Pútín sigrar, fjölmiðlar blekkja, Biden talar af sér

Biden Bandaríkjaforseti tryggði Pútín pólitískan sigur í Úkraínudeilunni með því að krefjast stjórnarskipta í Moskvu. Ríki Asíu og Afríku munu fylkja sér um Pútín, aðeins Evrópa og Ástralía standa með Biden. Bandaríkjaforseti talar eins og nýlenduherra og það fer ekki vel ofan í aðra en gömlu nýlenduríkin sem á 19. öld boðuðu yfirburði hvíta mannsins.

Áður en Biden færði rússneskum starfsbróður sigur á silfurfati var rússneski herinn búinn að leggja undir sig þá hluta Úkraínu sem skiptu máli. Vestrænir fjölmiðlar fatta það ekki en Pútín forseti Rússlands er búinn að ná þeim árangri í Úkraínu að kalla má að sigur sé í höfn.

Úkraína verði ekki Nató-ríki var fyrsta markmið Rússa. Það hefur náðst. Aðeins útfærslan er eftir. Úkraína fær ekki Nató-aðild á meðan rússneskur her er í landinu. Engir friðarsamningar verða gerðir án skuldbindinga um hlutleysi. Hvort heldur sem er verður Úkraína ekki Nató-ríki.

Annað markmið Rússa var að tryggja stöðu Krímskagans og austurhéraðanna, Donbass. Rússneski herinn stjórnar allri strandlengjunni við Azov-haf frá Rússlandi til Krímskaga. Donbass liggur norður af strandlengjunni og er tryggilega undir stjórn Rússa.

Þriðja markmið Rússa var að afvopna úkraínska herinn. Það er hægt með tvennu móti. Í fyrsta lagi með samningum en í öðru lagi með sigri á vígvellinum. Meginstyrkur herliðs Úkraínu var staðsettur vestan við Donbass. Rússar eru um það bil að umkringja þennan her með sókn úr norðri og austri. Meiri líkur en minni eru að meginherafli Úkraínu, sem er samtals um 200 þúsund, verði sigraður. Afvopnun sem sagt.

Eina markmið Rússa, sem ekki hefur náðst, er að skipta um ríkisstjórn í Úkraínu. Vafi leikur um þetta markmið. Pútín hefur ekki sagt það berum orðum. Með því að rússneski herinn, sem beitt er gegn Úkraínu, er ekki nema um 150 þúsund, af milljón manna herliði, er hæpið að hugur Rússa hafi staðið til að leggja undir sig allt landið og setja upp leppstjórn í Kænugarði. Leppstjórnir, sýnir sagan, virka illa. Finnlandisering virkar vel.  

Vestrænir fjölmiðlar hafa ekki greint þessa þróun enda blindaðir af hugmyndafræði. Ráðandi frásögn vestrænna fjölmiðla er að nokkrar klukkustundir séu í það að síðasti Rússinn skríði heim frá Úkraínu með buxurnar á hælunum. Bandaríkjamaður, sem hefur verið búsettur í Donbass sl. átta ár, hefur aðra sögu að segja, svo dæmi sé tekið.

Í sjálfu sér er fallegt að standa með Úkraínu gegn ofurvaldi Rússa. En að láta það villa sér sýn á hvað gerist í raunheimi, á vígvellinum í þessu tilviki, er að taka óskhyggju fram yfir harðar staðreyndir. Fjölmiðlar sem klappstýrur eru kannski með skemmtigildi en heldur lítið upplýsingagildi. 

Átök í Úkraínu standa enn yfir, því miður. Engin leið er að spá fyrir um hvenær þeim linnir. Það veit ekki á gott fyrir vesturlönd almennt að helstu fjölmiðlar stundi kerfisbundna sjálfsblekkingu um að vestrænn málstaður sé á sigurgöngu þegar hann geldur afhroð. Vesturlönd munu seint skilja hverjum klukkan glymur í Úkraínu þegar fjölmiðlaumræðan er út í móa.


mbl.is Söguleg stefnubreyting dregin til baka
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ragnhildur Kolka

Haukarnir vilja ekki heyra þetta,en viðtalið við þennan Patrick segir svo sannarlega aðra sögu en þá sem haldið er að okkur af stjórnmála- og fjölmiðlamönnum.

En ég læt ekki ljúga að mér lengur og tek því fréttirnar frá Indlandi og Aljazeera fram yfir vestræna sibylju. 

Ragnhildur Kolka, 27.3.2022 kl. 10:08

2 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

þá verða nú margir "leiksoppar Mediunnar"(tekið að láni hjá Magnúsi Sig.blog),giska brjálaðir og höfðingjarnir teknir í bakaríið;finnst ykkur ekki Snúðar góðir? Með B.Kv. 

Helga Kristjánsdóttir, 27.3.2022 kl. 15:18

3 Smámynd: Theódór Norðkvist

Hvað er rangt af því sem Biden sagði? Pútín er slátrari. Pútín er stríðsglæpamaður. Sjöfréttirnar í dag, gær og síðasta mánuð staðfesta það.

Eina sem má efast um af orðum Bidens, er að Pútín geti ekki lengur verið við völd. Ef hann meinti að hann ætti ekki að vera við völd, þá er það líka hárrétt. Brjálæðingar eiga ekki að vera við völd, þó það sé raunin á ca. 60% af jarðkúlunni.

Ég er ekki að kalla eftir styrjöld til að losna við Pútín (er heldur ekkert viss að skárri drullusokkur myndi koma í staðinn.) Ég mun hinsvegar biðja og fasta til að koma af stað hruni heimsveldis hins illa og að allir harðstjórar heimsins verði auðmýktir.

Ég er hinsvegar einn af þeim sem telja þrátt fyrir allt að rússneska veldið muni ekki falla að svo stöddu. Það þurfi miklu alvarlegri hlutir að gerast og ég bið þess að við öll komumst í gegnum þá hræðilegu (enda)tíma.

Drottinn mun sjálfur afgreiða Rússaveldi og allar bandalagsþjóðir þeirra og Hann mun sjálfur vera eina fokhelda skjólið á þeim degi.

https://giselleaguiar.com/2022/02/24/ezekiel-38-who-are-the-powerful-players-in-the-gog-and-magog-war/

Theódór Norðkvist, 27.3.2022 kl. 15:19

4 Smámynd: Jónatan Karlsson

Það er sannarlega athyglisvert að sjá fréttaþætti hins bandaríska Patrisks Lancester, sem sýna hina hlið málsins - ef svo mætti segja, en nokkra þætti má enn finna á youtube.com

Það er að verða óþolandi þessi einhliða áróður, eða heilaþvottur sem rekinn er á nær öllum fjölmiðlum bæði hvað áróðurinn gegn Rússum og Kínverjum varðar og ekki síður veiru-öfga-fárið allt.

Almennir borgarar öskra á blóð Pútíns í anda slátrunar Gaddafi´s og Saddams Hussein og fá sér síðan popp og coke með beinum útsendingum frá litríku sprengjuregni yfir Gaza, Yemen eða Írak, án þess svo mikið sem depla einu auga.

Er ballið kannski að verða búið?

Jónatan Karlsson, 27.3.2022 kl. 16:12

5 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

SVO! Allir farnir að biðja; Ég man ekki hvernig rússnesku rétttrúnaðar kirkjunnu reiðir af,en sá Pútin smella kossi á Biblíuna að ég taldi,það var snöggt skot á viðburðinn. verið allir blessaðir.

Helga Kristjánsdóttir, 27.3.2022 kl. 16:19

6 Smámynd: Hörður Þormar

Jónatan.

Auðvitað er blóð Pútíns miklu verðmætara heldur en blóð Úkraínumanna, rétt eins og blóð Saddams Hussein var verðmætara heldur en blóð tugþúsunda Kúrda sem hann var búinn að "svæfa" með efnavnopnum sínum.

En vonandi kemst þú aftur í andlegt jafnvægi þegar þú hlustar á Hauk Hauksson, sérlegan fréttamann Útvaps Sögu, á morgunfoot-in-mouth

Hörður Þormar, 27.3.2022 kl. 16:55

7 Smámynd: Jónatan Karlsson

Hörður

Fyrst þú nú ert að senda mér pillu hér, þá verð ég að gamni mínu að upplýsa þig um, að eiturvopnin sem Saddam notuði á Kúrda og Írani um árið voru gjöf frá félaga hans, Ronald Reagan og meira að segja framleidd í Arizona, eða vissir þú það?

Jónatan Karlsson, 27.3.2022 kl. 17:18

8 Smámynd: Hörður Þormar

Jónatan.

Gott er að þú ert búinn að ná gleði þinni afturlaughing.

Hörður Þormar, 27.3.2022 kl. 18:42

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband