Góður kennari, verri og verstur

Kennari, sem sækir um starf í framhaldsskóla, og er með alla pappíra í lagi og býr að kennslureynslu er ekki ráðinn í starfið fyrr en eftir símtal, sem ræður úrslitum um hvort af ráðningu verður eða ekki.

Skólastjórnandinn tekur upp símann og hringir í skólann þar sem kennarinn starfaði áður. Hann er aðeins með eina spurningu: virkar hann?

Hvers vegna er þetta? Jú, kennari sem hefur fínustu prófgráður getur reynst handónýtur til kennslu. Allir skólastjórnendur vita þetta og af þeirri ástæðu ríkir hreinskilni um umsagnir skólastjórnenda um kennara - og þær eru gefnar í símtali en ekki tölvupósti.

Kennarar virka eða ekki af ástæðum sem liggja í persónu þeirra. Það eru eiginleikar sem bæði er erfitt er að mæla og eru ólíkir frá einum kennara til annars. Farsæll kennari þróar með sér kennsluhætti sem ríma við þá persónu sem hann er. Hann kann vitanlega faggreinina sem hann kennir en hann lærir líka hvað virkar og hvað ekki. Þegar hann nær tökum á þeim þætti kennslunnar fær hann umsögn sem heldur honum í starfi.

Umræða er um að búa til launahvetjandi kerfi fyrir kennara. Hugmyndin er að umbuna ,,góðum" kennurum. Það er vel hægt að mæla marga þætti kennslu s.s. líðan nemenda, fjölbreytileika í kennslu og námsmati, endurnýjun námsefnis og fleiri álíka liði.

En það er ekki hægt að mæla góðan kennara. Og það er ekki hægt að mæla rétta kennsluhætti. Uppskriftin er einfaldlega ekki til. Kennsla hefur verið stunduð á vesturlöndum, með líkum hætti og í dag, allt frá miðöldum. Kennari er með nemendur í skólastofu, kennir og leggur fyrir verkefni og próf og metur frammistöðu nemenda. En samt er ekki til nein forskrift að góðum kennara og réttri kennslu.

Hvers vegna er það? Kennsla er sköpun, sem verður til í samspili kennara og nemenda. Sköpun verður ekki til með forskrift.


RÚV: Trump góður á alþjóðlega villinga

RÚV flytur ekki lof um Trump. Hádegisfréttir í dag voru þó undantekning. Snemma í fréttatímanum sagði að hótanir Trump um að láta eldi og brennisteini rigna yfir Norður-Kóreu bæri þann árangur að kommúnistaríkið lætur af vopnaskaki um sinn.

Seint í sama fréttatíma var frásögn af trúarríkinu Íran, sem kvartar undan stríðslyst Trump.

Ef Trump heldur í skefjum kommúnistaríki og múslímsku klerkaríki er hann til nokkurs nýtur, sagði RÚV í hádeginu.


Tungumálafasismi er ok

Ekki er óhætt að vera stoltur af þjóðerni sínu - maður gæti fengið á sig fasistastimpil. En það má gera kröfu um að útlendingar læri tungumál þeirrar þjóðar sem veitir þeim viðtöku.

Þessa ályktun má draga af umræðunni um kvörtun þýska embættismannsins á engri þýskukunnáttu þjóna í Berlín.

Þjóðernishyggja er að stofni rómantísk, vísar í huglæg viðhorf og gyllir fortíðina. Tungumálakunnátta er hagkvæm og mælanleg. Sá sem ekki kann tugumál samfélagsins er ævarandi úti á þekju, verður aldrei meira en óviðkomandi gestur.

Söguleg uppspretta þjóðernishyggju er tungumálið. Þetta vita Þjóðverjar manna best. Þeir áttu tungumálið í meira en þúsund ár en þýskt ríki aðeins í hálfa aðra öld.

Eftir sex vikur ganga Þjóðverjar til þingkosninga. Þriðji stærsti flokkurinn, samkvæmt könnunum, er AfD sem vill reisa skorður við fjölda útlendinga í landinu og hafnar fjölmenningu þar sem hver talar með sínu nefi. Enginn hinna flokkanna vill vinna með AfD, þeir þykja of fasískir.

Það má vera tungumálafasisti, af hagkvæmnisástæðum, en rómantískur þjóðernisfasismi er bannorð. Pólitískur rétttrúnaðardans er stiginn þar á milli.

 


mbl.is Brjálaður vegna skorts á þýsku
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hitler meðal okkar

Þjóðverjar hafa lög sem banna nasísk tákn og orðræðu. Nasismi er bannorð nema sem sögulegur lærdómur, settur í samhengi við hvert það leiðir þjóð sem gengur fyrir björg.

Hitlerskveðjur á almannafæri þjóna þeim tilgangi að ögra.

En að berja þann sem ögrar er tæplega rétta svarið. Þótt það hljómi vel, að með illu skuli illt út reka. 


mbl.is Laminn vegna nasistakveðju
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ruðningsáhrif Trump-frétta

Fjórar af sjö fréttum i rammanum ,,erlent" á forsíðu mbl.is eru beint eða óbeint um Trump Bandaríkjaforseta. Líklega er þetta ekki einsdæmi um ruðningsáhrif Trump-frétta.

Í útlöndum eru stóratburðir að gerast, stutt er í þýsku þingkosningarnar, Brexit stendur yfir, kosið verður í Noregi innan skamms og margt annað er fréttnæmt.

En Trump trompar aðrar fréttir. Svo klóra menn sér í kollinum yfir velgengni karlsins.


mbl.is Trump hafi líka fordæmt þjóðernissinna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvítir yfirburðir - vestrænt samfélag

Hvíti kynstofninn, að því marki að hann sé til, sem er umdeilanlegt, er ekki með yfirburði yfir aðra kynstofna.

Aftur er vestrænt samfélag með nokkra yfirburði yfir önnur. Og þótt það sé ekki tilviljun að Evrópa er aðalhöfundurinn að vestrænu samfélagi þá er það ekki til marks um kynstofns.

Yfirburðir vestræns samfélags liggja í viðurkenningu á einstaklingsfrelsi óháð kyni, kynþætti, trúarsannfæringu eða öðrum aukaeiginleikum mannsins.


mbl.is Ríkisstjóri Virginíu: „Farið heim“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Viðreisn í tilvistarvanda

Viðreisn var stofnuð til að verða bandalag Samfylkingar við að gera Ísland að ESB-ríki. En það er pólitískur ómöguleiki að ESB-aðild komist á dagskrá næstu árin.

Viðreisn stendur frammi fyrir tveim kostum. Í fyrsta lagi að lognast útaf með Samfylkingunni. Í öðru lagi að endurskilgreina sig, gera upp misheppnaða Evrópuleiðangurinn og finna sér pólitíska syllu til að standa á.

Það verður ekki tekið út með sældinni að gera Viðreisn að lífvænlegum flokki. 


Trú, von og stríð

Orð halda heiminum nokkurn veginn í skorðum. Sum orð eru dýrari en önnur. Lýðræði, mannréttindi og fullveldi eru hátt skrifuð á meðan einveldi, guðleg forsjá og undirgefni seljast á hrakvirði. En ekki löngu síðan voru þau þrjú síðast töldu góð til síns brúks - að halda heiminum í skorðum.

Orð eru til alls vís. Þau bæði vekja til dáða og kæfa framtak og lífsvilja.

Orðahallæri þjakar heiminn upp á síðkastið. Orðin sem áður þóttu skýr og ótvíræð eru bitlaus. Orðin trú, von og kærleikur eru jafngömul tímatali okkar. Það liggur í loftinu að kærleikanum verði skipt út fyrir stríð. Hvorttveggja eru aðeins orð. En þau vísa í gagnólíkan veruleika.

Förum varlega með orðin. Þau eru mörg dýrkeypt.


mbl.is „Bera vott um brjálæði og ofstæki“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Loftslagsvísindi eru pólitísk trúarbrögð

Ópólitískir vísindamenn, eins og Judith Curry, segja að við vitum ekki nógu mikið um loftslagsbreytingar til að slá föstu hvort og þá hve mikið maðurinn hefur áhrif á þær.

Judith Curry er sögð haldin villutrú og að hún sé ,,afneitari" þegar hún heldur fram fullkomlega vísindalegum rökstuðningi í umræðu um loftslagsbreytingar.

Þegar vísindi verða að trúarbrögðum er engin ástæða til að taka mark á þeim. Blind trú er alltaf hættulegri en heilbrigðar efasemdir.


mbl.is Loftlagsbreytingar farnar að hafa áhrif
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hælisleitendur: 3 milljarðar í umframkeyrslu - lausnin er einföld

Hælisleitendur kosta skattborgarana um 5 til 6 milljarða króna á ári, þar af eru 3 milljarðar umfram áætlanir.

Hælisleitendur koma til Íslands í flugvélum. Til Evrópu kemur enginn í flugvél, heldur á mandrápsfleytum yfir Miðjarðarhaf. Hvers vegna? Jú, í Evrópu gildir tilskipun um að flugfélög beri ábyrgð á farþegum sínum. Flugfélögin flytja þess vegna ekki hælisleitendur.

Við gætum tekið upp með einföldum hætti reglur sem gilda í Evrópu. Ef áhugi er fyrir viðtöku hælisleitenda er hægt að auglýsa að sendiráð Íslands tækju við umsóknum. Enginn hælisleitandi kæmi til landsins nema að hafa verið áður samþykktur.

Það þjónar hvorki hagsmunum samfélagsins né hælisleitenda að þeir séu í óvissu hér á landi um sín mál.


mbl.is Geti afgreitt umsóknir samdægurs
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband