Loftslagsvísindi eru pólitísk trúarbrögð

Ópólitískir vísindamenn, eins og Judith Curry, segja að við vitum ekki nógu mikið um loftslagsbreytingar til að slá föstu hvort og þá hve mikið maðurinn hefur áhrif á þær.

Judith Curry er sögð haldin villutrú og að hún sé ,,afneitari" þegar hún heldur fram fullkomlega vísindalegum rökstuðningi í umræðu um loftslagsbreytingar.

Þegar vísindi verða að trúarbrögðum er engin ástæða til að taka mark á þeim. Blind trú er alltaf hættulegri en heilbrigðar efasemdir.


mbl.is Loftlagsbreytingar farnar að hafa áhrif
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Aztec

Öfgamaðurinn Stefan Rahmstorf, sem er tengdur IPCC og þekktur fyrir alls konar lygar og ýkjur í sambandi við loftslagsbreytingasvindlið hefur aftur reynt að níðast á þeim sem gagnrýna skýrslurnar frá IPCC, þar sem óvísindamenn falsa gögn. Í þetta skiptið á fréttakonuni Meichsner, sem vildi ekki sætta sig við árásirnar, dró hann fyrir héraðsdómstólinn í Köln og hann tapaði málinu eftirminnilega. Óhróðurinn sem hann skrifaði um hana var dæmdur dauður og ómerkur og Rahmstorf áminntur að hætta að rægja þá sem koma með gagnrýni.

http://www.c3headlines.com/2011/12/stefan-rahmstorf-major-un-ipcc-climategate-scientist-becomes-joke-found-guilty-by-german-court.html

En þetta er dæmigert fyrir hlýnunarsinnana, sannleikurinn er þeirra versti óvinur og þeir eru að falla á tíma, enda fleiri og fleiri sem snúa við þeim bakinu.

Aztec, 12.8.2017 kl. 13:07

2 Smámynd: Ásgrímur Hartmannsson

Það eru loftslags"vísindi."

Þú veist að það er költ um leið og áhangendurnir eru farnir að uppnefna þig fyrir að vera á ósammála.

Eins og kellingin sagði um daginn: "shame on you!"

Ásgrímur Hartmannsson, 15.8.2017 kl. 16:32

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband