Sigurður Ingi sundraði Framsókn

Sigurður Ingi sundraði Framsóknarflokknum með framboði til formanns kortéri fyrir þingkosningarnar í fyrra. Sigmundur Davíð formaður stóð höllum fæti vegna árása fjölmiðla á eiginkonu hans, sem fékk arf og geymdi þá peninga á útlendum bankareikningi en greiddi skatt af hér heima.

Engin innistæða var fyrir þessum árásum enda aldrei um að ræða brot á lögum og reglum um meðferð fjármuna. Í moldviðrinu áttu framsóknarmenn að standa saman og fylkja sér um formann er gerði flokkinn að ráðandi afli í stjórnmálum

En Sigurður Ingi greip tækifærið, hvattur áfram af flokkseigendum, og felldi sitjandi formann.

Nú situr Sigurður Ingi í rústum Framsóknarflokksins og segir: ,,sterkust þegar við stöndum saman."

Það var og.

 


mbl.is „Sterkust þegar við stöndum saman“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

RÚV: samfélagsmiðill pólitískra starfsmanna

Fréttastofa RÚV er ekki fjölmiðill í venjulegum skilningi með ábyrga yfirstjórn sem gætir að faglegum vinnubrögðum ritstjórnar. Fréttastofan er meira í ætt við samfélagsmiðil þar sem starfsmenn leika lausum hala í rammpólitískri vinnustaðamenningu.

Sjanghæ-málið er dæmi um falsfrétt sem er einleikur starfsmanns. RÚV spann lygaþvælu fyrir starfsmanninn og kenndi verkalýðsfélagi um mannorðsmorð í beinni. Því var vísað til föðurhúsanna.  

Vinnustaðamenning RÚV er lituð af þeirri vinstripólitík sem á upp á pallborðið hverju sinni. Fyrir síðustu kosningar var fréttastofan áróðursmiðstöð Pírata. Í ár verður það vinstra grænt á Efstaleiti.

Í síðustu viku fengu eigendur RÚV, íslenska þjóðin, smjörþefinn af kosningamáli RÚV, þ.e. kynferðisbrotum. Uppslætti beggja aðalfréttatíma RÚV 21. september var ætlað að kynda undir vinstriumræðu um að hægrimenn væru meðvirkir barnaníðingum.

Ástæðan fyrir því að þessum uppslætti var ekki fylgt eftir er að RÚV-arar áttuðu sig á að kynferðisbrotamaðurinn sem var til umfjöllunar sl. fimmtudag fékk uppreist æru í tíð vinstristjórnar Jóhönnu Sigurðardóttir. Það passar ekki við fréttahönnun RÚV að kynferðisbrotamenn fengu uppreist æru hjá vinstristjórninni.

Fréttastofu RÚV á að loka. Hún er faglega ónýt og gróðrarstía falsfrétta. Eins og dæmin sanna.


mbl.is Höfðar mál gegn Rúv
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Flokkur er ekki fasteign, foringjar eru verðmætir

Flokkur var fasteign í gamla fjórflokkakerfinu. Þeir sem ,,áttu" flokkinn, flokkseigendur, þurftu ekki að hafa áhyggjur þótt einhverjir hrykkju frá borði, það var ekki í önnur hús að venda. Pólitískir flóttamenn voru ekki vel séðir í öðrum flokkum og takmarkaðir möguleikar að stofna til nýrra stjórnmálasamtaka (nema helst hjá vinstrimönnum, en þeir eru dálítið spes).

En við búum ekki lengur við rammgert vígi fjögurra flokka sem skipta með sér landsstjórninni og þeim gæðum sem fylgja. Á þingi eru sjö flokkar og ekki líkur á að þeim fækki í bráð.

Aukið framboð af stjórnálaflokkum gerir hvern og einn þeirra verðminni. Samhliða auknu framboði eru fylgissveiflur meiri. Samfylkingin var 30 prósent flokkur 2009 en stendur núna í 5 prósentum. Vinstri grænir átti að vera litli ljóti andarunginn með fylgi innan við tíu prósent en þeir mælast stærstir flokka í dag.

Flokkseigendur Framsóknarflokksins misreiknuðu sig þegar þeir héldu að baráttumaður eins og Sigmundur Davíð léti vaða yfir sig á skítugum skónum. Raðfréttir í fjölmiðlum af framsóknarmönnum sem ganga úr flokknum eftir brotthvarf Sigmundar Davíðs er blóðtaka fyrir elsta flokk landsins.

Í fjölflokkakerfi skiptir leiðtoginn meira máli en í fjórflokknum, þar sem stór hluti kjósenda nánast fæddist inn í stjórnmálaflokka og kaus sinn flokk hvað sem tautaði og raulaði. Þeir dagar eru liðnir og koma ekki aftur. 

Flokkseigendur í Framsókn eiga eftir að naga sig í handarbökin að hafa fórnað foringjanum.


mbl.is „Þetta er aftur orðið gaman“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Múslímavæðing Evrópu veldur pólitískum jarðskjálfta

Þjóðverjar eiga ekki í vandræðum að innbyrða hundruði þúsunda Pólverja, Rússa og annarra íbúa Austur-Evrópu sem flæddu inn í Þýskaland eftir fall járntjaldsins.

Aftur eiga Þjóðverjar í mestu vandræðum að taka á móti múslímum. Umræða um viðtöku þeirra skapar ólgu, nýir flokkar eru stofnaðir til að hamla innflutningi múslíma.

Hvað veldur?

Jú. ólíkt öllum öðrum innflytjendum eru múslímar tregir til að laga sig að siðum og háttum nýrra heimkynna. Þeir tíðka siðvenjur sem samrýmast ekki vestrænum gildum. Nægir þar að nefna barnabrúðkaup og ójafnrétti kynjanna.

Vestur-Evrópa situr uppi með milljónir múslíma sem vilja ekki aðlagast. Það er rótin að pólitískum vanda í mörgum Evrópuríkjum. Við ættum að hafa rænu á að draga lærdóm af.


mbl.is Fagna árangri AfD
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Meintur morðingi: hælisleitandi eða í vinnu?

Fréttir bera með sér að meintur Hagamelsmorðingi er ekki ferðamaður. En þar sem hann er erlendur eru aðeins tveir aðrir möguleikar.

Annað tveggja er maðurinn hælisleitandi eða innflytjandi.

Hvers vegna er það ekki upplýst?


mbl.is Ekki verið yfirheyrður um helgina
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Foringinn þakkar samstarfið, nýjar áskoranir bíða

Flokkseigendafélagið í Framsókn flæmdi úr flokknum manninn sem gerði Framsókn að stærsta stjórnmálafli landsins. Ekki aðeins er Sigmundur Davíð merkilegasti formaður Framsóknarflokksins síðustu áratugi heldur er hann aðalhöfundur að samningum við þrotabú hrunbankanna sem gerði þjóðinni kleift að byggja upp efnahagskerfið eftir hrun.

Að öðrum ólöstuðum er Sigmundur Davíð bjargvættur ríkissjóðs og fjárhags heimilanna eftir hrun. Hann var búinn að vinna sér inn lífstíðarábúð sem formaður Framsóknarflokksins.

En flokkseigendur Framsóknar töldu foringjann ekki skaffa nógu greiðan aðgang að opinberum gæðum og felldu hann. Flokkseigendur hugsa í bitlingum, foringjar gæta þjóðarhags.

Og nú þakkar foringinn samstarfið, axlar sín skinn og heldur á vit nýrra pólitískra ævintýra. Allir góðir menn hljóta að óska Sigmundi Davíð velfarnaðar.


mbl.is Sigmundur Davíð hættir í Framsókn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

RÚV og skandalpólitík vinstrimanna

RÚV kyndir undir kosningabaráttu vinstrimanna með hönnuðum fréttaflutningi. Á fimmtudagskvöld var dæmigert mannlífsefni gert að fyrstu frétt beggja aðalfrétta RÚV, kl. sex í útvarpi og klukkutíma síðar í sjónvarpinu.

Mannlífsefnið var viðtal við fórnarlamb í kynferðisbrotamáli, þar sem dómur gekk fyrir heilum 14 árum. Umfjöllun af þessu tagi verður ekki að fyrstu frétt nema mikið liggi við. RÚV vildi gera kynferðisbrot að pólitísku stórmáli, þess vegna kom fréttamaðurinn því inn í viðtalið að ríkisstjórnin hefði sprungið vegna umræðu um uppreisn æru.

Vinstrimenn læsir á fjölmiðla og áhrifamátt þeirra kveiktu strax á perunni; hér er gott stöff til að æsa lýðinn upp. Samfylkingarmaðurinn og almannatengillinn Andrés Jónsson birti þessa færslu á fésbók kl. 18:24 á fimmtudag, þ.e. á meðan umfjöllun RÚV stóð yfir:

Gríðarlega sterk umfjöllunin í Speglinum rétt í þessu á Rúv og mikið hugrekki þolenda sem stigu þar fram og sögðu hlið sína á stóra málinu í samfélaginu.

Viðtalið var raunar aðeins við eina nafngreinda manneskju og aðra nafnlausa. En Andrés breytti yfir í fleirtölu og lætur að því liggja málið sé nýtt en ekki 14 ára og fjöldi fórnarlamba hafi ,,stigið fram". Í vinstrikreðsum kunna menn að búa til fimm hænur úr einni fjöður.

RÚV hannar fréttaflutning af þessu tagi þegar reiða skal til höggs. RÚV lagði sig í líma að snúa stjórnmálaumræðunni upp í kynferðisbrot enda áttu þau að vera skandallinn í þessari kosningabaráttu. Markmiðið er að fá almenning til að trúa því að stærsti flokkur landsins, Sjálfstæðisflokkur, sé meðvirkur í kynferðisbrotum.

Í beinu framhaldi af umfjöllun RÚV skriðu undan steini þekktir ofstækismenn í vinstratrúboðinu og klöppuðu sama stein. Björn Bjarnason ræðir þessi skrif.

Mótmælin ,,Raddir fólksins" áttu að hleypa kosningabaráttu vinstriflokkanna formlega af stað. Þar átti að sýna fram á að Sjálfstæðisflokkurinn væri óalandi og óferjandi. En það mistókst. Fáir mættu og mótmælaspjöldin vísuðu í austur og vestur.

Vinstriflokkarnir verða að leita að nýjum skandal til að sameinast um. Þeir geta reitt sig á aðstoð RÚV að finna pólitískan samnefnara.

 


mbl.is „Raddir fólksins“ á Austurvelli
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sigmundur Davíð og Samvinnuflokkurinn

Bingi færi ekki að stofna flokk nema áhöfnin sé þegar munstruð til að fleyið komist á flot. Og án foringja er til lítils að stofna flokk.

Sigmundur Davíð hlýtur að vera á næsta leiti.


mbl.is Fólk úr öðrum flokkum meðal frambjóðenda
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hreinsanir í Framsókn

Flokkseigendafélag Framsóknarflokksins vill pólitísk höfuð Gunnars Braga og Sigmundar Davíðs - helst á silfurfati fyrir kosningar. Viðskiptamódel flokkseigenda er að Framsókn verði tíu prósent flokkur sem geti ýmist orðið hækja Sjálfstæðisflokks eða Vinstri grænna.

Sigmundur Davíð gerði Framsóknarflokkin stærsta flokk landsins 2013 en hann skaffaði flokkseigendum ekki nógu greiðan aðgang að opinberum gæðum. Sigmundur Davíð og Gunnar Bragi störfuðu í þágu almannahagsmuna en ekki flokkseigenda.

Bakland Framsóknarflokksins mun splundrast við fyrirsjáanlegar hreinsanir. Sjálfstæðisflokkur og Vinstri grænir fá til sín fylgi.

Svo er auðvitað opin spurning hvort Sigmundur Davíð og Gunnar Bragi afþakki samfylgd flokkseigenda og stofni Nýframsókn.


mbl.is Undiralda í Framsóknarflokknum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ný stjórn: Sjálfstæðisflokkur og Vinstri grænir

Ný ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks og Vinstri grænna er í kortunum samkvæmt könnun Félagsvísindastofnunar. Allar aðrar ríkisstjórnir eru veikar þriggja eða fjögurra flokka.

Verði niðurstöður kosninganna eftir rúman mánuðu í takt við þessa könnun stendur val þingheims milli óreiðu og stjórnleysis annars vegar og hins vegar styrkrar landsstjórnar.

Þetta yrði ríkisstjórn Jóns og Gunnu; konur bera uppi fylgi Vinstri grænna en karlar Sjálfstæðisflokksins.

 


mbl.is VG stærsti flokkurinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband