Miðvikudagur, 22. desember 2010
Verkföll eða kosningar í vor
Valið eftir áramót mun standa á milli þess að ríkisstjórnin sitji og samfélagið logi í verkföllum eða boðað verði til kosninga í vor. Ríkisstjórnin á ekkert inni hjá verkalýðshreyfingunni og almenningur hefur snúið baki við Jóhönnu Sig. og Steingrími J. Skötuhjúin notuðu illa þann tíma sem friðarskylda var á vinnumarkaði og geta ekki keypt sér lengri frest.
Ef ríkisstjórnin segir af sér og boðað verður til kosninga myndast aðstæður til að ný stjórn leggi grunn að endurreisn í þágu þjóðarinnar. Verkföllum yrði frestað fram á haust til að gefa nýrri ríkisstjórn færi á að sýna á spilin.
Þjóðin þarf kosningar í vor.
![]() |
Pantanir streyma inn hjá ríkissáttasemjara |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Miðvikudagur, 22. desember 2010
Kona strýkur karli um kinn
![]() |
Skilorðsbundið fangelsi fyrir kinnhest |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Miðvikudagur, 22. desember 2010
Ólafur Ragnar sameini Samfylkingu og Vg
Stjórnarflokkarnir eru báðir komnir að fótum fram. Upplausn ríkir í Vg vegna svika forystunnar við grunngildi flokksins. Samfylkingin á fyrir höndum eyðimerkurgöngu þar sem Jóhanna hættir og aðalmálefni flokksins, umsóknin um ESB, liggur í tætlum.
Ólafur Ragnar Grímsson forseti bjó til ríkisstjórn Jóhönnu Sig. Þegar það liggur fyrir að blessuð vinstribörnin kunna ekki fótum sínum forráð verður foreldrið að stíga fram á sviðið og axla sína ábyrgð.
Ólafur Ragnar er snjallastur íslenskra stjórnmálamanna, það sýndi hann í Icesave-málinu. Verðugt verkefni fyrir hann er að sameina undir formennsku sinni Samfylkinguna og Vinstrihreyfinguna grænt framboð.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Miðvikudagur, 22. desember 2010
Sátt um fjármálafestu
Í nýrri skýrslu Seðlabankans eru kynntir möguleikar á peningamálastjórnun og einn þeirra er ,,verðbólgumarkmið-plús" og er átt við aukinni samþættingu peningamálastjórnunar, sem er í höndum Seðlabanka, og fjármálastjórnunar sem er í höndum ríkisvaldsins.
Eftir hrun er brýnt að nota tækifærið og taka af meiri festu á peningamálum og fjármálastjórnun. Hrunið sýndi okkur villimenn í umgengni við peninga og við svo búið má ekki standa. Tryggvi Þór Herbertsson hefur kynnt tillögu um að setja í lög fjármálareglu sem gerir stjórnvöldum hvers tíma illmögulegt að segja sig frá traumhaldinu.
Fjármálafesta er meginþáttur í endurreisn þjóðarbúaskapar okkar.
![]() |
Verðbólgan í samræmi við markmið |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Miðvikudagur, 22. desember 2010
Síðsovéskur Júdas
Forysta Vinstri grænna er komin út í horn og berst þar í tapaðri stöðu með óþverrameðölum. Tveir ráðherrar, annar núverandi og hinn fyrrverandi, gera stöðu Steingríms J. og Árna Þórs að umtalsefni í greinum í Morgunblaðinu í dag. Hjörleifur Guttormsson spyr um Júdas í postulahópnum og Ögmundur Jónasson frábiður sér síðsovéskar hreinsanir í þingflokknum.
Klukkan glymur forystu Vinstri grænna.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Þriðjudagur, 21. desember 2010
Ríkisstjórnin leitar að hækju
Taugastríð samfylkingarþingmanna gegn sjálfstætt þenkjandi þingmönnum Vinstri grænna birtist í kvöld hótun Oddnýjar G. Harðardóttur, formanns fjárlaganefndar, að starfa ekki með Ásmundi Einari Daðasyni. Í dag voru fréttir um aðfinnslur Ólínu Þorvarðardóttur samfylkingarþingmanns við Lilju Mósesdóttur um að hún væri ekki ,,góður liðsmaður."
Brandarinn í kvöldfréttum RÚV var sá að samfylkingarþingmenn hóta að leita til annarra stjórnmálaafla til að styrkja ríkisstjórnina. Samfylkingin virðist líta á sig sem handhafa ríkisvaldsins og geti á eigin forsendum samið við aðra stjórnmálaflokka um hlutdeild.
Í reynd er ríkisstjórnin að leita sér að hækju vegna þess að hún er búin að missa meirihlutann á alþingi.
![]() |
Hissa á ummælunum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
Þriðjudagur, 21. desember 2010
Löndunarbann í boði Samfylkingar
Samfylkingin er mesti óþurftarflokkur Íslandssögunnar. Á heimavelli styður flokkurinn útrásarglæpamenn og í útlöndum leggst flokkurinn á sveif með yfirgangsseggjum sem finnst allt í lagi að setja milljón tonn af makríl á beit á Íslandsmiðum en krefjast þess að við veiðum ekki sporð af stofninum.
Evrópusambandið telur sig geta ráðskast með Íslendinga þar sem ríkisstjórnin er á hnjánum í Brussel og biðst inngöngu í félagsskapinn.
Ef einhver döngun væri í Samfylkingunni myndi flokkurinn tafarlaust álykta að draga eigi tilbaka umsókn Íslands um aðild að Evrópusambandinu.
![]() |
Skipum verði bannað að landa |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Þriðjudagur, 21. desember 2010
Evrópa snýst gegn sjálfri sér
Evran er vondur prófsteinn á evrópska samstöðu þar sem hún er jú bara mynt en ekki stríðsástand, hryðjuverk eða bylting. Evrópusambandið gæti alveg þegið betra vopn en evru í baráttunni við að halda hópnum saman. Aðeins 16 ríki af 27 eru með evru en þau munu ákveða framtíð samstarfsins sem hófst eftir seinni heimsstyrjöld.
Herskár tónn gagnvart Þjóðverjum hljómar víða. Þjóðverjum er sagt að annað tveggja skuli þeir axla skuldir jaðarríkja evrunnar; Grikklands, Írlands, Spánar og Portúgal eða hypja sig úr myntsamstarfinu. Helsta fréttatímarit Þjóðverja, Der Spiegel, segir berum orðum að Evrópa snúist gegn Þýskalandi.
Hvernig sem allt veltur fer illa fyrir ESB-verkefninu.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Þriðjudagur, 21. desember 2010
Svik við kjósendur veit ekki á góða liðsheild
Þingmaður Samfylkingarinnar, Ólína Þorvarðardóttir, segir Lilju Mósesdóttur þingmann Vinstri grænna verða að gera upp við hvort hún ætli að vera í stjórnarliðinu. Ólína segir að með því að fylgja stjórnarstefnunni verði til ,,góðir liðsmenn, og þannig verða liðsheildir til."
Skrif Ólínu staðfesta tvennt. Í fyrsta lagi ,,bunker-mentalítetið" í stjórnarliðinu og í öðru lagi hrapalegan pólitískan mislestur.
Byggingarefni liðsheildar verða ekki sótt í svik við kjósendur.
![]() |
Ögmundur gagnrýnir bréf þingmanns |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Þriðjudagur, 21. desember 2010
Vinstri grænir klofna, sprengja eða engjast
Vinstrihreyfingin grænt framboð stendur frammi fyrir þrem kostum á útmánuðum. Í fyrsta lagi að flokkurinn klofni formlega og í öðru lagi að sprengja ríkisstjórnina og freista þess að halda flokknum saman með nýju verkefni sem væri kosningabarátta. Klofningur myndi hvort eð er fella ríkisstjórnina og því er seinni kosturinn freisting fyrir forystuna ef hún vill hafa ráðin í hendi sér.
Þriðji kosturinn er að engjast áfram í ríkisstjórn og láta eins og ekkert sé á meðan flokkseldar brenna.
Líklegast verður þriðji kosturinn fyrir valinu þar sem hann er útgjaldaminnstur til skamms tíma. Á hinn bóginn er ósennilegt að Össur Skarphéðinsson sitji á strák sínum og bíði rólegur þess sem verða vill hjá Vg.
Pólitíkin verður venju fremur fjörug eftir áramót.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)