Ólafur Ragnar sameini Samfylkingu og Vg

Stjórnarflokkarnir eru báðir komnir að fótum fram. Upplausn ríkir í Vg vegna svika forystunnar við grunngildi flokksins. Samfylkingin á fyrir höndum eyðimerkurgöngu þar sem Jóhanna hættir og aðalmálefni flokksins, umsóknin um ESB, liggur í tætlum.

Ólafur Ragnar Grímsson forseti bjó til ríkisstjórn Jóhönnu Sig. Þegar það liggur fyrir að blessuð vinstribörnin kunna ekki fótum sínum forráð verður foreldrið að stíga fram á sviðið og axla sína ábyrgð.

Ólafur Ragnar er snjallastur íslenskra stjórnmálamanna, það sýndi hann í Icesave-málinu. Verðugt verkefni fyrir hann er að sameina undir formennsku sinni Samfylkinguna og Vinstrihreyfinguna grænt framboð. 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Björn Birgisson

Held að forsetinn sé 67 ára og því orðinn löggilt gamalmenni. Hann færi aldrei í pólitík aftur. En hvort hann gefur aftur kost á sér til setu á Bessastöðum, það er annað mál.

Björn Birgisson, 22.12.2010 kl. 15:07

2 Smámynd: Elle_

Forsetinn ætlar vonandi ekki að lífga upp á glataða stjórn og stjórnarflokka. 

Elle_, 22.12.2010 kl. 17:01

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband