Hormónar og hugarfar

Trans er hugarástand einstaklings sem telur meðvitund sína af öðru kyni en líkamann. Meðvitund, að því marki sem hún er hugsun, er óefnisleg. Líkami er efnislegur og kemur aðeins í tveim kynjum, karl- og kvenkyni.

Trans er ferðlag frá líkamlegri og handfastri staðreynd inn í heim mótsagna óefnislegrar hugsunar.

Hugsuninni eru fá, ef nokkur, takmörk sett. Hver og einn getur ímyndað sér hvað sem vera skal. Í smásögu Franz Kafka, Hamskiptin, vaknar sölumaðurinn Gregor Samsa einn góðan veðurdag í líki risavaxinnar bjöllu. Margvíslegar hryllingssögur, ætlaðar til skemmtunar, byggja á stefi hamskipta.

Ímyndunin er fjörmeiri hjá ungmennum en þeim sem eldri eru. Ungmenni nota ímyndunina til að máta sig við veruleikann. Á leikskólaaldri er alsiða að börn séu í mörgum hlutverkum yfir daginn, oftast tengd söguhetjum í ævintýrum en einnig foreldrum. Í íþróttum á unglingsaldri eru fyrirmyndirnar snillingar af holdi og blóði, t.d. Messi.

Ímyndin að vitundin sé af öðru kyni en líkaminn styðst stundum við þann flugufót að sumar stúlkur eru karlmannlegar og sumir drengir kvenlegir. En það er hluti af breytileika tegundarinnar. Rétt eins og sumir eru hávaxnir en aðrir lágvaxnir. Á frávikum eru samt mörk. Enginn er fjórir metrar á hæð og enginn fæðist með svínshöfuð á mannslíkama - nema í skáldskap.

,,Ég ætla að vera eins og ..." er hversdagsleg hugsun hjá einstaklingi milli tektar og tvítugs. Maður setur sig í spor fyrirmyndarinnar, stælir hana. Lykilhluti setningarinnar er ,,eins og". Maður getur ekki orðið fyrirmyndin. En maður vill líkjast henni, temja sér siði og háttu manneskju sem er manni leiðarljós. Ungmenn finna sér sína syllu í lífinu með eftirtekt hvernig aðrir haga sínu lífi.

Með reynslu og þroska verða einstaklingarnir sjálfstæðari, ,,eins og-hugsunin" hættir að skipta máli. Maðurinn er það sem hann fæddist með auk uppeldis og plús það sem hann gerði úr sjálfum sér.   

Trans væri saklaus ímyndarleikur ungmenna ef ekki væri fyrir þá sök að læknisfræði nútímans getur breytt ásýnd líkamans þannig að kvenlíkami fái karllæg einkenni og öfugt. Áfram er líkaminn ýmist kvenkyns eða karlkyns. Litningunum er ekki breytt, en ásýndin er önnur.

Sá sem breytir kyni sínu getur orðið ,,eins og" hitt kynið. En maður verður ekki annað kyn en það sem maður fæddist með. Valið stendur á milli þess að lifa eftirhermulífi eða raunlífi.

 

 


mbl.is Svíar takmarka hormónameðferðir ungmenna enn frekar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurður Kristján Hjaltested

Snilldarlega oðað, eftirhermulíf eða raunlíf.

Það er ekkert þar á milli.

Svo einfalt er það.

Sigurður Kristján Hjaltested, 12.2.2023 kl. 14:30

2 Smámynd: Baldur Gunnarsson

1930 sagði maður að austan Halldóri Laxness raunalega sögu úr landsfjórðungi sínum. Hún varð tilefni smásögunnar ,,Napóleon Bónaparti" sem Halldór skrifaði seinna. 

Baldur Gunnarsson, 12.2.2023 kl. 17:22

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband