Atlas eđa Úral, Biden eđa Pútín?

Úkraínustríđiđ veldur hruni annars tveggja heima. Annar á heimkynni viđ Atlantshaf en hinn beggja vegna Úralfjalla. Biden Bandaríkjaforseti er fulltrúi Atlantsheims en Pútín Úralveraldar.

Á spýtunni hangir 500 ára saga og gott betur. Ferđ Kólumbusar yfir Atlantsála batt saman Vestur-Evrópu og nýja heiminn. (Innan sviga: sú saga gćti veriđ hálfu lengri ef samtímamönnum Leifs heppna hefđi auđnast betur landtaka Vínlands). Fyrsta kastiđ var bandlagiđ undir spćnsku forrćđi en lengstum engilsaxnesku. Rússland er brćđingur međ eilítiđ lengri sögu, munar eitthvađ ţrem öldum. Rússastofn er ţriggja ţátta. Norrćnir víkingar, slavar og Mongólar sem herjuđu í vestur á tíma Sturlunga á Íslandi.

Úkraína er á ítrustu austurmörkum Atlantsheims. Fái vestriđ sigur ţar á gresjunum stenst ekki Rússaveldi. Hvort Rússar myndu hopa hćgt eđa hratt er opin spurning. En skriftin á veggnum er öllum lćs; Bjarmaland yrđi vestrćn hjálenda á landamćrum Kína. 

Sigri Rússar stöđvast vestrćn framrás í austur sem hófst međ Napóleon 1812 og endurtekin af Hitler 130 árum síđar. Tilraun Karls tólfta á 18. öld telst ekki međ, hún var norrćn ekki vestrćn.

Atlantsheimur stendur veikari fótum en andstćđingurinn sé tekiđ miđ af afstöđu alţjóđsamfélagsins. Gamla vestriđ heldur enn samhljómi. Austur-Evrópa og fylgiríkin Japan og Ástralía eru spök. Ađ öđru leyti er fátt um fína drćtti. Pútín er međ Kína og vinsamlegt Indland. Forn fjandi, Tyrkland, er fremur hliđhollur. Í Afríku mćta Rússar vinum og sama gildir í Suđur-Ameríku. Međal múslímaríkja styrkjast Rússar en vestriđ veikist.

Borgaraleg hugmyndafrćđi var, frá amerísku og frönsku byltingunum ađ telja, helsti styrkleiki Atlantsheims. Á seinni tíđ víkja borgaralegar dygđir fyrir heimsendaspámennsku međ sćnska barniđ Grétu Thunberg í fylkingarbrjósti og andlegri uppdráttarsýki kennd viđ woke. Menning sem heldur kynin ţrjú, fimm eđa seytján fćr ekki marga kaupendur hjá henni alţjóđ.

Pútín býđur praktískari hugmyndafrćđi. Í fjölpóla heimi, segir hann, er vítt til veggja og hátt til lofts. Sinn sé siđur í hverju landi og ekki annarra ađ kássast upp á framandi háttu ţótt ströngustu skilyrđi lýđrćđis og algildra mannréttinda séu ekki uppfyllt. Alţjóđ sér fjölpóla heim Pútín öllu umburđalyndari en síđpúritanisma sćnska stúlkubarnsins. Hagnýt Pútínspeki tengist veruleikanum. Bidenfrćđi eru gamalmenni gengiđ í barndóm.

Gjaldi Atlantsheimur afhrođ í Garđaríki er hćtta á klofningi bandamanna. Rússar yrđu međ flest ráđ Vestur-Evrópu í hendi sér; öll Austur-Evrópa vćri túnfótur Kremlarherra. Bandaríkin eru langt-í-burtu-land ţegar kemur ađ orkuöflun. Heimtaug frá Síberíu er ódýrari svo miklu munar.

Međ innlimun fjögurra úkraínskra hérađa í Rússland lagđi Pútín allt undir. Atlantsheimur teflir ekki sóknarskák í Garđaríki, fórnar ađeins efnislegum gćđum, ekki blóđi. Ţeir sem veđja á vestrćnan sigur ganga međ sólgleraugu í skammdeginu. Pútín er bćđi međ hrók og riddara í endataflinu en Biden ađeins peđ.


mbl.is Pútín mćtir gagnrýni í innsta hring
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt

Bloggfćrslur 8. október 2022

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband