Föstudagur, 23. desember 2022
Falsfrétt RÚV um Namibíumálið
Enginn Íslendingur eða íslensk fyrirtæki eru ákærð í Namibíu. Í eina dómsmálinu þar í landi, þar sem Samherji kemur við sögu, er fyrirtækið brotaþoli, eins og greint hefur verið frá. Samt birtir RÚV frétt í gær þar sem fyrsta efnisgrein meginmáls er þessi:
Bernhardt Esau, fyrrverandi sjávarútvegsráðherra Namibíu, segist ætla að ljóstra einhverju stórfenglegu upp þegar réttarhöld í máli hans verða tekin upp að nýju á næsta ári. Esau er einn sakborninga vegna meintrar mútuþægni og spillingar í tengslum við veiðiheimildir sem Samherji fékk (undirstrikun pv) þegar fyrirtækið var með starfsemi í Namibíu.
Mútur koma ekki fyrir í ákæruskjalinu. Enska orðið er bribe og það er ekki nefnt. RÚV býr til mútur þar sem engar eru. Ástæðan er augljós. Ef einhver þiggur mútur er óhjákvæmilegt að einhver annar sé mútugjafi. RÚV vill að Samherji sé álitinn mútugjafi. Ríkifjölmiðillinn lýgur blákalt til að telja almenningi trú um að nú sé rekið dómsmál þar sem norðlenska útgerðin er sökuð um mútugjöf. Það er haugalygi.
Frétt RÚV frá í gær er framhald af nokkurra daga gamalli Stundarfrétt Helga Seljan, sem áður var fréttamaður RÚV. Tilfallandi athugasemd fjallaði um frétt Helga og sagði m.a.
Í Namibíumálinu, sem Helgi kallar auðvitað Samherjamálið, er Samherji brotaþoli. Starfsmaður Samherja var blekktur til að borga peninga sem áttu að fara í atvinnuuppbyggingu, fiskeldi. Peningunum var síðan stolið.
Þetta stendur skýrum stöfum í ákæruskjalinu á bls. 58-59. Þar er Mike Nghipunya, forstjóra FISHCOR, gefið að sök stuldur ,,by instructing a Mr. Arnason from Saga Seafood (Pty) them to pay an amount of approximately N$ 9 000 000 to procure fish feed for aquaculture projects and that this be financed through the allocation of a quota under governmental objectives..."
Starfsmaðurinn sem um ræðir, Egill Árnason, var í góðri trú þegar hann greiddi forstjóra opinberrar namibískrar stofnunar fyrir kvóta. Ekki gat Egill vitað að peningunum yrði stolið eftir að hann innti greiðslu af hendi.
Á bls. 58-59 í ákæruskjalinu er fjallað um 17. ákæru málsins er varðar spillingu og stuld. Sama greiðsla Egils Árnasonar kemur aftur fyrir í 20. ákæru á bls. 68 í ákæruskjali. Þar er ákært fyrir umboðssvik (Fraud). Hér er orðrétt tilvitnun í g-lið:
Accused 1 had instructed a M. Arnason from Saga Seafood (Pty) to pay an amount of approximately N$ 9 000 000 to procure fish feed for aquaculture and that this be financed through the allocation of a quota under governmental objectives.
Egill Árnason fékk fyrirmæli hvernig hann ætti að greiða fyrir kvóta frá yfirmanni stofnunar, Fishcor, sem bæði úthlutar og selur kvóta. Fyrirmælin eru samkvæmt opinberri stefnu namibískra stjórnvalda að sala á kvóta fari í opinber verkefni.
RÚV veit þetta. Í fréttinni í gær er vísað í namibíska heimild, Namibian Sun, en þar segir í niðurlagi að fjármagn af kvótasölu skyldi renna til svæða sem verða fyrir skakkaföllum s.s. náttúruhamförum. Fishcor rukkaði Samherja skv. namibískum lögum og reglum, en forstjóri Fishcor stal hluta af greiðslunni frá norðlensku útgerðinni.
Hvergi í ákæru er minnst á mútur, ekki heldur í Namibian Sun. RÚV lýgur blákalt til að koma höggi á Samherja. Er ekki næsta skref að sameina RÚV, Stundina og Kjarnann, RSK-miðla? Þá kæmust helstu falsfréttamenn landsins loksins í eina sæng. Rógur, Skömm og Klækir (RSK) yrði án efa fjölmiðill er teldist húsum hæfur í sumum kreðsum, t.d. hjá vinstrimönnum.
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 07:05 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Fimmtudagur, 22. desember 2022
Jólapakkinn til Úkraínu: meira stríð
Vopnapakkinn sem Biden bandaríski gaf Selenskí Úkraínuforseta er meira stríð. Yfirhershöfðingi Úkraínuhers, Valery Zaluzhny, hvetur til harðari refsinga gegn liðhlaupum, sem vilja ekki fórna lífi fyrir rússneskumælandi land.
Stríðið í Úkraínu er 300 daga. Bjartsýnar spár gera ráð fyrir stríðslokum í vor. Líklega hafa um 150 þúsund týnt lífi. Fjöldi örkumlaðra og alvarlega særðra er sennilega 200 þúsund. Um 350 þúsund týnd og ónýt líf fyrir hvað?
Jú, land, segir æðsti foringi úkraínska hersins, Zaluzhny. ,,Ef ég fæ frá vesturlöndum 300 skriðdreka, 600 til 700 brynvagna og 500 fallbyssur gæti ég fært landamærin aftur til 23. febrúar, áður en innrás Rússa hófst."
Generállinn fær aldrei vopnabirgðirnar sem hann þarf til að hrekja Rússa frá þeim hluta Úkraínu sem er rússneskumælandi. Vopnin er ekki til.
Zaluzhny fær ekki stálið til að sigra og hann kvartar undan liðhlaupum, sem ekki vilja stríða. Í viðtalinu þar sem Zaluzhny biður um vopnin, er birtist upphaflega í Economist 15. desember, segist herforinginn ekki enn tilbúinn að halda Mannerheim-ræðu yfir herliði sínu.
Hvaða Mannerheim-ræðu?
Mannerheim var finnskur starfsbróðir Zaluzhny í vetrarstríðinu við Sovétríkin 1939-1940. Stríðið hófst vegna landakröfu Sovétríkjanna sem vildu tryggja öryggi Pétursborgar sem þá hét Leníngrad. Í staðinn var Finnum boðið annað svæði á landamærum ríkjanna. Finnar neituðu, stríð hófst. Friður var saminn 13. mars 1940, Sovétríkin fengu það sem þau vildu en Finnar ekkert.
Daginn eftir friðarsamninga flutti Mannerheim yfirhershöfðingi Finna ræðu yfir hermönnum sínum til að útskýra fórnir tugþúsunda fyrir ekkert. Við vorum ekki í stakk búnir að heyja stríð við stórveldi, loforð um vestrænan stuðning voru ekki efnd, sagði sá finnski. Hljómar kunnuglega.
Ég er ekki enn tilbúinn að flytja Mannerheim-ræðu, segir Zaluzhny. En hann þykist vita að til þess komi. Annars væri finnska uppgjafarræðan ekki í huga þess úkraínska.
Stríð lúta hörðum lögmálum. Eitt lögmálið er að sá voldugri sigrar þann veikari. Annað er að samningsstaða þess er halloka fer versnar er teygist úr stríðinu. Úkraínumenn voru tilbúnir til samninga í mars - en þá barst þeim vestrænt loforð um aukinn stuðning ásamt hótun um að engin aðstoð kæmi yrði saminn friður.
Þriðja lögmálið er að valdhafar með veikari stöðu geta ekki samið af ótta við stjórnarbyltingu nema vígstaðan sé gjörtöpuð. Ef hernum er ekki slátrað á vígvellinum sækir hluti hans heim Zaluzhny herforingja og Selenskí forseta og lætur þá finna til tevatnsins. Enn á úkraínski herinn mannskap til að etja á foraðið, láta þá blæða út í stríði sem var tapað fyrirfram.
Stærstu mistökin voru að láta koma til stríðs. Það var búið að semja, Minsk I og II. En það voru jú vestrænu loforðin, gomma af peningum og mikið stál. Valdhafar í Kænugarði sáu sig sem vestræna frelsara í austurvegi. Um leið urðu þeir stórríkir. Freistingin var of mikil til hægt væri að standast hana; stríð færir sigurvegaranum herfang og orðstír.
Rússar eru 145 milljónir, Úkraínumenn rúmar 40. Rússar eiga kjarnorkuvopn, Úkraína ekki. Engin geimvísindi þarf til að sjá fyrir niðurstöðuna. Frjálslyndir og vinstrimenn annars vegar og hins vegar kaldastríðshaukar vildu stríð. Þeir búa á vesturlöndum og sjá ekki bræður sína og syni verða að fallbyssufóðri. Þeir herskáu eru aftur ósparir á loforðin.
Þýska hægrikonan Alice Weidel líkir hugarfari stríðsæsingamanna við ráðandi sjónarmið í upphafi fyrra stríðs. Löngun í smáskærur leiddi Evrópu í blóðugt heimsstríð í tveim þáttum, fyrri og seinni heimsstyrjöld. Stríðsæsingurinn var mestur hjá þeim sem ekki fóru sjálfir á vígvöllinn. Óábyrgt, segir sú þýska. Það er háttvíst orðalag á hatursblinda heimsku.
Hægrimenn af íhaldsætt eru sá pólitíski hópur sem sér í gegnum klisjur hermangaranna. Tucker Carlson sallaði niður í fáránleika skrautsýninguna sem var heimsókn Selenskí á Bandaríkjaþing.
Selenskí getur þegið hvaða jólagjöf sem vera skal frá Biden bandaríska. Zaluzhny mun flytja Mannerheim-ræðuna fyrr heldur en seinna.
![]() |
Selenskí lentur í Washington |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Miðvikudagur, 21. desember 2022
Þórður Snær og Ingibjörg: almenningur styðji glæpablaðamennsku
Tveir fjölmiðlar sakborninga í alvarlegu glæpamáli sameinast um áramótin undir nýju nafni og nýrri kennitölu. Þórður Snær ritstjóri Kjarnans er sakborningur, Aðalsteinn bróðir Ingibjargar Daggar ritstjóra Stundarinnar er sakborningur á Stundinni.
Eigendur Kjarnans og Stundarinnar eiga yfir höfði sér kröfur upp á tugi milljóna króna, frá Páli skipstjóra Steingrímssyni. Síma skipstjórans var stolið eftir að hann var gerður óvígur með byrlun í maí í fyrra. Sameinuð útgáfa fær nýja kennitölu.
Ritstjórarnir tveir biðla til almennings að styðja kennitöluflakk frá vettvangi glæps. Í frétt Kjarnans segir: ,,Byggt verður á ráðandi hugmyndafræði Kjarnans og Stundarinnar um valddreifingu og valdeflingu almennings." Hugmyndafræðin réttlætir glæpi til að afla frétta.
Hvorki frétt Kjarnans né Stundarinnar getur þess að sakborningar í refsimáli mynda ritstjórn nýs fjölmiðils. Eitt orð kemur ekki fyrir í fréttum beggja miðla um sameiningu: heiðarleiki. Fjarvistin segir allt sem segja þarf um markmið sameiningarinnar - tilgangurinn er óheiðarlegur.
Kjarninn og Stundin birtu gögn úr síma skipstjórans 21. maí á síðasta ári vitandi að þau voru illa fengin. Að auki deildu blaðamenn RÚV, Stundarinnar og Kjarnann sín á milli, og líklega til annarra, persónulegum gögnum Páls sem höfðu ekkert með meint umfjöllunarefni, Samherja, að gera.
Ákært verður í málinu fyrir morðtilraun með byrlun, gagnastuld, brot á friðhelgi einkalífs hið minnsta. Ekki er vitað hvernig ákæruliðir deilast á sakborninga. Fjórir sakborningar eru blaðamenn: Þeir eru Aðalsteinn Kjartansson á Stundinni, Þórður Snær og Arnar Þór á Kjarnanum og Þóra Arnórsdóttir á RÚV. Fimmti sakborningurinn er andlega veik kona sem byrlaði Páli skipstjóra, stal síma hans og afhenti blaðamönnum.
Kröfur skipstjórans koma fram eftir að ákærur eru kynntar og réttað hefur verið yfir fjórmenningunum. Gögnin sem lögregla aflaði við rannsókn málsins hafa enn ekki verið lögð fram nema að hluta.
Alvarlegustu afbrotin voru framin 3. maí 2021, þegar Páli var byrlað, og dagana á undan og eftir. Hann var meðvitundarlaus til 6. maí. Á þeim tíma var síma hans stolið, hann afritaður, og símanum síðan skilað á sjúkrabeð skipstjórans án þess að hann yrði þess var. Skipulagið gekk út á að skipstjórinn væri grunlaus um að símanum hefði verið stolið. Þess vegna birtust fréttir úr símanum ekki fyrr en 21. maí.
Allt bendir til að glæpurinn gegn Páli hafi verið skipulagður með nokkrum fyrirvara. Tilfallandi athugasemd fjallaði um kringumstæðurnar fyrr í haust:
Aðalsteinn Kjartansson hætti skyndilega á RÚV föstudaginn 30. apríl 2021 og hóf störf samdægurs á Stundinni. Þrem dögum síðar var Páli skipstjóra byrlað. Varla var það veika konan sem sagði Aðalsteini að hætta á RÚV og hefja störf á Stundinni. Eða er það þannig að heimildarmenn sjá um ráðningarmál RSK-miðla?
Fjárfestar, sem lagt hafa fé í Kjarnann og Stundina, sátu uppi með ónýta fjárfestingu og skaddað mannorð. Rökrétta en siðlausa leiðin var að leggja útgáfurnar niður og stofna nýja. Kennitöluflakk er viðtekin aðferð þeirra sem skilja eftir sig sviðna jörð hvar sem þeir koma. Nýtt er að siðleysingjarnir biðli ákaft til almennings að slást með i för, hefja glæpi til vegs og virðingar.
Stundin og Kjarninn lutu báðir ritstjórnarvaldi RÚV, sem var miðstöð glæpsins gegn Páli skipstjóra. Eða dettur einhverjum heilvita í hug að það hafi verið tilviljun að Kjarninn og Stundin birtu samtímis fréttir upp úr síma skipstjórans morguninn 21. maí 2021?
Nafn á nýju útgáfuna er ekki komið. Hér er tillaga: Gróa á Glæpaleiti.
![]() |
Kjarninn og Stundin sameinast á nýju ári |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Þriðjudagur, 20. desember 2022
(R)SK-miðlar skipta um kennitölu
Stundin og Kjarninn eru við að sameinast segir RÚV, sem er óformlegt móðurfélag hinna tveggja í RSK-bandalaginu. Helsta frægðarverk RSK-miðla er að eiga aðild að byrlun Páls skipstjóra Steingrímssonar og stuldi á síma hans. Ólíkt RÚV eru dótturmiðlarnir ekki á fjárlögum en fá engu að síður styrki úr ríkissjóði. Vinstrimenn kunna aftur betur að eyða en afla.
Sigurður Már Jónsson gerði ítarlega grein fyrir tilgangi Kjarnans í tímaritsgrein. Miðillinn var stofnaður til að samfylkja vinstrimönnum. Peningamenn úr Samfylkingunni, Vilhjálmur Þorsteinsson og Ágúst Ólafur þar á meðal, en þeir voru um tíma gjaldkeri og varaformaður flokksins. Vilhjálmur geymdi peningana sína í aflandssjóðum og rak Kjarnann í eigin skrifstofu. Slóttugt að koma aflandsfé í löglegan en siðlausan rekstur.
Samfellt tap er á rekstri Kjarnans allt frá stofnun fyrir tæpum áratug. Markmiðið var aldrei fjárhagsleg afkoma heldur dagskrárvald í umræðunni. Tiltrú og traust eru þar lykilatriði. Þórður Snær ritstjóri og Arnar Þór blaðamaður eru sakborningar í glæprannsókn lögreglu á byrlun og gagnastuldi. Ekki beinlínis traustvekjandi pappírar, félagarnir.
Í gær var Þórður Snær mættur í settið hjá móðurfélaginu sem álitsgjafi i Kastljósþætti. Þar sat hann eins og skoðanalaus kartöflusekkur en játaði í lokin að samruni dótturfélaganna væri í bígerð. Þóra Arnórs meðsakborningur var hvergi sjáanleg. Hún leikstýrir og skipar til verka í RSK-samstarfinu á bakvið tjöldin, samkvæmt lögregluskýrslum.
Stundin er væng á pírata í pólitík og leggur sig eftir woke-umræðunni, einkum neðanbeltismálum. Stundin er tveim árum yngri en Kjarninn, stofnuð 2015. Helstu eigendur eru hjónin Ingibjörg Dögg og Jón Trausti. Þau keyptu sér veglega fasteign á Seltjarnarnesi eftir vel heppnaða hópfjármögnun útgáfunnar. Stundin státar einnig af sakborningi í byrlunar- og gagnastuldsmálinu, Aðalsteini Kjartanssyni, sem er bróðir Ingibjargar Daggar. Fjölmiðlun og fjölskyldubönd hanga saman þegar almenningi er talin trú um að hvítt sé svart. Þá tekur útgáfan við flóttamönnum af Glæpaleiti, hýsir verðlaunagripinn Helga Seljan sem les dómsskjöl á skapandi hátt á milli þess að hann lýsir sig ofsóttasta blaðamanninn norðan Alpafjalla.
Eftir áramót verða birtar ákærur í byrlunar- og gagnastuldsmálinu. Þá verða kennitölur Stundarinnar og Kjarnans endurnýjaðar ef að líkum lætur. Sá möguleiki er einnig fyrir hendi að Stundin yfirtaki Kjarnann og nýti skattalegt tap. Vilhjálmur aflandsmaður sér lítinn tilgang að púkka undir miðil brennimerktan sakamálarannsókn. Dagskrárvald siðferðislegra mínusvaríanta er ekki upp á marga fiska.
Hér er á ferðinni þekkt uppskrift vinstrimanna. Þegar á móti blæs er gamla góssinu fargað, hvort heldur flokkum eða fjölmiðlum. Fyrri iðju, blekkingum og skrumskælingu veruleikans, ásamt glæpum í seinni tíð, er haldið áfram af sama liðinu en undir nýju heiti og oft á annarri kennitölu.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Mánudagur, 19. desember 2022
Messi og kápan svarta
Knattspyrna er eina alheimsíþróttin. Almúgi sem auðmenn setja tíma og fjármuni í leikinn þar sem þeir bestu eru hálfguðir. Einn geðþekkasti þeirra, Lionel Messi, tók við æðstu verðlaunum íþróttarinnar, heimsmeistaratitlinum.
Emírinn í Katar, gestgjafalandsins, klæddi Messi í svarta yfirhöfn við afhendingu verðlaunanna. Samkvæmt fréttum er kuflinn arabískur viðhafnarklæðnaður. Vísir segir ,,vakti það undrun og jafnvel hneykslan að Emírinn hafi tekið upp á því að klæða Messi í svörtu skikkjuna á þessari sögulegu stund."
Knattspyrna er alheimsíþrótt en hún er hvorki iðkuð af heimsborgurum né eru áhangendur, almúgi sem auðmenn, rótlaust þang á heimshöfunum. Heimsmeistaramótið er keppni landsliða og þjóðarstolt í húfi. Gestgjafalandið keypti til sín mótið og vildi fá eitthvað fyrir sinn snúð. Þannig kemur svarta kápan til sögunnar.
Messi og Argentínumenn eru vel að titlinum komnir. Allt hitt er neðanmálsgrein.
![]() |
Kun Aguero bar Messi á herðum sér |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Sunnudagur, 18. desember 2022
Greind, gervisiðferði og leiði
Gervigreind tekur stórstígum framförum. Ásgeir Ingvarsson tekur saman nýlega áfangasigra gervigreindar sem skrifar fullboðlegar námsritgerðir framhaldsskólanema, e.t.v. fræðimanna, og skapar list á við hvern menningarfrömuð á ríkislaunum.
Styttist í, að því er virðist, að fræði og sköpun verði fremur framleiðsla forrita en lista- og fræðimanna.
Gervigreindin nær sér vel á strik en verður þó aldrei í stakk búin að þroska með sér dómgreind, að skilja muninn á réttu og röngu. Taki gervigreind siðferðilega afstöðu yrði það ávallt á forsendum forritara - sem hlýtur alltaf að vera mennskur.
Vaknar þá spurningin hvort mennsk dómgreind sé eitthvað til að hrópa húrra fyrir. Maðurinn er breyskur og lætur blekkjast, telur það rétt sem er rangt. Forrituð dómgreind hefði þann kost að vera fyrirsjáanleg, sem mennska útgáfan er ekki.
Í 19du aldar skáldsögu Óskars Wilde, Myndin af Dorian Gray, heldur söguhetjan æsku sinni og fegurð á meðan portrett hennar á striga eldist og gránar. Innan tíðar verður hægt að setja saman brúðu, sem lítur út eins og mennsk og býr að gervigreind. Brúðan væri portrettið af Dorian Grey: óbreytanleg og eilíf í æsku sinni. Dómgreind gervimennskunnar væri jöfn og stöðug, hún breytti aldrei rangt - að gefnum forsendum, auðvitað.
Hér virðist komin uppskrift að Paradísarheimt á henni jörð. Í stað breyskrar mennsku spígsporuðu um grænar grundir vammlausar brúður gæddar gervigreind.
Í sögulok skáldsögu Wilde gefst söguhetjan upp á fullkominni tilveru og fyrirfer sér. Líkt gæti farið með Paradísarheimt gervigreindar. Lífsleiði yrði henni að aldurtila. Mistökin eru sérgrein mannsins. Án mistaka blasir við fullkominn leiði.
(Ofanritað gæti verið texti skrifaður af gervigreind sem óttast eigin tilveru).
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Laugardagur, 17. desember 2022
Helgi Seljan skáldar Samherjaákæru
Enginn Samherjamaður er ákærður í Namibíu og ekkert fyrirtæki útgerðarinnar er ákært fyrir mútur. Helgi Seljan verðlaunablaðamaður hóf skáldskap um Samherja á RÚV og flutti iðjuna yfir á Stndina þegar honum varð óvært á ríkisfjölmiðlinum.
Í frétt á Stundinni skrifar Helgi að höfuðpaurinn í Namibíumálinu, Bernhardt Esau, fyrrum sjávarútvegsráðherra, vísi sök á meðákærða, sem eru átta Namibíumenn, og segir þá ,,hafa misnotað sér hann og stöðu hans til að afla Samherja kvóta í skiptum fyrir mútur."
Enginn er ákærður fyrir mútur í Namibíumálinu. Orðið mútur kemur ekki fyrir í ákæruliðunum heldur umboðssvik, svindl, peningaþvætti og þjófnaður. Enginn er ákærður fyrir að þiggja mútur og hvergi er sagt að einhver hafi mútað. Ákæruliðirnir eru 28.
Í Namibíumálinu, sem Helgi kallar auðvitað Samherjamálið, er Samherji brotaþoli. Starfsmaður Samherja var blekktur til að borga peninga sem áttu að fara í atvinnuuppbyggingu, fiskeldi. Peningunum var síðan stolið.
Þetta stendur skýrum stöfum í ákæruskjalinu á bls. 58-59. Þar er Mike Nghipunya, forstjóra FISHCOR, gefið að sök stuldur ,,by instructing a Mr. Arnason from Saga Seafood (Pty) them to pay an amount of approximately N$ 9 000 000 to procure fish feed for aquaculture projects and that this be financed through the allocation of a quota under governmental objectives..."
Starfsmaðurinn sem um ræðir, Egill Árnason, var í góðri trú þegar hann greiddi forstjóra opinberrar namibískrar stofnunar fyrir kvóta. Ekki gat Egill vitað að peningunum yrði stolið eftir að hann innti greiðslu af hendi.
Hvað gengur Helga Seljan til með að ljúga upp ákæru í Namibíu um mútugjafir Samherja? Jú, orðspor og æra blaðamannsins er í veði. Þegar rennur upp fyrir fólki að allur málatilbúnaður Helga og félaga á RSK-miðlum er uppspuni og gróusögur er fokið í flest skjól fyrir fréttagörpunum sem umliðin ár hafa stundað skipulega fréttafölsun og veitt sjálfum sér verðlaun fyrir.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Föstudagur, 16. desember 2022
RÚV er 101-fjölmiðill, óheiðarlegur
RÚV endurspeglar pólitík og lífsviðhorf þeirra sem búa í og við miðbæ Reykjavíkur. Pólitíkin er til vinstri og lífstíllinn er á reiðhjóli. Verstur er þó óheiðarleikinn og spillingin á bakvið tjöldin.
Val á fréttum, viðmælendum í spjallþáttum og efnistök í þáttagerð endurspegla fordóma vinstrimanna, allt niður í barnatíma eins og nýlegt dæmi er um.
Til að styrkja stöðu sína er óformlegt og ósamþykkt fyrirkomulag á milli RÚV og jaðarmiðla vinstrimanna, Stundarinnar og Kjarnans. RÚV niðurgreiðir launakostnað Kjarnans með því að ritstjóri útgáfunnar er fastur verktaki hjá RÚV. Blaðamenn af RÚV fara á Stundina þegar fagleg og lagaleg staða þeirra er orðin viðkvæm á Efstaleiti.
Fréttastofa RÚV leikur þann leik að fréttir sem ríkisfjölmiðillinn getur ekki opnað, verið upphafsaðili að, eru sendar til birtingar í Stundinni og Kjarnanum. RÚV kemur í humátt á eftir og segir ,,samkvæmt frétt í Stundinni/Kjarnanum...". Vinnubrögðin eru óheiðarleg og í ætt við fréttafölsun.
Rökin fyrir ríkisstuðningi til fjölmiðla eru að sem flestar sjálfstæðar raddir heyrist í frétta- og dagskrárgerð. Bandalag RÚV, Stundarinnar og Kjarnans, RSK-miðla, er svikamylla um að ríkið fjármagni eina ritstjórnarstefnu á þrem fjölmiðlum.
Fréttastofa RÚV heldur uppi herferð gegn fyrirtækjum á landsbyggðinni. Ásetningurinn og einbeittur brotavilji birtist í því að yfirmenn RÚV eru sakborningar í alvarlegum glæpum. Sama gildi um bandalagsmiðlana, Stundina og Kjarnann. Þrír fjölmiðlar, ein og sama glæpavædda spillingin.
RÚV er miðstöð ríkisrekins fjölmiðlaóheiðarleika með vinstrislagsíðu.
![]() |
Styrkurinn kominn til vegna bágborinnar umfjöllunar Rúv |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Fimmtudagur, 15. desember 2022
Einar svíkur okkur um hitabylgju
Í sumar lofaði Einar Sveinbjörnsson veðurfræðingur okkur tíðari hitabylgjum. Hann sagði:
Ég held að það sé alveg ljóst að þessar hitabylgjur verða alltaf tíðari í Evrópu og víðar. Menn tengja bæði aukna tíðni hitabylgjanna og mátt þeirra við loftlagsbreytingar.
Fimm mánuðum síðar boðar Einar mesta kuldahretið á þessari öld.
Er það þannig að loftslagsbreytingar gilda aðeins í sex mánuði eða skemur? Eða eru loftslagsbreytingar aðeins að verki yfir sumarið?
Kannski að loftslagsbreytingar séu hátíðlegt orðalag yfir veður? Sem við vitum að er eitt í dag og oft annað á morgun. Nema í hitabylgju og kuldahreti; þá koma nokkrir dagar með samfelldu veðri.
Samkvæmt fræðunum er loftslag meðaltalsveður í 30 ár eða lengur. Talað er um miðaldahlýskeiðið frá um 900 til 1300 og litlu ísöld í sex hundruð ár þar á eftir. Þegar þannig er tekið til orða er átt við að tiltekið tímabili er hlýrra eða kaldara en tímabil á undan eða eftir.
Á seinni tíð er aftur farið að tala um loftslagsbreytingar ef hlýindi standa yfir í nokkra daga eða lengur. En ekki þegar kuldaboli ríkir; þá heitir það veður. Ástæðan er að fólk sem ekkert veit um veður er sannfært um að það sé manngert helvíti og heitt eftir því. Heimska fólkið harmar hlýindi eins og tröllin dagrenningu.
Veðurfræðingar, sem láta sér annt um orðsporið, ættu að temja sér tungutak fræðanna og tala um veður en láta Grétur frá Tungubergi um loftslagshamfarir á morgun þegar hitastigið verður annað en það er í dag.
![]() |
Stefnir í eitt mesta kuldakastið á þessari öld |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Miðvikudagur, 14. desember 2022
Pólitísk kvótaúthlutun rót spillingar í Namibíu
Í ákæru saksóknara í Namibíu á hendur níu namibískum sakborningum vegna úthlutunar á veiðiheimildum (sjá færslu í gær) segir að rót spillingarinnar megi rekja til lagabreytinga árið 2015. Markmið laganna voru göfug en framkvæmdin spilling og glæpir.
Lagabreytingarnar voru gerðar að undirlagi Bernhardt Esau, sem var sjávarútvegsráðherra Namibíu allt frá árinu 2010 og fram að handtöku í desember 2019. Lagabreytingin var gerð í kjölfar dómsmáls sem suður-afrísk útgerð, Namsov, höfðaði og vann fyrir namibískum dómstól. Namsov var stærsta útlenda útgerðin í Namibíu og taldi úthlutun á veiðiheimildum á hrossamakríl ekki standast lög.
,,Dómsmálið hratt af stað atburðarás spillingar og afbrota, sem nú standa til ákæru," segir í ákæruskjali.
Lagabreytingarnar sem Esau og félagar beittu sér fyrir fólust í að sjávarútvegsráðuneytið fengi heimild til að úthluta kvóta til annarra en þeirra sem áttu veiðirétt lögum samkvæmt. Markmiðið var að stjórnvöld gætu nýtt tekjur af kvótasölu í þágu félagslegra aðgerða, s.s. bæta hag fátækra og þeirra sem verða fyrir búsifjum vegna þurrka.
Lögin voru opin og loðin. Þar sagði m.a. að stjórnvöld hefðu heimild að taka hluta heildarkvóta í þágu ,,félagslegra og menningarlegra markmiða."
Hrossamakríll er flökkustofn. Heildarkvóti Namibíu síðustu ár hefur verið um 300 þúsund tonn. Undirstofnun sjávarútvegsráðuneytisins þar í landi, Fishcor, fær til sín um 20-30% aflaheimilda. Fishcor varð miðstöð spillingar þar sem kvótar voru seldir en afraksturinn skilaði sér ekki allur í opinbera sjóði heldur fór hluti til Esau og félaga.
Fyrirkomulagið sem var tekið upp með lagabreytingum kom ekki í staðinn fyrir eldri aðferðir við kvótaúthlutun heldur var það viðbót - en hlutfallslegt magn til annarra kvótahafa minnkaði vegna kvótans sem fór til Fishcor.
Jóhannes Stefánsson, síðar uppljóstrari, hóf að kanna möguleika á að semja um veiðar fyrir Samherja árið 2011. Viðurkennt fyrirkomulag var að namibískir kvótaeigendur, sem einir máttu vera handhafar kvóta, höfðu með sér sameignarfélög, ,,joint venture" sem kölluðust jv-félög. Fyrir hönd Samherja gerði Jóhannes samninga um að veiða kvóta þriggja slíkra félaga: Yukor, Sinco og Epango. Eitt til tvö skip Samherja veiddu.
Jóhannes kynntist Esau sem var nýorðinn sjávarútvegsráðherra er Íslendinginn bar að garði þar syðra. Líklega hefur hvor lært af hinum hvernig heppilegast sé að stunda kvótaviðskipti sem uppfylla opinber skilyrði en skila a.m.k. hluta afraksturs í ,,réttar" hendur.
Jóhannes hélt í hendi sér öllum þráðum samskipta við jv-félögin. Hann fann til sín og taldi sig eiga í fullu tré við Namibíumenn en ekki síður við yfirstjórn Samherja á Íslandi. Skömmu áður en Jóhannes var rekinn, sumarið 2016, sendi hann tölvupóst til íslensks lögmanns og sagðist vera ,,valdameiri en Þorsteinn Már [forstjóri Samherja] varðandi kvóta í Namibíu."
Valdavíma Jóhannesar blandaðist annarri sem bætti ekki dómgreindina. Hann missti fótanna í lifnaði sem ekki er kenndur við fermingardrengi og um leið álit samstarfsfélaga og vinnuveitenda.
Hvorki Jóhannes né gögn frá honum koma við sögu í ákæruskjalinu gegn níu Namibíumönnum, Esau og félögum. Jóhannes hvarf af vettvangi sumarið 2016. Þremur árum síðar dúkkaði hann upp í Kveiks-þætti RSK-miðla með ásakanir um stórkostlega glæpi á sinni vakt 2011-2016. En engar ákærur hafa verið gefnar út á þeim grunni. Jóhannesarsaga um hlut Samherja var spunnin til heimabrúks á Glæpaleiti. Verðlaunablaðamenn þar á bæ, nú vitni og sakborningar í öðru glæpamáli, sáu sér leik á borði eftir að hafa farið halloka fyrir Samherja í seðlabankamálinu.
Alþjóðaútgáfan af Jóhannesarsögu snerist ekki um Samherja heldur namibísku embættismennina sem sæta ákæru. Alþjóðaútgáfan heitir Fishrot og Al Jazeera sá um að koma þeirri útgáfu á framfæri.
Í báðum tilvikum var Kristinn Hrafnsson maðurinn á bakvið tjöldin. Kristinn viðurkenndi að það þurfi að ,,matreiða og verka þessi mál" til að mæta mismunandi þörfum markhópa fyrir spillingu. Í þessu tilviki var sjúskuð heimild klædd í betri fötin og kynnt sem uppljóstrari. Markaðssetningin heppnaðist. Vinstrimenn keyptu fúskið á Íslandi og sáu hvíta arðræningja féfletta saklausa svarta. Málið horfði á annan veg þar syðra.
Í Namibíu var eftirspurn eftir spillingarumræðu. Ein fylking namibískra stjórnmálamann þurfti að koma annarri fyrir kattarnef. Namibía er eins flokks ríki þar sem klíkur og ættir skipta með sér völdum innan ríkisflokksins SWAPO. Esau og félögum var stungið í steininn eftir uppljóstrun Al Jazeera. Þeir sitja þar enn ákærðir en ódæmdir og rotna á meðan aðrir sjá um bitlingana. Yfirstandandi dómsmál gegn þeim gæti tekið eitt ár en kannski þrjú eða fimm. Fer eftir pólitískum hentugleikum.
Pólitíska úthlutunarkerfið sem komið var á í Namibíu 2015, og er forsenda auðgunarbrota níumenningana, að sögn saksóknara, er enn við lýði. Það eru bara aðrir sem maka krókinn.
Pólitísk úthlutun fer enn fram á vegum Fishcor. Tunacor heitir samsteypa fyrirtækja sem fær mestar veiðiheimildir í hrossamakríl. Fyrrum skip Samherja, Heinaste, er í eigu Tunacor. Í frétt um hvernig samsteypan er byggð upp segir
Flest fyrirtækin undir merkjum Tunacor eru í eignarhaldi stjórnmálamanna eða tengdra aðila, vina, fjölskyldu og áhangenda.
Sjávarútvegsráðherra heitir núna Albert Kawana. Nýi ráðherrann er kominn á jötuna með sitt lið þar sem áður voru Esau og félagar. Allt annað er óbreytt. Pólitísk kvótaúthlutun er til að græða á henni. Hér í norðrinu græða menn aftur á pólitískum ofsóknum þar sem fjölmiðlar og vinstrimenn eru hvað afkastamestir.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)