Föstudagur, 11. ágúst 2017
Múslímskur rasismi: níðst á hvítum stúlkum
Hópur múslímskra karlmanna frá Pakistan og Bangladess níddist á hundruðum hvítra stúlkna. Þingmenn á breska þinginu krefjast þess að refsing mannanna verði þyngd og tekið mið af því að afbrotin eru kynþáttaníð - rasismi.
Afbrotamennirnir voru allir múslímar en fórnarlömbin hvítar stúlkur.
Frétt mbl.is, sem byggð er á frétt BBC, getur hvorki uppruna mannanna né fórnarlambanna. Hversu langt getur pólitískur rétttrúnaður gengið?
![]() |
Níddust á hópi ungra stúlkna |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 08:38 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Fimmtudagur, 10. ágúst 2017
Sigmundur Davíð um RÚV
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
Fimmtudagur, 10. ágúst 2017
Viðreisn: bændur í stað krónu óvinur nr. 1
Viðreisn, sem mælist utan þings í könnunum, reyndi að gera krónuna að þjóðaróvini og búa til pólitík með því að grafa undan gjaldmiðlinum. Það gekk ekki. Nýjasti óvinur Viðreisnar er bændur og landbúnaður.
Benedikt formaður hallmælir bændum og félagsmálaráðherra úr röðum Viðreisnar tekur í sama streng. Helsti málssvari landsbyggðarinnar, Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, grípur til varna.
Eins og í krónuumræðunni fetar Viðreisn slóð Samfylkingar, sem einnig hafði bændur að skotspæni. Gráglettni örlaganna hagar því svo til að Samfylkingin er ónýtur flokkur - en með þrjá landsbyggðarþingmenn.
![]() |
Vill endurskoða búvörusamninginn |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Fimmtudagur, 10. ágúst 2017
Uppreisn gegn ferðamennsku
Skipulögð mótmæli gegn yfirgangi ferðaþjónustunnar eru haldin í borgum Evrópu. Íbúar í borgum eins og Barcelona, Feneyjum, San Sebastian, Duborvnik og Róm telja ferðaþjónustuna áþján sem leiða til hækkunar húsnæðisverðs og verri lífsgæða.
Guardian dregur saman helstu mótmælin og aðgerðir yfirvalda til að stemma stigu við vaxandi óþoli íbúa gagnvart ferðamönnum.
Á Íslandi er minnkandi jákvæðni gagnvart ferðamönnum. Tímabært er að grípa í taumana áður en verra hlýst af.
![]() |
272 þúsund erlendir ferðamenn í júlí |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Miðvikudagur, 9. ágúst 2017
0, 29 prósent fylgi Sósíalistaflokksins
Skæð eftirspurn er eftir Sósíalistaflokki Gunnars Smára; þriðjungur úr prósenti kjósenda ætla að greiða flokknum atkvæði sitt, segir Kjarninn.
Eitt hugtaka Karls Marx, höfuðspámanns sósíalista, er firring.
Orð Gunnars Smára sýna að hann lifir sig inn í teóríuna. ,,Við eigum fullkomlega erindi", segir hann.
Einmitt - brýnt erindi við 0,29 prósent kjósenda.
![]() |
Við eigum fullkomlega erindi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Miðvikudagur, 9. ágúst 2017
Skólarnir byrja, snjókorn falla
Nemendur á fyrsta ári í háskóla kunna ekki að skrifa heila setningu, en væla endalaust um að ekki sé tekið tillit til sérþarfa þeirra. Þeir eru kvartsár ólæs snjókorn.
Nei, þetta er ekki lýsing úr íslenskum háskóla, heldur breskum. Tibor Fischer er kennarinn sem lætur nemendur heyra það og kveðst ekki einn um hafa þetta álit.
Snjókorn er samkvæmt slanguryrðabók frjálslyndur einstaklingur sem móðgast um leið og hann heyrir eða sér eitthvað sem ekki fellur eins og flís við rass eigin fordóma. Snjókorn telja sig einstæð en eru í reynd viðkvæmust fyrirbæra - eins og fyrirmyndin.
Menningin sem elur af sér fyrirbærið snjókorn er velmegun án lífsbaráttu. Blessuð snjókornin.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Miðvikudagur, 9. ágúst 2017
Heimurinn bjargar Trump
Norður-Kórea heldur Trump Bandaríkjaforseta í alþjóðlegu sviðsljósi. Leiðtogi þýskra sósíaldemókrata og kanslaraefni berst frekar við Trump en Angelu Merkel í kosningabaráttunni. Viðvarandi óöld í miðausturlöndum er vatn á myllu Trump, að ekki sé talað um hryðjuverk herskárra múslíma.
Trump þarf á þessari alþjóðlegu athygli að halda. Í bandarískum innanríkismálum eru fáar góðar fréttir fyrir forsetann. Honum tókst ekki að stokka upp sjúkratryggingakerfið og efnahagsmálin eru aðeins miðlungi í lagi.
Vegna ásakana um að vera handbendi Pútíns Rússlandsforseta á Trump yfir höfði sér ákæru um afglöp í starfi. Sumir spá að innan árs verði hann ekki lengur forseti.
En þegar heimsmálin eru í uppnámi er horft til Trump og hvað hann ætli að gera. Og fari svo að viðsjár aukast þjónar það hagsmunum sitjandi húsbónda í Hvíta húsinu.
![]() |
Svara með eldi og ofsabræði |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Þriðjudagur, 8. ágúst 2017
Rétttrúnaður og fimm daga spár
Veðurvísindi, sá hluti þeirra sem fæst við loftslagsbreytingar, er í pólitískum heljargreipum. Ástæðan er einföld. Þessi vísindi urðu óvísindalegum rétttrúnaði að bráð.
Í nafni rétttrúnaðarins var spáð heimsendi af völdum manngerðra loftslagsbreytinga.
Rétttrúnaðarvísindin segjast sjá fyrir stórkostlegar loftslagsbreytingar af mannavöldum næstu hundrað árin.
Enginn veðurfræðingur getur gefið haldgóða veðurspá lengra fram í tímann en fimm til átta daga. En við eigum að trúa því að sömu vísindi viti að meðalhiti á jörðinni hækki um 0,2 gráður eftir áratugi.
Og meðal annarra orða: hver er aftur kjörhiti jarðarinnar? Einhver?
![]() |
Starfsmenn tali ekki um loftslagsbreytingar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Þriðjudagur, 8. ágúst 2017
Sveinbjörgu sökkt með litlum kostnaði
Samfélagið rekur grunn- og framhaldsskóla til að mennta börn og unglinga. Hugmyndin að baki er að samfélagið mennti yngstu borgarana til að þeir verði nýtir þegnar, standi undir sjálfum sér og greiði skatta og skyldur til samfélagsins.
Ef barn/unglingur hverfur frá námi, t.d. með því að flytja erlendis, er hægt að tala um ,,sokkinn" kostnað - samfélagið fær ekki tilbaka fjárfestinguna í menntuninni. Orð Sveinbjargar Birnu Sveinbjörnsdóttur borgarfulltrúa Framsóknar má skilja á þessa vegu.
En það er sport góða fólksins að finna rasista í Framsóknarflokknum og því voru orð Sveinbjargar túlkuð sem mannvonska - hún vildi synja börnum hælisleitenda menntunar.
Það skrítna í málinu er að framsóknarmenn sjálfir tóku undir rasistastimpilinn og nota hann til að hrekja Sveinbjörgu úr fyrsta sæti framboðslista flokksins í Reykjavík.
Valdabarátta í Framsóknarflokknum lýtur undarlegum lögmálum, sem ekki er nema fyrir innvígða að skilja. Andstæðingum Sveinbjargar innan flokksins finnst hagkvæmt að sökkva henni með vopnum andstæðinga flokksins. En hjaðningavíg innan flokks eru sjaldnast stjórnmálaflokki til framdráttar.
![]() |
Taka undir gagnrýni á Sveinbjörgu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Mánudagur, 7. ágúst 2017
Vantrú og siðleysi
Ný alþjóðleg könnun gefur til kynna að almenningur líti á trúlausa sem siðlaust fólk. Samkvæmt könnuninni telur almenningur í ólíkum trúarsamfélögum að líklegra sé að trúlausir fremji viðurstyggilega glæpa en trúaðir.
Guardian segir frá könnuninni.
Ein spurning: hvers vegna ætti niðurstaðan að koma á óvart?