Björn almannatengill, titlaður blaðamaður

Björn Þorláksson blaðamaður á Fréttablaðinu skrifar frétt eftir pöntun frá sakborningum RSK-miðla. Björn er tengdur fjölskylduböndum sakborningi sem játað hefur að byrla og stela síma Páls skipstjóra Steingrímssonar.

Fréttin er með fyrirsögninni ,,Bjarni og Páley vilja ekki tjá sig um gagnrýni blaðamanna". Fréttin er skrifuð í framhaldi af heimsókn Helga Seljan og Þóru Arnórsdóttur til Björns á Fréttavakt, sjá tilfallandi athugasemd.

Eva Hauksdóttir réttargæslumaður Páls skipstjóra gerði athugasemd við hvernig Björn leyfði sakborningi að útmála sakleysi sitt án minnstu tilraunar meints blaðamanns að vekja athygli á að rannsókn lögreglu benti til sektar.  Einnig hitt að Björn er vanhæfur sökum fjölskyldutengsla við sakborning. Tilfallandi greindu frá á fimmtudag.

Fréttin um Bjarna og Páleyju er gagngert skrifuð til að tortryggja lögreglurannsókn á alvarlegu sakamáli þar sem koma við sögu tilraun til manndráps með byrlun, gagnastuldur, stafrænt kynferðisofbeldi og brot á friðhelgi einkalífs.

Björn Þorláksson reynir að færa kastljósið frá sakborningum yfir á stjórnmálamann og embættismann. Hvorki Bjarni né Páley nenntu að svara bullinu í Birni og þá skrifar hann: ,,Fréttablaðið hefur ítrekað leitað viðbragða hjá Bjarna og Borgeyju vegna gagnrýninnar, án árangurs."

Þetta er beint upp úr handbók RÚV. Gera fólk tortryggilegt sem ekki gefur kost á viðbrögðum við þvættingi. Sakborningar fá drottningarviðtal til að slengja fram ásökunum, handlangarinn gerir orð og ásakanir sakborninga að sínum. Heimtar svo viðbrögð. Þessi ósvífnu vinnubrögð hafa stöðugt færst í aukana á seinni árum. Ástæðan er augljós. Blaðamenn telja sig handhafa almannavalds og það vald hefur stigið þeim til höfuðs. Þeir deila út sýknu og sekt eftir hentugleikum og brjóta lög þegar þeim sýnist. Afleiðingin sést í RSK-sakamálinu þar sem blaðamenn eru sakborningar vegna brota á hegningarlögum. 

Björn starfar eins og almannatengill og notfærir sér stöðu sína sem blaðamaður á Fréttablaðinu að mylja undir skjólstæðinga sína.

Lygarar til leigu, kölluðu blaðamenn almannatengla á síðustu öld. Nú er enginn munur á blaðamönnum og almannatenglum. Jú, reyndar sá að blaðamenn eru flestir hverjir á ríkisframfæri en almannatenglar yfirleitt á launum umbjóðenda. Að því leyti eru þeir heiðarlegri.  


« Fyrri síða

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband