Vísindi, örvænting og heilagur sannleikur

Við eigum að hafa áhyggjur af nýju afbrigði Kínaveirunnar en örvænta ekki, segir Biden leiðtogi hins frjálsa heims og húsbóndi í Washington. Svo kemur þetta:

„Við erum með bestu bólu­efn­in í heim­in­um, bestu lyf­in, bestu vís­inda­menn­ina og dag­lega erum við að læra eitt­hvað nýtt,“ sagði for­set­inn.

Ef við lærum daglega eitthvað nýtt þá var þekking okkar í gær vitleysa. Á morgun verður það rangt sem við trúum að sé satt í dag.

Vísindi og pólitík eru samfléttuð í örvæntingu samtímans um að við séum öll að deyja, vegna Kínaveiru eða loftslagsbreytinga.

Við lifum í bjálfamenningu. Allt er annað hvort eða. En lífið er bæði og. Einu sinni vissum við að hinstu rök verða alltaf hulin. Í dag höldum við okkur vita allt. En morgundagurinn býður upp á nýjan sannleika og krefst hlýðni við hann.

Menning okkar var snöggtum heilbrigðari þegar allur þorri manna trúði á almættið. Vegir guðs eru órannsakanlegir enda ekki mannsins að skilja nema brotabrot af eilífðinni. Vísindin eru aftur rannsakanleg. En þau kenna að eitt sé satt í dag en annað á morgun. Og hvorutveggja er heilagur sannleikur. 

 


mbl.is Eðlilegt að hafa áhyggjur en óþarfi að örvænta
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

RÚV afgangsstærð: safn og leikhús

Ýmsar leiðir eru stjórnvaldi opnar til að sýna vanþóknun á undirstofnun. Til dæmis með flutningi milli ráðuneyta. Fyrir helgi var RÚV undirstofnun menntamálaráðuneytis. En með nýskipan ráðuneyta verður RÚV undirstofnun ráðuneytis ferðamála-, viðskipta og menningar.

Lilja Alfreðs verður ráðherra. Hún nefndi ríkisfjölmiðilinn ekki á nafn þegar hún tók við ráðuneytinu. 

Fréttastofa RÚV klórar í bakkann og segir undir Lilju heyra ,,stofnanir eins og Samkeppniseftirlitið, Ríkisútvarpið, Ferðamálastofa, Neytendastofa, Þjóðleikhúsið og hvers konar safnastarfsemi."

Menningarflokkur RÚV er safn og leikhús. Hvað ætli verð sýnt? Jú, afritunarherbergið í kjallaranum. Þar situr Heiðar fréttastjóri og leitar í samheitaorðabók. Á fjölunum verður leiksýningin Fjórmenningarklíkan á Glæpaleiti. Handritið er í smíðum hjá lögreglunni á Akureyri.

 


Háskólar í kreppu

Snjallt hjá nýrri ríkisstjórn að flytja háskóla í ráðuneyti nýsköpunar og iðnaðar. Vestrænir háskólar eru í kreppu, einkum hug- og félagsvísindadeildir. Þrjú dæmi.

Prófessor í Hollandi segir háskóla í höndum aðgerðasinna sem trúa að hugmyndafræði trompi hlutlægan veruleika. Háskólakennarar lifi í stöðugum ótta að segja eitthvað sem stuðar þá ofurnæmu, ,,woke-liðið." Svo eru það vitanlega ruslvísindin um manngert loftslags.

Fyrrum prófessor í Cambridge í Englandi segir háskólafólk ekki lengur kunna jafn sjálfsagða hluti og að kynin séu tvö en ekki þrjú, fimm eða seytján. Háskólar hugsa ekki lengur um sannindi heldur upplifun. Þegar sannleikurinn skiptir ekki lengur máli er tilgangslaust að fara í háskóla, - nema til að fá kjánahroll.

Breskur blaðamaður segir aðgerðasinna og ofurnæma eyðileggja háskóla. Þörf sé á nýjum.

Íslenskir háskólar eru ekki enn gengnir fyrir björg líkt og margir vestrænir. En þróunin stefnir í þá átt.

Með því að setja íslenska háskóla í samhengi við iðnað og nýsköpun fæst kannski jarðtenging við veruleikann áður en það er um seinan.


mbl.is Áslaug: „Draumaráðuneyti fyrir flesta“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fjárfesta í fólki, en skattlegga fyrst

Fyrirtæki fjárfesta í fólki til að auka samkeppnishæfni á markaði. Stjórnvöld sem boða fjárfestingar í fólki ættu að hugsa til þess að áður en til þeirrar fjárfestingar kemur þarf að innheimta skatt - af sama fólkinu.

Ríkisstjórn sem kynnt er til sögunnar í upphafi aðventu fyrirgefst að tala eins og jólasveinninn komi snemma til byggða. Ríkisjólasveinninn gefur gjafir sem viðtakendur borga fullu verði, auk umsýslukostnaðar. 

Stjórnvaldi er hvorki ætlað að gera fólk hamingjusamt né efnað. Meginhlutverk stjórnvalda er að setja samfélaginu leikreglur, sjá um að innviðir séu traustir og að stöðugleiki ríki. Fólk sér sjálft um hamingju sína og fjármál. Engin dæmi í sögunni eru um að stjórnvöld geri þegnana efnaða. En mörg dæmi um að ríkisvaldið skapi fátækt og eymd.


mbl.is Ríkisstjórnin ætlar að fjárfesta í fólki
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Siðblindir á Efstaleiti - hvað segir Katrín forsætis?

Þann 27. maí birtist á RÚV samantekt um svokallaða skæruliðadeild Samherja. Efnisatriðin voru úr fylgiútgáfum ríkisfjölmiðilsins, Stundinni og Kjarnanum, sem upphaflega fengu efnið frá RÚV

Í samantekt RÚV frá 27. maí er ein efnisgrein sérstaklega athyglisverð. Hún er svohljóðandi.

Samherji hefur ekki tjáð sig um starfsemi skæruliðadeildarinnar en Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra er búin að því og segir að fyrirtækið sé komið langt út fyrir mörk sem talin eru eðlileg í samfélaginu. 

Þegar fréttastofa RÚV birti þennan texta vissu að minnsta kosti þrír starfsmenn fréttastofu, þar af tveir yfirmenn, að allar upplýsingarnar um ,,skæruliðadeildina" voru fengnar með lögbroti, eitrun á Páli skipstjóra og stuldi á símtæki hans.

Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra var ginnt til að draga fordæmingarvagn siðblindra á Efstaleiti. RÚV stendur að alvarlegum glæp, manni er byrlað eitur og stolið er frá honum. Eftir glæpinn er fórnarlambið sakað um að fara ,,langt út fyrir mörk sem talin eru eðlileg." Nauðgarinn drusluskammar þolandann. Siðblinda í sinni tærustu mynd.  

Glæpaleiti starfar með blessun forsætisráðherra. Hve lengi enn?


Postulastjórnin

Annað ráðuneyti Katrínar Jakobsdóttur verðu skipað 12 ráðherrum. Lærisveinar Jesú fyllu einnig tylftina. Fagnaðarerindið verður fáyrt en ekki fáheyrt, sem er vel.

Í það stóra og heila skilaði fyrsta ráðuneyti Katrínar af sér góðu búi. Út á þann árangur fengu stjórnarflokkarnir góða kosningu, Framsókn sérstaklega.

Fram að fyrsta ráðuneyti Katrínar 2017 hafði verið viðvarandi stjórnarkreppa frá bankahruni 2008. Aðalávinningur nýliðins kjörtímabils var stjórnfesta, sem almenningur kunni að meta eftir lausung í níu ár.

Um leið og ríkisstjórninni er óskað til hamingju með endurnýjuð heit skal á það minnt að meðal lærisveinanna tólf var náungi að nafni Júdas Ískaríot. Aldrei er of varlega farið. 


mbl.is 12 ráðherrar í nýrri ríkisstjórn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fjórmenningarklíkan á Glæpaleiti

Fjórir starfsmenn RÚV véluðu helst með stolin gögn Páls skipstjóra Steingrímssonar. Fimmti starfsmaðurinn, tæknimaður, er í aukahlutverki. Sá sjötti er utanaðkomandi, verktakinn sem sá um stuldinn og byrlaði Páli eitur.

Síma Páls var stolið aðfaranótt þriðjudagsins 4. maí eftir að hann veiktist skyndilega á Akureyri. Á Efstaleiti voru gerðar ráðstafanir föstudaginn 30. apríl, 4 dögum fyrr. Aðalsteinn Kjartansson blaðamaður á Kveik, fréttarskýringarþætti RÚV, var fluttur yfir á Stundina, sem systir hans stýrir og er eigandi.

Fyrir hádegi 30. apríl var Aðalsteinn starfsmaður RÚV en eftir hádegi var hann orðinn blaðamaður á Stundinni. Eftir hádegi var Aðalsteinn enn á launaskrá RÚV en í vinnu hjá Stundinni. Tilgangurinn með þessum æfingum var að fela aðild RÚV að væntanlegu fréttaefni sem yrði fengið með glæpsamlegum hætti. Hér er þrátt fyrir allt um ríkisfjölmiðil að ræða sem á að heita vandur að virðingu sinni.

Næsti yfirmaður Aðalsteins er Þóra Arnórsdóttir ritstjóri Kveiks. Aðalsteinn var hægri hönd Helga Seljan í Namibíumálinu gegn Samherja sem hófst í nóvember 2019. Yfirmaður þremenninganna er Rakel Þorbergsdóttir fréttastjóri.

Verktakinn á Akureyri hafði beinan aðgang að Páli skipstjóra. Lögreglurannsókn leiðir í ljós hvort RÚV-arar höfðu samband við verktakann að fyrra bragði eða hvort Efstaleiti gekk að tilboði. Allt er á huldu um umbun verktakans, eins og gefur að skilja.

Skipulagið fól í sér að verktakinn stæli símanum og kæmi tækinu á Efstaleiti þar sem snjallsíminn yrði afritaður. Verktakinn skyldi skila símanum aftur til Páls sem átti að vera grunlaus þangað til hann yrði þýfgaður daginn fyrir birtingu ,,fréttaskýringa" í Stundinni og Kjarnanum um aðild að svokallaðri skæruliðadeild Samherja.

Páll skipstjóri þurfti að vera óvígur í 48 klukkustundir til að ráðrúm gæfist að stela símanum á Akureyri, afrita í Reykjavík og skila tilbaka norður. RÚV-arar máttu vita að fullfrískur karlmaður verður ekki meðvitundarlaus í tvo sólarhringa án þess að ,,fá hjálp" til þess. Páll veiktist svo heiftarlega að hann var fluttur með sjúkraflugi suður í gjörgæslu, líklega án símans sem ferðaðist á almennu farrými. Þegar skipstjórinn komst vonum seinna til meðvitundar var búið að skila snjallsímanum.

Úr gögnunum var vinsað á Efstaleiti. Hluti gagnanna fór til Stundarinnar þar sem Aðalsteinn vann úr þeim. Annar hluti fór á Kjarnann, til Þórðar Snæs Júlíussonar ritstjóra. Sá sem deildi út gögnunum til samstarfsmiðlanna hlaut að gerþekkja málið. Böndin berast að Helga Seljan sem varð að fara huldu höfði með nýfallinn siðadóm á herðum sér. Helgi vappaði milli deilda þessa vordaga og lét lítið fyrir sér fara opinberlega.

Unnið var úr gögnunum í 17 daga. Daginn fyrir birtingu höfðu Aðalsteinn og Þórður Snær samband við málsaðila til að fá viðbrögð. Með svona skömmum fyrirvara var ekki hægt að bregðast við af hálfu Páls og annarra Samherjamanna t.d. með lögbanni.

Aðalsteinn birti sína frétt kl. sex að morgni 21. maí en Þórður Snær Kjarnafréttina tveim klukkustundum síðar, kl. 07:52. Birtingatími er samræmdur af miðstöðinni á Efstaleiti til að fá hámarksathygli. Fréttastofan RÚV var virkjuð í framhaldi til að endurbirta valda stubba úr Stundinni og Kjarnanum. Með þessu var enn reynt að hylja slóðina og láta líta svo út að Stundin og Kjarninn hefðu fyrir tilviljun og án vitundar RÚV fengið gögn af himnum ofan. Fólk trúir almennt því sem Efstaleiti ber á borð.

Klíkunni urðu á þrenn afdrifarík mistök, eins og rakið hefur verið.

Nú dregur að lokakafla sögunnar. Boðað er að niðurstaða lögreglurannsóknar liggi fyrir í næstu viku. Þaðan fer málið til ákæruvaldsins.

Pálsmál Steingrímssonar er með tvær hliðar. Önnur er lagaleg og fær réttarfarslega meðferð. Hin er siðferðileg og fjölmiðlapólitísk. Aldrei í sögu vestrænnar fjölmiðlunar, og allra síst þegar í hlut á ríkisfjölmiðill, hefur það gerst að almennur borgari verður fyrir skipulagðri lífshættulegri atlögu og þjófnaði til að fjölmiðill fái fréttaefni. Að slíkt skuli gerast á Íslandi segir þá sögu að ríkisfjölmiðillinn líkist fremur skipulögðum glæpasamtökum en fréttamiðli. Hvernig gat það gerst að glæpaiðja varð ráðandi ritstjórnarstefna RÚV?

Efstaleiti sagði sigri hrósandi 27. maí að Skæruliðadeild Samherja er ekki þáttur á Netflix. Rétt er það. Ekkert merkilegt er að starfsmenn komi fyrirtæki sínu til varnar þegar ósvífin fjölmiðlaherferð herjar á lifibrauðið.

Fjórmenningarklíkan á Glæpaleiti stendur aftur á barmi heimsfrægðar og gæti orðið sjónvarpsefni. Þegar erlendir fjölmiðlar sannfrétta að útvarpsstjóri er fyrrverandi lögreglustjóri er einboðið að úr verði svört kómedía. Glæpakvendin tvö, fréttahvolpar á Deild og Stund ásamt löggunni utangátta. Sennilega kaupir RÚV ekki sýningarréttinn. Ef gamla gufan verður þá enn í rekstri. 

Verðandi menntamálaráðherra, sem fær Pálsmál RÚV í fangið, er vorkunn. 

 


Biðst Stefán afsökunar á lögbrotum RÚV?

Forstjóri Samherja baðst afsökunar vegna starfsmanna sem gengu full djarflega fram að andæfa fjölmiðlaherferð RÚV og fylgimiðla er beindist að útgerðinni. Starfsmenn Samherja brutu engin lög þegar þeir andmæltu herferð RÚV. Á daginn kom að RÚV reisti mál sitt á rógi en ekki rökum. En það er önnur saga.

Þegar svokölluð ,,skæruliðadeild" Samherja var kynnt til sögunnar af dótturfélögum RÚV, Stundinni og Kjarnanum, var byggt á stolnum gögnum sem fengin voru með alvarlegum glæp, eitrun á Páli skipstjóra.

Ritstjóri Kjarnans játar að RÚV sá um að stela gögnunum. Kjarninn og Stundin komu þýfinu á framfæri í búningi frétta. Lögreglurannsókn stendur yfir á málinu og Rakel fréttarstjóri RÚV er hætt störfum.

Nú er spurt: mun Stefán Eiríksson útvarpsstjóri biðjast afsökunar á glæpsamlegu athæfi undirmanna sinna? Eða finnst fyrrum lögreglustjóra sjálfsagt að RÚV afli frétta með lögbrotum? 


Formaður KÍ sagði nemanda sinn sjúkan á geði

Ragnar Þór Pétursson formaður KÍ kallaði fyrrum nemanda sinn ,,sjúkan" eftir að nemandinn kærði Ragnar Þór.

Tilfallandi athugasemdir fjölluðu um málið.

Ragnar Þór er eini formaður KÍ sem hefur fengið á sig vantrauststillögu.

Kennarinn sem bauð börnum heim til sín að kenna þeim annað en námsefnið stingur niður penna til að siða Pál Vilhjálmsson.

Afsakið meðan ég æli.


Eiður Smári og Rakel, innan vallar og utan

Fréttastjóri RÚV hættir skyndilega vegna vandamála innan vallar á Efstaleiti. Það er ekki frétt. Eiður Smári hættir vegna vandamála utan vallar. Það er frétt.

Stefán útvarpsstjóri svarar út og suður, segir ekki neyðarástand á Efstaleiti. Alþjóð veit betur. En það er ekkert að frétta. 

Lögreglurannsókn er á starfsháttum RÚV. Glæpsamlegt athæfi má rekja til ríkisfjölmiðilsins. Stefán á Glæpaleiti veit ekki hve margir aðrir innanbúðarmenn eru til rannsóknar. Þess vegna þorir hann ekki að auglýsa starf Rakelar. Það verður hægt að ráða í starf Eiðs Smára.

Kjarninn játar bæði að hafa fengið stolin gögn frá Efstaleiti og vera ritstýrt þaðan. Gögnin voru fengin eftir að  eitrað var fyrir almennum borgara. Byrlun er aðeins frétt þegar hún varðar kynóra. En það er frétt að Eiður Smári á líf utan vallar.

Um 350 félagar eru í Blaðamannafélagi Íslands. Fjölmiðlar stórir og smári eru á annan tug. Stærsta fréttamál ársins er beint fyrir framan nefið á þeim. En það er ekkert að frétta þegar kunningjar, vinir og starfsfélagar eiga í hlut. Ef Eiður ætti nógu marga vini í blaðamannastétt væri líf hans utan vallar ekki frétt.

Eitt eru fjölmiðlar og blaðamenn allir sammála um. Að ríkið eigi að borga þeim meiri peninga. Þeir gegna svo mikilvægu hlutverki í samfélaginu. Eins og að þegja um glæpi í eigin ranni. Þegar þögnin verður óbærileg má alltaf segja frétt af Eiði Smára utan vallar.


mbl.is Vandamál utan vallar ástæðan fyrir brotthvarfi Eiðs
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband