Þriðjudagur, 29. mars 2022
Vestur-Evrópa skammast sín fyrir Biden
Nýlenduveldi Evrópu komu sér upp leppstjórnum í þriðja heiminum á 18. öld, t.d. Bretar á Índlandi. Fram eftir 20. öld, þegar nýlendustefnan var komin í ónáð, voru þvinguð stjórnarskipti, t.d. í Chile 1973, réttlætt með kalda stríðinu, baráttu borgaralegs lýðræðis gegn kommúnisma/sósíalisma. Þegar Hussein forseta Írak og stjórn hans var steypt af stóli 2003 voru rökin ,,stríð gegn hryðjuverkum".
Þegar Biden Bandaríkjaforseti kallar Pútín starfsbróður sinn í Rússlandi ,,fjöldamorðingja" og ,,slátrara" er rökrétt að krefjast þess að Pútín láti af völdum með góðu eða illu. Látið var að því liggja að um mismæli Bandaríkjaforseta væri að ræða. Nei, segir Alexander Mercouris, krafan um stjórnarskipti í Rússlandi er rauður þráður í ræðunni. Lokaorðin eru niðurstaða þess sem á undan var sagt. Biden kemur sjálfur í kjölfarið og staðhæfir að hann vilji Pútín á braut. Washington skal ráða hver situr Moskvu.
Vestræn ríki sem krefjast stjórnarskipta í langt-í-burtu-ríkjum setja sig á háan hest. Viðhorfið er, að breyttu breytanda, sama og í ljóði Rudyard Kipling um byrði hvíta mannsins. Efnislega segir Kipling að aðrir en hvítir vestrænir séu til helminga villimenn og börn. Sögulegt hlutverk vestrænna þjóða sé að koma skikki á bernsku villimennina sem byggja heiminn utan Vestur-Evrópu og Ameríku. Breski sagnfræðingurinn David Starkey ræðir framlag Biden í samhengi við vestrænan hroka samtímans. Rússar eru á sigurbraut í hugmyndabaráttunni, segir sá breski.
Evrópuríki eru næmari á blæbrigði sögunnar en valdaelítan í Bandaríkjunum. Valdamenn í Evrópu hrukku í kút við orð Biden um stjórnarskipti í Rússlandi. Evrópskir þvo hendur sínar af leiðtoga hins frjálsa heims.
En skaðinn er skeður. Alþjóð utan vesturlanda lítur á Úkraínudeiluna, eftir ummæli Biden, sem heimsvaldastríð Bandaríkjanna og Nató gegn þeim ekki-vestrænu. Það er óvart um 75 prósent heimsbyggðarinnar.
Eins og kerlingin sagði, tvennt verður ekki aftur tekið, tapaður meydómur og töluð orð.
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 07:47 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Mánudagur, 28. mars 2022
Hvað gerir Aðalsteinn? Þóra? Þórður Snær?
Átta dómarar í landsrétti og hæstarétti úrskurða að Aðalsteinn Kjartansson blaðamaður á Stundinni eigi að mæta til skýrslutöku til lögreglu sem grunaður í rannsókn á byrlun Páls skipstjóra Steingrímssonar og stuldi á síma hans. Níundi dómarinn, eiginkona Loga formanns Samfylkingar, sagði ólögmætt af lögreglu að boða Aðalstein. Sennilega er það pólitískasti úrskurður dómara í lýðveldissögunni.
Auk Aðalsteins eiga Þóra Arnórsdóttir á RÚV og Þórður Snær Júlíusson á Kjarnanum að mæta í skýrslutöku hjá lögreglu sem sakborningar. Ekki er það staðfest en líkur eru á að fyrrum RÚV-arar, Helgi Seljan og Rakel Þorbergsdóttir, séu einnig sakborningar.
Úr herbúðum RSK-miðla (RÚV, Stundarinnar og Kjarnans) heyrist að Aðalsteinn velti fyrir sér að mæta ekki í yfirheyrslu og láta lögregluna sækja sig. Yrði það til að fá myndefni fyrir erlenda fjölmiðla að sýna hvernig komið er fyrir blaðamönnum á Íslandi.
Til skamms tíma nutu RSK-miðlar tiltrúar hér heima. En þegar það rann upp fyrir almenningi að ekki væri það vel gott fyrir samfélagið að blaðamenn nytu friðhelgi að byrla og stela einkagögnum til að þjóna lund sinni snarminnkaði stuðningurinn.
Glæpaumræðan í kringum netútgáfuna Mannlíf, sem Reynir Trausta stjórnar, faðir og tengdafaðir eigenda Stundarinnar, hjálpaði ekki upp á sakirnar. Fréttir af útúrdópuðum og drukknum blaðamönnum að gera sig gildandi í samfélagsumræðunni eru einar og sér skammarlegar. En að þannig innréttaðir meintir þjónar almennings fái friðhelgi að gera atlögu að lífi og heilsu almennra borgara og stela frá þeim einkagögnum er beinlínis tilræði við sómakært samfélag.
Aðalsteinn á tvo kosti. Í fyrsta lagi að haga sér eins og siðaður maður og gera hreint fyrir sínum dyrum hjá lögreglu. Í öðru lagi að streitast við og telja sig hafinn yfir landslög og almennt siðferði.
Fyrir þorra manna er valið einfalt. En aðrir eru þannig gerðir að í þá vantar siðferðilega kjölfestu.
![]() |
Aðalsteinn yfirheyrður eftir frávísun Hæstaréttar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Sunnudagur, 27. mars 2022
Pútín sigrar, fjölmiðlar blekkja, Biden talar af sér
Biden Bandaríkjaforseti tryggði Pútín pólitískan sigur í Úkraínudeilunni með því að krefjast stjórnarskipta í Moskvu. Ríki Asíu og Afríku munu fylkja sér um Pútín, aðeins Evrópa og Ástralía standa með Biden. Bandaríkjaforseti talar eins og nýlenduherra og það fer ekki vel ofan í aðra en gömlu nýlenduríkin sem á 19. öld boðuðu yfirburði hvíta mannsins.
Áður en Biden færði rússneskum starfsbróður sigur á silfurfati var rússneski herinn búinn að leggja undir sig þá hluta Úkraínu sem skiptu máli. Vestrænir fjölmiðlar fatta það ekki en Pútín forseti Rússlands er búinn að ná þeim árangri í Úkraínu að kalla má að sigur sé í höfn.
Úkraína verði ekki Nató-ríki var fyrsta markmið Rússa. Það hefur náðst. Aðeins útfærslan er eftir. Úkraína fær ekki Nató-aðild á meðan rússneskur her er í landinu. Engir friðarsamningar verða gerðir án skuldbindinga um hlutleysi. Hvort heldur sem er verður Úkraína ekki Nató-ríki.
Annað markmið Rússa var að tryggja stöðu Krímskagans og austurhéraðanna, Donbass. Rússneski herinn stjórnar allri strandlengjunni við Azov-haf frá Rússlandi til Krímskaga. Donbass liggur norður af strandlengjunni og er tryggilega undir stjórn Rússa.
Þriðja markmið Rússa var að afvopna úkraínska herinn. Það er hægt með tvennu móti. Í fyrsta lagi með samningum en í öðru lagi með sigri á vígvellinum. Meginstyrkur herliðs Úkraínu var staðsettur vestan við Donbass. Rússar eru um það bil að umkringja þennan her með sókn úr norðri og austri. Meiri líkur en minni eru að meginherafli Úkraínu, sem er samtals um 200 þúsund, verði sigraður. Afvopnun sem sagt.
Eina markmið Rússa, sem ekki hefur náðst, er að skipta um ríkisstjórn í Úkraínu. Vafi leikur um þetta markmið. Pútín hefur ekki sagt það berum orðum. Með því að rússneski herinn, sem beitt er gegn Úkraínu, er ekki nema um 150 þúsund, af milljón manna herliði, er hæpið að hugur Rússa hafi staðið til að leggja undir sig allt landið og setja upp leppstjórn í Kænugarði. Leppstjórnir, sýnir sagan, virka illa. Finnlandisering virkar vel.
Vestrænir fjölmiðlar hafa ekki greint þessa þróun enda blindaðir af hugmyndafræði. Ráðandi frásögn vestrænna fjölmiðla er að nokkrar klukkustundir séu í það að síðasti Rússinn skríði heim frá Úkraínu með buxurnar á hælunum. Bandaríkjamaður, sem hefur verið búsettur í Donbass sl. átta ár, hefur aðra sögu að segja, svo dæmi sé tekið.
Í sjálfu sér er fallegt að standa með Úkraínu gegn ofurvaldi Rússa. En að láta það villa sér sýn á hvað gerist í raunheimi, á vígvellinum í þessu tilviki, er að taka óskhyggju fram yfir harðar staðreyndir. Fjölmiðlar sem klappstýrur eru kannski með skemmtigildi en heldur lítið upplýsingagildi.
Átök í Úkraínu standa enn yfir, því miður. Engin leið er að spá fyrir um hvenær þeim linnir. Það veit ekki á gott fyrir vesturlönd almennt að helstu fjölmiðlar stundi kerfisbundna sjálfsblekkingu um að vestrænn málstaður sé á sigurgöngu þegar hann geldur afhroð. Vesturlönd munu seint skilja hverjum klukkan glymur í Úkraínu þegar fjölmiðlaumræðan er út í móa.
![]() |
Söguleg stefnubreyting dregin til baka |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
Laugardagur, 26. mars 2022
Þóra á Glæpaleiti ekki tilnefnd
Stærsta fréttamál ársins 2021 er byrlun Páls skipstjóra Steingrímssonar og stuldur á síma hans. Aldrei í sögunni hafa blaðamenn gengið jafn langt í að brjóta á mannréttindum almenns borgara til að hanna fréttafrásögn. RÚV gerði samkomulag við X að að byrla skipstjóranum og stela símanum í apríl á liðnu ári.
Á Efstaleiti var síminn afritaður og afhentur á ný til X sem skilaði tækinu á sjúkrabeð Páls skipstjóra. Þetta gerðist 4. og 5. maí. Nokkrum dögum áður, eða 30. apríl, var Aðalsteinn Kjartansson blaðamaður fluttur af RÚV yfir á Stundina til að vera viðbúinn að taka við gögnum frá miðstöðinni á Glæpaleiti.
RÚV hnippti í annan blaðamann, Þórð Snæ Júlíusson á Kjarnanum, og sagði honum að vera til þjónustu reiðubúinn þegar kallið kæmi frá Glæpaleiti. Þórður Snær er húsgangur á Glæpaleiti.
Kallið kom 20. maí. Þá var Aðalsteini og Þórði Snæ skipað að hringja í Pál skipstjóra og tilkynna honum að Stundin og Kjarninn ætluðu að birta samræmda fréttaskýringu daginn eftir. Skipulagið var nákvæmt á Glæpaleiti. Aðeins liðu tíu mínútur á milli símtalanna. Daginn eftir birtu Stundin og Kjarninn fréttir sínar samtímis.
Páll kærði byrlun og stuld. Rannsókn lögreglu leiddi til þess að Þóra Arnórsdóttir yfirmaður á RÚV er sakborningur sem og Aðalsteinn og Þórður Snær.
Dómnefnd blaðamannaverðlaun Blaðamannafélags Íslands hefur tilnefnt þá Aðalstein og Þórð Snæ til verðlauna fyrir að birta stolið efni sem fengið var með byrlun, afritað og útbúið á RÚV. Blaðamannasamtök sem tilnefna til verðlauna menn grunaða um glæp grafa undan réttarríkinu. Glæpablaðamennska er ekki í þágu almannahagsmuna heldur óreiðuafla sem vilja slíta í sundur samfélagsfriðinn. Stéttarfélag blaðamanna er í stríði gegn almannahag. Nokkuð sérstakt.
Þóra á Glæpaleiti fær aftur enga tilnefningu. Án aðkomu hennar hefðu þó engar fréttir birst í Kjarnanum og Stundinni um innihaldið í símtæki skipstjórans.
Tilkynnt verður um verðlaunin 1. apríl. Ekki hefur verið ákveðið hvar þau verða veitt. Leitað er að viðeigandi salarkynnum á Hólmsheiði.
![]() |
Morgunblaðið tilnefnt fyrir viðtal ársins |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 08:37 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Föstudagur, 25. mars 2022
Konur, trans og raun
Ekki er lengur hægt að ganga að vísri skilgreiningu á konu. Verðandi dómari við hæstarétt Bandaríkjanna, Ketanji Brown Jackson, fékk spurninguna Hvað er kona? þegar hún sat fyrir svörum hjá þingnefnd. Dómaraefninu vafðist tunga um tönn, sagðist ekki líffræðingur. Tucker Carlson henti gaman að og velt fyrir sér hvort maður þyrfti að vera dýralæknir til að vita hvað sé hundur.
Lia Thomas var karl en ákvað að verða kona og sækja sér verðlaun í sundíþróttum kvenna. Er Lia í raun og veru kona eða karlkona, sem er annað orð yfir transkonur?
Til skamms tíma var einfalt að skilgreina kynin, til dæmis út frá æxlunarfærum og litningum. En svo ruddi sér til rúms einstaklingshyggja sem kennir að við séum það kyn sem við viljum vera. Karl í dag en kerla á morgun. Kyn er ekki líffræði heldur persónulegt val.
Konur eru, eins og alþjóð veit, forréttindastétt síðustu áratugi. Í nafni jafnréttis eru margvíslegar ráðstafanir gerðar til að valdefla konur. Afleiðingin er t.d. að nær 70 prósent háskólanema eru konur, karlar rétt um þriðjungur. Háskólamenntaðir fá almennt hærri laun og meiri mannaforráð en starfstéttir án háskólamenntunar. Valdastéttin verður kvenkyns fyrr en varir. Jafnhliða þessari þróun er körlum kennt að skammast sín fyrir kynið sem þeir tilheyra. Karlar eru sagðir höfundar ómenningar, hvort heldur rasisma eða faraldurs nauðgana.
Veikara kynið sækist í auknum mæli eftir aðild að valdastéttinni, nær sér í viðskeytið trans og gerist kona. Þótt konum sé frjálst að verða transkarlar eru þær heldur fáar kjósa það hlutskipti. Eðlilega, þær segðu sig þar með frá forréttindum kvenna.
Transkonur eru með líkamsmassa karla og geta hæglega útrýmt raunkonum í íþróttum, ákveði nógu margir karlar að gerast konur. Íþróttir verða kynlausar.
Í transmenningu er ekkert til sem heitir karl eða kona. Transheimurinn er einkynja. Áfram verða til kynhlutverk en þau eru valkvæð. Karl fyrir hádegi en kerling á kvöldin. Fyrirsjáanlega verður í jaðarmenningunni eftirspurn eftir einhverju sem heitir ekta karl og ekta kona. En það yrði eins og að tala um ekta plast.
![]() |
Situr fyrir svörum fram á fimmtudag |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Fimmtudagur, 24. mars 2022
Fréttabann á Glæpaleiti
Þóra Arnórsdóttir á RÚV var boðuð í yfirheyrslu sem sakborningur í glæparannsókn lögreglu á byrlun Páls skipstjóra Steingrímssonar og stuldi á síma hans. Aðalsteinn Kjartansson á Stundinni og Þórður Snær Júlíusson ritstjóri Kjarnans eru einnig meðal sakborninga. Ekki er það staðfest, en á sakabekk eru líklega einnig Helgi Seljan og Rakel Þorbergsdóttir fyrrum starfsmenn RÚV.
Síðustu fréttir af málinu eru frá 16. mars þegar landsréttur hafnaði kröfu Aðalsteins að ólögmætt væri af lögreglu að kalla hann til skýrslutöku sem sakborning. Áður hafði norðlenskur héraðsdómari, eignkona Loga formanns Samfylkingar, úrskurðað blaðamanninum í vil.
Fjölmiðlar birtu fréttir af niðurstöðu landsréttar og þau viðbrögð Aðalsteins að hann ætlaði að sækja um áfrýjunarleyfi til hæstaréttar. En síðan ekki sögunni meir. Ekkert að frétta hvort Aðalsteinn hafi sótt um áfrýjunarleyfi eða ekki. Lögmaður Aðalsteins fór mikinn í upphafi málareksturs en síðan var eins og jörðin hafi gleypt hann.
Tilfallandi heimildir herma að Aðalsteinn hafi sótt um áfrýjunarleyfi og að niðurstöðu hæstaréttar sé að vænta næstu daga.
RÚV, Kjarninn og Stundin (RSK-miðlar) þegja sem fastast um sakborningana sína. Aðrir fjölmiðlar eru hættir að taka drottningarviðtöl við þá grunuðu og bíða harðra frétta um framvindu mála og að málsatvik verði upplýst. Hvernig það gat gerst að RÚV varð samsærismiðstöð fyrir byrlun og gagnastuld. Pólitískir vinir RSK-miðla eru þöglir sem gröfin. Logi formaður Samfylkingar fórnaði starfsframa eiginkonu sinnar á altari Glæpaleitis en það kom fyrir lítið.
Stefán útvarpsstjóri er ekki þýfgðaður um afstöðu RÚV til skipulagðrar glæpastarfsemi þar sem heilsu og persónulegum eigum borgara landsins er fórnað fyrir fjölmiðlaherferð þjóðarmiðilsins.
Eftir að bakland RSK-miðla hrundi á Íslandi reyna þeir fyrir sér í útlöndum. Aðalsteinn hnippti í vini sína á þýskri útgáfu, SZ, sem sögðu á hjartnæman hátt að Aðalsteinn væri fórnarlamb ofsókna.
Blaðamenn á flótta undan réttvísinni er fréttamál sem Tilfallandi athugasemdir sitja einar að.
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 09:16 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Miðvikudagur, 23. mars 2022
Veðkall á fullveldi, Guðni Th. og Ólafur Ragnar
Eðli stórvelda er að óttast að næstu nágrannar hlaupi út undan sér og geri bandalag við annað stórveldi. Nágrannar stórvelda læra að lifa með landfræðilegri stöðu sinni, sem vanalega gengur út á að styggja ekki ofurvaldið..
Ef útaf bregður, t.d. hjá Kastró á Kúbu fyrir 60 árum, er ekki von á góðu. Viðskiptaþvinganir sem Bandaríkin settu á Kúbu eru enn að mestu í gildi. Finnar fengu leyfi Leníns fyrir 100 árum að stofna lýðveldi. Stalín, eftirmaður Leníns, taldi tveim áratugum síðar að finnskt landssvæði stæði Leníngrad/Pétursborg fyrir þrifum. Úr varð vetrarstríðið. Finnar misstu land og freistuðu þess að lifa af kalda stríðið með sérstakri tillitssemi gagnvart Sovétríkjunum.
Finnlandisering er það kallað að halda fullveldinu en nota það ekki til að grafa undan nágrannanum, stórveldinu. Sumir halda að Finnar séu á leið í Nató. Sagan segir það ólíklegt.
Úkraína var á leið í Nató, fékk formlegt boð með Búkarest-yfirlýsingunni 2008. Ekki eru líkur á að landið verði á næstunni Nató-ríki. Meiri líkur en minni er að Úkraína Finnlandiserist og missi töluvert landssvæði. Lögmál stórvelda láta ekki að sér hæða.
Ísland er fullvalda ríki og hefur þjóðréttarlega heimild til að bjóða erlendum ríkjum til ráðstöfunar íslenskt landssvæði. En dettur einhverjum í hug að Washington og London myndu láta það átölulaust að Íslendingar leyfðu Rússum að byggja flotahöfn í Finnafirði? Eða Kínverjum? Harla ólíklegt.
Landfræðileg lega þjóðríkja ræður hver á veðkall á þau. Bretar eiga veðkall á Írland, sem getur ekki gengið í hvaða bandalag sem vera skal án breskra afskipta. Þjóðverjar litu það óhýrum augum ef Danir lánuðu Jótlandsheiðar undir rússneska herstöð. Bandaríkin myndu aldrei samþykkja að Kanada eða Mexíkó hýstu rússneska eða kínverska heri.
Eftirfarandi setning er höfð eftir Guðna Th. forseta í viðtengdri frétt: ,,Sjálfstæði og fullveldi ríkja má ekki skerðast við það að þau eigi landamæri að hernaðarveldi." Dálítið bernskt. Ekki síst frá manni sem sterklega er grunaður um að vilja framselja fullveldi Íslands til Brussel. En Evrópusambandið á ekkert veðkall á Ísland. Spyrjið bara Ólaf Ragnar Grímsson.
![]() |
Guðni vill ekki tjá sig um orð Ólafs |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Þriðjudagur, 22. mars 2022
20 ára svindl Samfylkingar endurtekið
Haustið 2002 efndi Samfylkingin til innanflokkskosninga um þessa spurningu: Á það að vera stefna Samfylkingarinnar að Íslendingar skilgreini samningsmarkmið sín, fari fram á viðræður um aðild að Evrópusambandinu og að hugsanlegur samningur verði síðan lagður fyrir þjóðina til samþykktar eða synjunar?"
Skrifstofa Samfylkingar gerði flokkshesta út af örkinni með þessa spurningu til skráðra flokksfélaga. Um þriðjungur flokksmanna hafði fyrir því að svara.
Sjö árum síðar, sumarið 2009, knúði ríkisstjórn Jóhönnu Sig. fram þingmeirihluta fyrir aðildarumsókn að Evrópusambandinu á grunni þessa veika umboðs. Samfylkingin efndi aldrei þennan hluta: ,,Íslendingar skilgreini samningsmarkmið sín." Hvorki gerði flokkurinn það né ríkisvaldið þegar það laut forræði Samfylkingar.
Og einmitt vegna þess að samningsmarkmiðin voru aldrei skilgreind gekk hvorki né rak með aðildarviðræður. Umsóknin dagaði uppi áramótin 2012/013.
Nú skal leikurinn endurtekinn. Í þetta sinn með Viðreisn og Pírata sem ábekinga.
Til að eiga minnstu von að ná árangri að sannfæra þjóðina um ágæti ESB-aðilar þarf að keyra sama prógrammið þrennar eða fernar kosningar og halda málefninu á lofti í almennri umræðu á milli kosninga. Með umboð kjósenda í almennum þingkosningum væri hægt að hnika málinu áfram. Skæruliðahernaður í þágu ESB-aðildar gerir það eitt að auglýsa tækifærismennskuna að baki.
ESB-sinnar eru einfaldlega ekki nógu sannfærðir sjálfir um skynsemi ESB-aðildar til að þeir nenni að ræða málefnið nema sem upphrópun. Núna halda þeir að ESB-aðild trekki, þegar Evrópa stendur í ljósum logum stríðsátaka. Þetta er svo vitlaust að maður hálf vorkennir vinstri vesalingunum. Aðeins pólitískum fáráðlingum dettur í hug að Íslendingar samþykki það samningsmarkið í viðræðum við Brussel að fá aðild að Evrópuhernum sem er í bígerð.
Í síðustu vegferð vinstri hjarðarinnar gekk allt út á að Íslendingar skyldu fá stórkostlegar undanþágur frá meginsáttmálum Evrópusambandsins. Stjórn Jóhönnu Sig. sótti í raun ekki um aðild að ESB heldur um undanþágur frá aðildarskilmálum. Vinstristjórnin stóð fyrir bjölluati í Brussel en ekki heildsteyptri umsókn um aðild að Evrópusambandinu.
ESB-sinnar hafa ekkert lært frá niðurlægingunni 2012/2013 er þriggja ára bjölluati lauk og umsóknin frá 2009 fór ofan í skúffu.
![]() |
Vilja þjóðaratkvæðagreiðslu um aðild að ESB |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Mánudagur, 21. mars 2022
Úkraína: ragnarök eða samningar
Rússar og Úkraínumenn hittast reglulega á friðarfundum. En stríðið heldur áfram. Báðir aðilar eru sannfærðir um að stríðinu ljúki með samningum en ekki með uppgjöf Úkraínu eða afturköllun rússneskra herja.
Hvers vegna ekki vopnahlé strax meðan gengið er frá smáatriðum samninga?
Jú, hvor um sig stríðsaðilinn telur sig hagnast á framhaldi átaka. Úkraínumenn gera Rússa stríðsþreytta og stóla á frekari aðstoð frá vesturlöndum í formi vopna, vista og einangrunar Rússlands. Rússar meta stöðuna þannig að með stærra úkraínskt land undir fótum batni samningsstaðan.
Kaldrifjaðir útreikningar í Kænugarði og Moskvu gefa sömu niðurstöðu. Að hagur sé í áframhaldandi átökum. Á meðan deyr fólk, bæði borgarar og hermenn.
Upphaf stríðsins má rekja til þess að Úkraína vildi verða Nató-ríki. Rússar sögðu það ógna tilvist sinni að nær öll vesturlandamærin væru í óvinveittu hernaðarbandalagi. Selenskí forseti hefur gefið það út að Nató-aðild sé ekki á dagskrá að sinni. Er það nóg?
Nei, ,,að sinni" getur þýtt næstu misserin. Deilan um aðild að Nató hefur staðið yfir frá 2008, í 14 ár. Rússar munu vilja frekari tryggingu fyrir að um fyrirsjáanlega framtíð verði Úkraína ekki Nató-ríki. Það fæli í sér stjórnarskrárbreytingar sem óvíst er að Selenskí forseti fái í gegn á þingi.
Stjórnarbylting var gerð í Úkraínu 2014. Tvísýnt er að stjórnmálakerfið sé í stakk búið að gera friðarsamninga. Frétt, sem ekki fór hátt, um morð á úkraínskum samningamanni er vísbending um að ekki öll dýrin í Kænugarðsskóginum séu bestu vinir. Selenskí forseti hefur bannað alla stjórnmálaflokka í landinu. Ekki er það til marks um samstöðu þegar nauðsyn þykir að banna þá sem eru ósammála valdhöfum.
Úkraína sækist enn eftir vernd Bandaríkjanna og Nató. John Mearsheimer, þungavigtarmaður í alþjóðastjórnmálum, segir að það sé leiðin til glötunar. Úkraína er ekki og verður ekki hluti þjóðaröryggis Bandaríkjanna. Washington mun ekki hætta á kjarnorkustríð við Rússa til að hjálpa Úkraínu. Selenskí forseti ræðir þriðju heimsstyrjöld í samhengi við Úkraínu. Það óskhyggja.
Ráðandi öfl í Úkraínu veðjuðu á að Bandaríkin myndu styðja harðlínustefnu gegn Rússum. Það virtist gera gagn 2014. Síðan eru átta ár. Á þeim tíma tapa Bandaríkin borgarastríðinu í Sýrlandi og voru niðurlægð í Afganistan sl. sumar. Jafnt og þétt eru Bandaríkin að draga sig inn í skel. Útlensku stríðin svara ekki kostnaði, er sagt í Washington.
Stjórnin í Kænugarði veðjar á þriðju heimsstyrjöldina. Það er til marks um örvæntingu. (Sem er, innan sviga, óskiljanlegt. Vestrænir fjölmiðlar eru uppfullir af fréttum um stórkostlegan árangur gegn Rússum). Nær væri að vinna með illskásta kostinn í stöðunni fremur en að vonast eftir ragnarökum.
![]() |
Heimsstyrjöld ef friðarviðræður misheppnast |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Sunnudagur, 20. mars 2022
Stefán fórnaði Rakel, en hélt Þóru - hvers vegna?
Í apríl á síðasta ári komst á samband milli X og RÚV. Samið var um að X gerði Pál skipstjóra Steingrímsson óvígan, stæli af honum snjallsíma og lét í hendur RÚV sem myndi afrita innihaldið. X skilaði símanum eftir afritun. Pál skyldi ekki gruna að símanum hefði verið stolið. Því átti að bíða í rúmar tvær vikur með að birta efni úr gögnum Páls.
Með tveggja vikna seinkun á birtingu ynnist tvennt. Í fyrsta lagi myndi Páll nota símann á meðan og við það eyddust úr minni símans staðsetningargögn á meðan hann var í þjófa höndum. Í öðru lagi myndi Pál síður gruna að gögnin kæmu úr síma hans ef það liðu tvær vikur á milli meðvitundarleysis hans og birtingu frétta úr snjallsímanum.
X fékk lyfseðil á ávísun á sterk svefnlyf 14. apríl. Þau svefnlyf voru notuð til að leggja Pál að velli aðfaranótt 4. maí. Föstudaginn 30. apríl var Aðalsteinn Kjartansson fluttur af RÚV, þar sem hann vann undir Þóru Arnórsdóttur, og yfir á Stundina þar sem systir hans Ingibjörg er ritstjóri og eigandi. Ásamt Aðalsteini á Stundinni skyldi Þórður Snær á Kjarnanum að birta gögn Páls. Skipuleggjendur á RÚV vildu fá stóran fjölmiðlahvell þegar gögnin birtust. Þá væri betra að hafa tvo miðla með í ráðum. Ekkert skyldi birt á RÚV. Miðstöð glæpsins átti að vera stikkfrí.
Við tilræðið lenti Páll á gjörgæslu og var settur í öndunarvél. Eftir að hann komst til meðvitundar varð hann þess áskynja að átt hafði verið við símann. Skipstjórinn er vel læs á tæknileg atriði snjallsíma og hætti að nota símann til að upplýsingar um staðsetningu eyddust ekki.
Ekki síðar en 20. maí kl. 14:56 rennur upp fyrir Páli skipstjóra hvers kyns er þegar Þórður Snær hringir. Tíu mínútum síðar hringir Aðalsteinn. Erindi beggja var það sama, að tilkynna skipstjóranum að þeir ætluðu að segja fréttir af honum daginn eftir, hvort hann vildi gefa ,,komment." Aðalsteinn og Þórður Snær hlýddu skipunum frá Efstaleiti og fylgdu tímaáætlun. Snemma morguns daginn eftir birtust fréttirnar, samræmdar og ritstýrðar af Efstaleiti.
Hvorugur blaðamannanna áttaði sig á að þeir yrðu til lögreglurannsóknar vegna byrlunar og þjófnaðar í beinu framhaldi. RÚV hafði sagt þeim að planið væri pottþétt. Enginn kæmist að því hvernig Páli var byrlað og síma hans stolið. X átti að vera hlífiskjöldurinn. Á móti fékk X skjól og lagavernd sem ,,heimildarmaður."
Enn er ekki upplýst hvernig samband komst á milli RÚV og X. Rakel Þorbergsdóttir sem var fréttastjóri RÚV og X eru skólafélagar. Þá er annar möguleiki. Lára V. Júlíusdóttir er lögmaður X. Vegna persónulegra mála var X í reglulegu sambandi við Láru síðast liðið vor. Og er raunar enn. Lára er öllum hnútum kunnug um hvernig skuli koma á sambandi milli hagaðila og fjölmiðla. Lára er innsti koppur í búri Samfylkingarinnar sem fyrrum trúnaðarmaður Jóhönnu Sigurðardóttur. Þá var hún bankaráðsformaður seðlabankans þegar atlaga bankans og RÚV að Samherja hófst 2012. Mögulega verður hún vitni í fyrirséðu dómsmáli.
Í byrjun nóvember var skyndilega tilkynnt að Rakel segði starfi sínu lausu. Á hinn bóginn er vitað að Þóra var kölluð í yfirheyrslu hjá lögreglu í byrjun október. Hún er núna sakborningur, Rakel sennilega einnig þótt ekki hafi það verið staðfest.
Ekki seinna en í október fékk Stefán Eiríksson útvarpsstjóri vitneskju um að lögreglan rannsakaði byrlun og gagnastuld og glæpaslóðin var rekin upp á Efstaleiti. Áður en Stefán losaði sig við Rakel 9. nóvember hefur hann átt samtöl við sitt fólk, sem tengdist málinu. Að minnsta kosti þrír starfsmenn voru kallaðir á teppið hjá útvarpsstjóra: Þóra, Rakel og Helgi Seljan.
Stefán lét Helga taka pokann sinn um áramót. En Þóra sat áfram. Og situr enn, sakborningurinn og fyrrum forsetaframbjóðandinn. Hvers vegna gerði Stefán Þóru ekki að láta af störfum, líkt og Helga og Rakel? Er Þóra með slíkar pólitískar tengingar að útvarpsstjóri þorði ekki að víkja henni úr starfi? Eða sögðu þremenningarnir Stefáni ósatt um hvernig væri í pottinn búið? Liggja persónulegur ástæður að baki?
Stefán og Heiðar Örn fréttastjóri gáfu yfirlýsingu 20. febrúar, eftir að opinbert varð að Þóra er sakborningur. Þeir segja brýnt að fjölmiðlar geti tekið við ,,upplýsingum í trúnaði án þess að þurfa að gera grein fyrir hvaðan eða frá hverjum þær stafi... og er fjölmiðlum rétt að fjalla um slíkt, jafnvel þótt um sé t.d. að ræða einkagögn sem fjölmiðlum eru fengin."
En RÚV fjallaði aldrei um stolin gögn úr síma Páls skipstjóra, það gerðu Kjarninn og Stundin. RÚV sá um að leggja á ráðin. Til að síminn kæmist í hendur RÚV þurfti fyrst að byrla og stela. Þóra Arnórsdóttir birti enga frétt, ekki eina einustu. Hún sat á Efstaleiti og kippti í spotta. Stefán og Heiðar Örn þurfa að svara einfaldri spurningu: er það hlutverk fjölmiðla að skipuleggja glæpi?
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 10:45 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)