RH-miðlum, til að skrifa greinar í erlendar útgáfur og fegra málstað sakborninganna. Greint var frá vinnulaginu í tilfallandi athugasemd í gær.

Íslensku blaðamennirnir létu Skytt hafa samband við Eyþór Þorbergsson, sem skrifaði greinargerð lögreglu 23. febrúar á liðnu ári vegna kæru eins sakborninganna, Aðalsteins Kjartanssonar. Orðrétt segir Skytt um samtalið við Eyþór: ,,Eyþór Þorbergsson vill ekki tjá sig um málið fyrr en því lýkur í febrúar."

Vitað er um fjóra sakborninga. Þeir eru Þóra Arnórsdóttir á RÚV, Aðalsteinn Kjartansson á Heimildinni/Stundinni, Arnar Þór Ingólfsson og Þórður Snær Júlíusson á Heimildinni, áður á Kjarnanum.

Ekki hefur verið upplýst um fimmta sakborninginn úr röðum blaðamanna. Tveir fréttamenn RÚV voru látnir fara frá ríkisfjölmiðlinum eftir að lögreglurannsókn hófst vorið 2021. Bæði Rakel Þorbergsdóttir fréttastjóri og Helgi Seljan fréttamaður hættu á RÚV áramótin 2021/2022. 

Sjötti sakborningurinn er veika konan sem blaðamennirnir fengu til að byrla Páli, stela síma hans á meðan skipstjórinn var í öndunarvél og færa blaðamönnum sem biðu ránsfengsins á Efstaleiti, höfuðstöðvum RÚV. Þar var síminn afritaður í heilu lagi og veika konan send tilbaka á sjúkrabeð Páls með símtækið.

Á Efstaleiti var unnið úr gögnunum og drög skrifuð að fréttum. Páli skipstjóra var byrlað 3. maí 2021. Blaðamennirnir biðu með að birta fréttir úr símanum í rúmar tvær vikur. Þeim hafði verið sagt að staðsetningarbúnaður símtækja uppfærðist á tveggja vikna fresti.

Skipulagið gerði ráð fyrir að Páll væri grunlaus um að síma hans hefði verið stolið. Aðskilnaður glæps og fréttamennsku var fólginn í því að miðstöð aðgerða var á RÚV en Kjarninn og Stundin áttu að birta fréttir. Þrem dögum fyrir byrlunina var Aðalsteinn Kjartansson fluttur af RÚV yfir á Stundina - til að halda áfram ,,rannsóknablaðamennsku". 

Eftir að Páll skipstjóri komst til meðvitundar 6. maí varð hann þess áskynja að átt hafði verið við símann. Meðal annars tók hann eftir að í gegnum símann hafði verið reynt að komast inn á samfélagsmiðla sem hann notaði og inn á bankareikninga hans.

Páll kærði símastuldinn til lögreglu 14. maí án þess að hafa nokkra hugmynd um hver eða hverjir stóðu að baki aðförinni að honum. Stundin og Kjarninn birtu fyrstu fréttir úr síma skipstjórans viku síðar, 21. maí. Þá varð ljóst að blaðamenn RÚV, Stundarinnar og Kjarnans stunda glæpi til að afla frétta. 

 

 


Þórður Snær ofsóttur af sveit eyfirskra lögreglumanna

Þórður Snær Júlíusson ritstjóri segir í viðtali að lögreglusveit hafi verið send frá höfuðstað Norðurlands suður til Reykjavíkur í febrúar á liðnu ári að hafa uppi á honum og þrem öðrum blaðamönnum fyrir Samherjaskrif. Tilgangur lögreglunnar, að sögn Þórðar Snæs, var að krefjast þess að blaðamenn gæfu upp nöfn heimildarmanna sinna.

Ritstjóri Heimildarinnar, áður Kjarnans, fer með rangt mál. Það kom engin stormsveit að norðan  að sækja Þórð Snæ og þrjá aðra blaðamenn. Fjórmenningarnir voru aftur boðaðir til yfirheyrslu 14. febrúar í fyrra en lögðu á flótta og létu ekki ná í sig fyrr en í ágúst. Í ofanálag vissi lögreglan hver heimildarmaðurinn var. Það kemur fram í greinargerð lögreglu frá 23. febrúar. 

Viðtalið við Þórð Snæ birtist í norska tímaritinu Innsikt. Viðtalið er hluti af stærri umfjöllun um Namibíumál RÚV, Stundarinnar og Kjarnans, RSK-miðla, sem í bráðum fjögur ár hafa sakað Samherja um spillingu og lögbrot þar syðra.

Blaðamaðurinn sem skrifar viðtalið og fréttina í Innsikt er ekki á ritstjórn útgáfunnar heldur lausapenni. Hann heitir Lasse Skytt og er danskur. Skytt auglýsir þjónustu sína til sölu á netinu, segist skrifa lipran texta og kunni að höfða til valinna markhópa. Menn sem auglýsa sig svona eru almannatenglar og yfirleitt kallaðir lygarar til leigu af heiðarlegum blaðamönnum.

Blaðamennska er að segja sannleikann. Almannatenglar þiggja laun fyrir frásagnir í þágu verkkaupa. Nokkur munur á þessu tvennu, eins og gefur að skilja.

RSK-miðlar með stuðningi Blaðamannafélags Íslands réðu Lasse Skytt til að skrifa níðgreinar um Ísland og Samherja. Efninu er komið á framfæri í erlendum miðlum sem fréttum. Síðan taka RSK-miðlar og BÍ skrif Danans í útlendum miðlum og kynna íslenskum lensendum sem heiðarlegar fréttir - í raun er um að ræða keyptar falsfréttir. Málgögn RSK-miðla, Heimildin og Mannlíf, birta endurvinnsluna. Danska sorpið er innflutt og selt Íslendingum sem góð og gild vara.

Fyrir nokkrum dögum birtist á vefsíðu Blaðamannafélags Íslands, press.is, frétt þýdd upp úr fagriti danskra blaðamanna. Hver skyldi vera höfundurinn? Jú, auðvitað Lasse Skytt. Þetta er sama fréttin og í norsku útgáfunni, í annarri útfærslu. Boðskapurinn er sá sami, að blaðamenn séu ofsóttir á Íslandi.

Í báðum tilfellum er um hreinar níðgreinar að ræða enda er þeim danska stýrt af RSK-blaðamönnum sem eru sakborningar í glæpamáli og gera engan greinarmun á blaðamennsku og almannatengslum. Íslensku samfélagi er fundið allt til foráttu og það sagt gjörspillt.

Blaðamannafélag Íslands tekur þátt í að kaupa danskan leigupenna til að úthúða landi og þjóð með það að markmiði að bæta málstað blaðamanna sem eiga aðild að byrlun, gagnastuldi, stafrænu kynferðisofbeldi og broti á friðhelgi Páls skipstjóra Steingrímssonar og Örnu McClure. Jafnvel stéttafélag almannatengla myndi ekki leggjast svona lágt.

Danski leigupenninn er látinn gagnrýna frændhygli á Íslandi. Sá sem þýðir greinina á vef Blaðamannafélags Íslands heitir Auðunn Arnórsson og er starfsmaður félagsins. Hann er bróðir Þóru Arnórsdóttir, sakbornings og fyrrum forsetaframbjóðenda. Þarf frekari vitnanna við um hvar spillingin er mest á Íslandi? 

 


Orson, Úkraína og ógnin að ofan

Útvarpsleikrit Orson Wells árið 1938, Innrásin frá Mars, vakti hræðslu í Bandaríkjunum. Leikritið var sviðsetning og sýndi smithættu skelfingar. Leikritið er gleymt en lærdómurinn lifir. Ótti er öflugt vopn í pólitík. Innrás frá Mars er ekki yfirvofandi en framandi loftför ógna ítrekað þjóðaröryggi Bandaríkjanna.

Eins og útvarpsleikritið 1938 var skáldskapur eru kínversku belgirnir, ef þeir eru þá frá Kína, sviðsetning. Munurinn er sá að Wells var listamaður sem las í samtíð sína en nú eru það yfirvöld sem skálda ógn við bandarískt þjóðaröryggi.

Bandaríkin eru ekki á leið í herleiðangur gegn Kína. Líklegri skýring á hræðsluáróðrinum er félagssálfræðilegur með rætur í djúpvitund valdakerfisins.

Alla þessa öld hafa Bandaríkin fengið á kjaftinn í hernaðarævintýrum á erlendri grundu. Afganistan, Írak, Sýrland eru stráð brotnum bandarískum draumum. Yngsta ævintýrið er í Úkraínu. Pentagon gaf út fyrir nokkru að Úkraína muni tapa stríðinu við Rússa. Í Pentagon sitja atvinnumenn sem skilja hernað.

Heiminum er á hinn bóginn ekki stjórnað með hernaði heldur pólitík. Ef Úkraína tapar stríðinu verður að undirbúa þær fréttir. Komi þær eins og þruma úr heiðskíru lofti er hætt við að leit hefjist að sökudólgum. Bandaríkin vilja ekki sakbendingu. Það verður að hanna frásögn um fyrirsjáanlegan ósigur í Garðaríki.

Hvað verður gert?

Í fyrsta lagi þarf að sýna fram á Úkraínumenn geti sjálfum sér um kennt. Stjórnvöld séu spillt og njóti ekki almenns stuðnings. Stjórnin í Kænugarði hefði betur átt að semja við Rússa um rússneskumælandi austurhéruð og láta ekki sverfa til stáls.

Í öðru lagi að þrátt fyrir allt sé Úkraína ekki lífsnauðsynleg Bandaríkjunum heldur langt-í-burtu-land. Repúblíkanar á bandaríkjaþingi tala á þessum nótum og orð þeirra fá meira vægi næstu misserin.

Í þriðja lagi að Bandaríkin eigi nóg með sig. Þjóðaröryggi sé ógnað á heimavígstöðvum. Torkennileg loftför skotin niður af herþotum eru hentug myndræn framsetning.

Til hliðar við hönnun frásagnar verður gripið til ráðstafana í Evrópu, einkum Austur-Evrópu, til að lina þjáningarnar af úkraínskum ósigri. Pólverjum verður sennilega gefinn laus taumurinn í Vestur-Úkraínu, en á eigin ábyrgð. Ef Rússar skjóta á pólska hermenn í Úkraínu verður Nató ekki virkjað. Það yrði undir Pólverjum komið að semja við Pútín um hvort og þá hvaða hluta Úkraínu þeir fengju í sinn hlut.

Leikrit Orson Wells varpaði ljósi á bandaríska þjóðarsál. Hún er bernsk og trúgjörn. Ýmsar bábiljur samtímans eiga uppruna sinn þar vestra, t.d. manngert veður og transmenning. Sannfærð um eigin yfirburði trúir þjóðin að ekkert framandi afl leyfi sér að kássast upp á strandlengjuna. Ógn Bandaríkjanna hljóti alltaf að koma af himnum ofan, frá Mars eða Kína.

Dularfulla loftbelgjamálið segir þá sögu að bandarískur hugmyndaheimur færist nær einangrunarhyggju en fjær hlutverki lögreglu í heimsþorpinu.

 


mbl.is Átthyrndur og þræðir héngu af honum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hormónar og hugarfar

Trans er hugarástand einstaklings sem telur meðvitund sína af öðru kyni en líkamann. Meðvitund, að því marki sem hún er hugsun, er óefnisleg. Líkami er efnislegur og kemur aðeins í tveim kynjum, karl- og kvenkyni.

Trans er ferðlag frá líkamlegri og handfastri staðreynd inn í heim mótsagna óefnislegrar hugsunar.

Hugsuninni eru fá, ef nokkur, takmörk sett. Hver og einn getur ímyndað sér hvað sem vera skal. Í smásögu Franz Kafka, Hamskiptin, vaknar sölumaðurinn Gregor Samsa einn góðan veðurdag í líki risavaxinnar bjöllu. Margvíslegar hryllingssögur, ætlaðar til skemmtunar, byggja á stefi hamskipta.

Ímyndunin er fjörmeiri hjá ungmennum en þeim sem eldri eru. Ungmenni nota ímyndunina til að máta sig við veruleikann. Á leikskólaaldri er alsiða að börn séu í mörgum hlutverkum yfir daginn, oftast tengd söguhetjum í ævintýrum en einnig foreldrum. Í íþróttum á unglingsaldri eru fyrirmyndirnar snillingar af holdi og blóði, t.d. Messi.

Ímyndin að vitundin sé af öðru kyni en líkaminn styðst stundum við þann flugufót að sumar stúlkur eru karlmannlegar og sumir drengir kvenlegir. En það er hluti af breytileika tegundarinnar. Rétt eins og sumir eru hávaxnir en aðrir lágvaxnir. Á frávikum eru samt mörk. Enginn er fjórir metrar á hæð og enginn fæðist með svínshöfuð á mannslíkama - nema í skáldskap.

,,Ég ætla að vera eins og ..." er hversdagsleg hugsun hjá einstaklingi milli tektar og tvítugs. Maður setur sig í spor fyrirmyndarinnar, stælir hana. Lykilhluti setningarinnar er ,,eins og". Maður getur ekki orðið fyrirmyndin. En maður vill líkjast henni, temja sér siði og háttu manneskju sem er manni leiðarljós. Ungmenn finna sér sína syllu í lífinu með eftirtekt hvernig aðrir haga sínu lífi.

Með reynslu og þroska verða einstaklingarnir sjálfstæðari, ,,eins og-hugsunin" hættir að skipta máli. Maðurinn er það sem hann fæddist með auk uppeldis og plús það sem hann gerði úr sjálfum sér.   

Trans væri saklaus ímyndarleikur ungmenna ef ekki væri fyrir þá sök að læknisfræði nútímans getur breytt ásýnd líkamans þannig að kvenlíkami fái karllæg einkenni og öfugt. Áfram er líkaminn ýmist kvenkyns eða karlkyns. Litningunum er ekki breytt, en ásýndin er önnur.

Sá sem breytir kyni sínu getur orðið ,,eins og" hitt kynið. En maður verður ekki annað kyn en það sem maður fæddist með. Valið stendur á milli þess að lifa eftirhermulífi eða raunlífi.

 

 


mbl.is Svíar takmarka hormónameðferðir ungmenna enn frekar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kvika er Grundarkjör á sterum

Kvika kann að stækka en hefur aldrei sýnt kunnáttu í rekstri. Á útrásartíma kölluðu þeir sig ,,umbreytingarfjárfesta" sem skálduðu efnahagsreikninga í Excel er áttu fátt sameiginlegt með efnahagslegum veruleika.

Fyrir liðlega 30 árum óx hverfisverslunin Grundarkjör úr einni búð í sex verslanir á rúmu ári. Grundarkjör lögðu upp laupana 1990. Ástæðan var ,,of mikil umsvif og slæm greiðslustaða."  Kvika er Grundarkjör bankakerfisins, vex án þess að sýna kunnáttu í rekstri. Stöðug stækkun felur rekstrarlega vangetu. Íslandsbanki er á matseðli Kviku-manna. Þeir ætla að fá bankann með stórum afslætti

Kvika er aðeins 8 ára gömul, verður til með samruna tveggja hrunkvöðla, MP-banka og Straums. Árlega hefur Kvika yfirtekið eitt fyrirtæki og rúmlega það, samkvæmt Viðskipablaðinu. Þetta er Grundarkjörs-aðferðin, stækkun er aðalatriði, rekstur aukaatriði.

Velgengni í átta ár stígur forstjóra Kviku til höfuðs. Hann segir samruna auka samkeppni. Jæja, snillingur, eigum við þá ekki að hafa einn banka í landinu? Þá væri samkeppninni borgið. Hann játar rekstrarlega vangetu en býður í staðinn kunnáttu til að stækka, Grundarkjörs-aðferðin í hnotskurn.

Ríkið á stóran hlut í Íslandsbanka. Kviku-menn ætla sér hlutinn með ríflegum afslætti. Það gera þeir með talnaleikfimi. Froðu er sprautað inn í efnahagsreikninginn, kölluð viðskiptavild; væntar tekjur miða við eilífðarhagvöxt. Uppskriftin er frá útrásinni.

Samfellt góðæri er á Íslandi allan starfstíma Kviku. Í þenslu er auðvelt að stunda skapandi bókhald. Menn veðsetja sig inn í framtíðina en gera aldrei ráð fyrir hallæri. Almennt stíga ungir bankamenn ekki í vitið, allra síst þeir sem njóta góðæris fyrstu árin á starfsferlinum. Við þær aðstæður tapa menn á raunsæi en græða á einfeldningslegri bjartsýni. Dómgreindin víkur fyrir hagsmunum. Maðurinn er ekki merkilegri skepna en það, einkum tegundin homo grundarkeris. Bankamenn búa sér til fantasíuheim, samanber Kviku-forstjórann sem trúir í barnslegri einlægni að einokun sé samkeppni.

Flest bendir til að pólitísk ákvörðun sé þegar tekin að Kvika fái Íslandsbanka. Bjarni fjármála lætur þar hugmyndafræði villa sér sýn og stefnir þjóðarbúinu í hættu. Kvika-Íslandsbanki verður stærsta fjármálastofnun landsins og slær tóninn um hvernig skuli búa til peninga: stækkun, ekki rekstur verður mantran. Steingleymd eru útrásarævintýrin þar sem íslenskir auðmenn ætluðu að leggja undir sig heiminn; kölluðu áhættufíkn viðskiptavit. Sváfu svo af sér timburmennina á Kvíabryggju.

Það er hálf kynslóð, 15 ár, frá hruni. Víst er hægt að fallast á þau rök að almennt sé ekki æskilegt til langframa að ríkið sé ráðandi í bankakerfinu. En þegar einkaframtakið er markað Grundarkjörshugsun er ekki um annað að ræða en eignarhlutur ríkisins fjármálakerfinu verði allnokkur. Viðskiptabankar eiga fyrst og fremst að þjónusta rekstur en ekki búa til eignabólur.

Það tekur þrjár til fimm kynslóðir bankamanna að skilja sannindin úr biblíunni, að á eftir góðæri kemur hallæri. Á þeim tíma má kannski ala upp bankamenn sem kunna til verka. Á meðan ætti ríkið að hafa hönd í bagga. Á næstu öld er tímabært að einkaframtakið taki yfir bankakerfið. Þolinmæði, Bjarni, er dygð.


mbl.is Íslandsbanki svarar Kviku játandi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Skipstjórinn, Þóra sakborningur og saklaus Logi

Logi Bergmann fékk starf. Inngangur fréttar Heimildarinnar er svohljóðandi:

Logi Berg­mann Eiðs­son mun vinna að und­ir­bún­ingi árs­fund­ar Sam­taka fyr­ir­tækja í sjáv­ar­út­vegi. Rúmt ár er síð­an hann vék úr starfi sem út­varps­mað­ur á K100 í kjöl­far ásak­ana um brot gegn ungri konu.

Þóra Arnórsdóttir fékk starf. Inngangur Heimildarinnar er svohljóðandi:

Þóra hætt­ir í frétta­skýr­inga­þætt­in­um til að taka við öðru starfi ut­an RÚV. Ingólf­ur Bjarni Sig­fús­son tek­ur við sem rit­stjóri fram á vor­ið.

Þóra er sakborningur í lögreglurannsókn. Hún er grunuð um brot í starfi. Logi braut ekki af sér í starf, er ekki sakborningur. Heimildin heggur í Loga en látið er eins og vistaskipti Þóru séu ekki í neinum tengslum við réttarstöðu hennar í sakamáli. Ekki er spurt hvort eðlilegt sé að grunuð um glæp valsi á milli ríkisstofnana eins og þær séu hennar einkaeign.  

Páll skipstjóri Steingrímsson er brotaþoli í málinu þar sem Þóra er sakborningur. Skipstjórinn skrifar grein á Vísi um meðvirkni fjölmiðla með sérvöldum. Hann segir það hafa vakið athygli sína að

fjölmiðlar sáu ekki ástæðu til að minna á að hún [Þóra} væri með stöðu sakbornings í máli sem m.a. varðaði stafrænt kynferðislegt ofbeldi. Sakborningsstaða hennar stafar einnig af öðrum ástæðum enda eru brotaþolar fleiri en einn og hefur hinn brotaþolinn ekkert með stafræna kynferðisbrotið að gera. Ekki nóg með það, heldur liggja fyrir gögn sem sýna ítrekuð samskipti hennar við fárveikan einstakling og hvatningu til að láta sig fá gögn og upplýsingar.

Stutta skýringin á sérmeðferðinni sem Þóra fær er að hún er i blaðamannamafíu sem gefur tóninn um hvernig skal taka á mönnum og málefnum í opinberri umræðu. Kjarni mafíunnar er á tveim miðlum, RÚV og Heimildinni (áður Stundin og Kjarninn). 

Í málinu þar sem Páll skipstjóri er brotaþoli eru fimm blaðamenn sakborningar. Þeir koma allir af RÚV og Heimildinni. Fjölmiðlakerfi þar sem grunaðir um glæpi ráða ferðinni er til marks um sjúkt samfélag.


Íslandsbanki verður 2007-sjóður

Kvika banki er áhættufjárfestir en Íslandsbanki viðskiptabanki. Áhættufjárfestar veðja eigin peningum og annarra en líður þó best í þeirri stöðu að þjóðnýta tapið þegar illa árar. Með samruna Kviku og Íslandsbanka eru áhættufjárfestar komnir með yfir þriðjung íslenska bankakerfisins í sínar hendur.

15 árum eftir hrun.

Menn taka meiri áhættu sé hægt að þjóðnýta tapið. Kvika-Íslandsbanki ryður brautina fyrir hina viðskiptabankana tvo. Taka aukna áhættu, það gefur bónusa til bankamanna og efnahagsreikningurinn stækkar. Allt í lukkunnar velstandi því áhættan er öll hjá almenningi og ríkissjóði.

15 árum eftir hrun.

Stærra er betra, segja menn. Það verður hægt að fá hagstæðari lán frá útlöndum til að fjármagna áhætturekstur á Íslandi. Góðærið hefur staðið í tylft ára, upp á dekk eru komnir snillingar, blautir á bakvið eyrun eins og 2007-kynslóð bankamanna.

15 árum eftir hrun.

Tilfallandi höfundur er ekki í viðskiptum hjá Íslandsbanka. Eiginkonan er það aftur á móti. Eftirfarandi skilaboð verða send yfir morgunverðaborðið: Bogga mín, áhættufíklarnir eru aftur komnir á kreik, já, á nýrri kennitölu. Þeir blása upp eignablöðrur en flýja með ferðatöskur af reiðufé til útlanda á Sagaklass um leið og hún springur, skilja eftir sig sviðna jörð fyrir okkur hin. Forðaðu peningunum þínum áður en það er um seinan. Íslandsbanki er svo gott sem orðinn áhættusjóður.

15 árum eftir hrun.


mbl.is Yrði stærsti banki landsins
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband