Laugardagur, 19. mars 2022
RSK-miðlar eru dómstóll fjölmiðla
Landsréttur úrskurðaði í vikunni að blaðamenn eru ekki undanþegnir í rannsókn lögreglu á ætluðum brotum á almennum hegningarlögum. Blaðamenn á þrem fjölmiðlum, RÚV, Stundinni og Kjarnanum (RSK) eru sakborningar í lögreglurannsókn á byrlun og gagnastuldi þar sem Páll skipstjóri Steingrímsson er brotaþoli.
Fjölmiðlar líkt og stjórnmálaflokkar starfa á opinberum vettvangi og eru í þágu almannagæða. Bæði fjölmiðlar og stjórnmálaflokkar eru að stórum hluta fjármagnaðir með almannafé. Annað sameiginlegt fjölmiðlum og stjórnmálaflokkum er að þeir eru ráðandi afl í opinberri umræðu.
Það ætti að liggja í augum uppi að þegar starfslið fjölmiðla og stjórnmálaflokka, þ.e. blaðamenn og stjórnmálamenn, eru með stöðu sakbornings í sakamáli geta þeir ekki sinnt störfum sínum í þágu almannahagsmuna.
Þingmaður, til dæmis, sem væri með stöðu sakbornings í lögreglurannsókn gæti ekki haldið áfram þingstörfum. Það yrði einfaldlega ekki liðið. Ef þingmaðurinn bæri fyrir sig þinghelgi yrði hann einfaldlega þvingaður af samflokksmönnum sínum að taka pokann sinn - í það minnsta að víkja um stundar sakir. Ef sakamálið leiddi til sýknu ætti viðkomandi möguleika á endurkomu.
Tveir starfsmenn RÚV, Helgi Seljan og Rakel Þorbergsdóttir, viku á fyrri stigum lögreglurannsóknar á byrlun og gagnastuldi. Réttara sagt Rakel vék en Helgi einfaldlega skipti yfir á Stundina.
Áfram starfar Þóra Arnórsdóttir á RÚV, Aðalsteinn Kjartansson á Stundinni og Þórður Snær Júlíusson á Kjarnanum. Öll þrjú eru á leiðinni í skýrslutöku hjá lögreglunni sem sakborningar.
Samtímis sem RSK-miðlar halda hlífiskili yfir sínum blaðamönnum taka þeir þátt í opinberri atsókn að mannorði og atvinnu Frosta Logasonar sem ekki er sakborningur í máli er varðar brot á hegningarlögum. Frosti, samkvæmt frásögn RSK-miðla (einkum Stundarinnar), kom illa fram við fyrrum kærustu sína og hótaði að birta af henni nektarmyndir.
Eitt sakarefna í lögreglurannsókn á blaðamönnum RSK-miðla er einmitt að þeir höfðu undir höndum persónugögn, texta og myndir, af Páli skipstjóra og hótuðu að birta ef skipstjórinn drægi ekki tilbaka kæru um byrlun og gagnastuld.
Dómstóll fjölmiðla tekur æruna af Frosta, atvinnuna og setu í stjórn Blaðamannafélags Íslands. RSK-miðlar ráða ferðinni í dómstóli fjölmiðla. Formaður Blaðamannafélagsins er fréttamaður á RÚV og varaformaðurinn er - haldið ykkur fast - Aðalsteinn Kjartansson sakborningur.
RSK-miðlar úthluta sekt og sýknu í samfélaginu. Þeir sem starfa á RSK-miðlum eru friðhelgir, jafnvel þótt þeir brjóti landslög, en mönnum eins Frosta er hent miskunnarlaust undir strætisvagninn.
RSK-miðlar eru ríki í ríkinu. Eins og KGB forðum í sovétinu.
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 11:16 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Föstudagur, 18. mars 2022
Ofbeldi: Frosti játar og víkur, Aðalsteinn neitar og situr
Ólíkt hafast þeir fjölmiðlamennirnir Frosti Logason og Aðalsteinn Kjartansson. Sá fyrrnefndi játar andlegt ofbeldi, sem aðeins tveir eru vitni að, en sá síðarnefndi neitar aðild að byrlun og gagnastuldi sem lögregla hefur upplýst.
Manneskja sendi, af fúsum og frjálsum vilja, myndir til Frosta sem notaði þær til að hóta smánun. Aðalsteinn fékk sent stolin einkamál frá manni sem lá á milli heims og helju í gjörgæslu og notaði til að auðmýkja og niðurlægja. Frosti hótaði, Aðalsteinn framkvæmdi.
Aðalsteinn vissi með 4 daga fyrirvara um atlöguna að heilsu og einkahögum Páls skipstjóra. Hann fluttist af RÚV á Stundina gagngert til að koma þýfi í umferð, einkamálum úr síma skipstjórans. Aðalsteinn kallar það rannsóknablaðamennsku; svipað og að strætisróni segðist heilbrigð sál í hraustum líkama.
Frosti fer í ótímabundið leyfi ótilkvaddur en Aðalsteinn hangir eins og hundur á roði á sínu og segir í viðtali við mbl.is:
Ég hef ekkert að fela í þessu máli enda viðurkennir lögreglan að hún hafi ekkert í höndunum sem bendir til þess að það hafi yfir höfuð verið glæpur framinn, hvað þá að ég hafi framið einhvern glæp.
Fyrst enginn glæpur var framinn hlýtur Aðalsteinn að mæta galvaskur í kaffispjall hjá lögreglunni án lögfræðings. Síðustu fréttir herma á hinn bóginn að Aðalsteinn vilji að hæstiréttur úrskurði að blaðamannaskírteinið veiti friðhelgi til að fremja glæpi s.s. að byrla og stela.
Frosti var knúinn til að segja af sér stjórnarsetu í Blaðamannafélagi Íslands. Aðalsteinn er þar varaformaður og vildi Frosta burt. Aðalsteinn situr áfram eins og ekkert hafi í skorist.
Munurinn á Frosta og Aðalsteini er að sá fyrrnefndi biðst afsökunar á andlegu ofbeldi. Sá síðarnefndi forherðist í þeirri afstöðu að hafa fullan rétt til að auðmýkja og niðurlægja þótt það brjóti bæði gegn almennum hegningarlögum og almennu siðferði.
![]() |
Frosti í ótímabundið leyfi frá störfum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 08:11 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Fimmtudagur, 17. mars 2022
Stíga grunaðir blaðamenn til hliðar?
Staðfest er að 4 blaðamenn RÚV, Stundarinnar og Kjarnans eru grunaðir um alvarlegan glæp, byrlun og gagnastuld. Ítarlega rökstuddur úrskurður landsréttar segir að blaðamenn séu ekki undanþegnir rannsókn á ,,ætluðum brotum þeirra gegn almennum hegningarlögum." Skýrt og skynsamlegt réttlæti.
Þegar fyrir liggur að 4 blaðamenn hið minnsta, líklega eru þar einnig Helgi og Rakel, eru með stöðu sakborninga vaknar þessi spurning: munu blaðamennirnir stíga til hlíðar?
Áfram gildir, vitanlega, að allir eru saklausir uns sekt er sönnuð. En nú er lögreglan með gögn í höndunum sem líklega leiða til sakfellingar, annars væri rannsóknin ekki komin á lokastig. Ætla blaðamenn, dagskrárhafar opinberrar umræðu, að láta eins og ekkert hafi í skorist?
Í Kjarnanum í gær, vel að merkja fyrir úrskurð landsréttar, er fréttaskýring þar sem fjallað er með velþóknun um að stjórnarmenn í fyrirtækjum víki ef út af bregður með trúverðugleika. Þar segir m.a. að meta skuli hvort ,,hvort orðspor valdi vanhæfi." Lykilsetning er að það skuli ,,líta til þess hvort hann sé sakaður um háttsemi sem telst ekki refsiverð en sé ámælisverð að almannaáliti." Tvö stig, sem sagt. Þeir sem eru sakaðir um refsiverða háttsemi eiga tafarlaust að fjúka, en hinir að víkja, stíga til hliðar, sem sýna ámælisverða hegðun að almannaáliti.
Höfundur fréttar Kjarnans er Þórður Snær Júlíusson, sem er sakborningur í rannsókn lögreglu á byrlun og gagnastuldi. Hann er sakaður um refsiverða háttsemi, annars væri hann ekki sakborningur. Blaðamaðurinn og ritstjórinn Þórður Snær fær falleinkunn á eigin siðgæðisprófi.
Mun Þórður Snær stíga til hliðar á meðan lögregla fullrannsakar glæpinn? Mun Þóra starfa á RÚV eins og ekkert hafi í skorist? Verður ,,rannsóknablaðamaðurinn" Aðalsteinn á Stundinni í vinnu að afhjúpa spillingu, sjálfur grunaður um glæp?
Blaðamenn segjast gjarnan þjónar almennings. Þjónar sem eru sakborningar í glæparannsókn geta ekki verndað almannahag. Það sjá allir í hendi sér - nema kannski siðblindir blaðamenn.
![]() |
Sneri við úrskurðinum og skýrslutakan lögmæt |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Miðvikudagur, 16. mars 2022
Byrlun og stuldur RÚV: staða sakborninga
Mannréttindadómstóll Evrópu styður aðferðafræði lögreglunnar á Akureyri sem boðaði blaðamenn RÚV, Kjarnans og Stundarinnar til yfirheyrslu vegna byrlunar á Páli skipstjóra Steingrímssyni og gagnastuldi.
Dómari á Akureyri, eiginkona Loga formanns Samfylkingar, úrskurðaði fyrir tveim vikum að ekki mætti boða blaðamennina í yfirheyrslu sem sakborninga.
Mannréttindadómstóll Evrópu (MDE) er á annarri skoðun en eyfirski dómarinn. Í viðtengdri frétt um mál Bjarka Diego segir:
Hafði Bjarki verið boðaður í yfirheyrslu og var greint frá því að hann væri með stöðu vitnis, en síðar kom í ljós að sími hans var á sama tíma hleraður og voru endurrit af símtölum notuð í málinu. Fékk hann við næstu yfirheyrslu stöðu sakbornings, en MDE taldi að hann hefði átt að fá þá réttarstöðu strax miðað við að sími hans væri hleraður.
Líkt og í mál Bjarka er lögreglan með símagögn, símtöl og tölvupósta, sem eindregið benda til sektar blaðamanna RÚV, Kjarnans og Stundarinnar. Eðlilegt er að boða Aðalstein, Þórð Snæ, Þóru, Helga og Rakel til yfirheyrslu sem sakborninga en ekki vitni. Dómaframkvæmd MDE staðfestir þann framgangsmáta.
Úrskurður eiginkonu Loga formanns er til endurskoðunar hjá landsrétti.
![]() |
Ánægjuleg niðurstaða sem kemur ekki á óvart |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Þriðjudagur, 15. mars 2022
Blaðamennska: grínast með glæpi og siðleysi
RÚV gerði grín að glæp þeirra félaga Reynis Trausta og Kristjóns Kormáks. Játning Kristjóns í útsendingu hjá Reyni er með sérkennilegri fjölmiðlun seinni árin. Í viðtalinu virðist Reynir ósköp fenginn að fá þennan greiða en tvímenningarnir eru samstarfsmenn til margra ára.
RÚV er undir lögreglurannsókn vegna aðildar að byrlun og gagnastuldi. Það gagnast hagsmunum RÚV að glæpir séu djók. Skyggnt á bakvið tjöldin í heimi íslenskrar blaðamennsku sést að þar er fremur ljótt um að litast.
Blaðamaður til margra áratuga sendi Tilfallandi athugasemdum eftirfarandi pælingu sem á erindi í umræðuna um stöðu blaðamennskunnar á Fróni.
Reynir telur greinilega að það fari best á því að hann hafi sjálfur viðtal við Kristjón og þar kemur margt athyglisvert fram, fyrir utan almennar játningar um óreglu og líferni sem venjulegt fólk undrast.
Kristjón segir frá því að hann hafi stundum verið að vinna á hinum og þessum fjölmiðlum, meðal annars Mannlífi, í hinu og þessu ástandi með hinum og þessum mönnum, meðal annars Sigga hakkara sem er ein frægasta persóna seinni tíma glæpasögu Íslendinga, margdæmdur fyrir persónunjósnir og kynferðisglæpi gegn börnum. En er viljugur samstarfsmaður fjölmiðlamanna inn á milli glæpaverka því þeir telja sig hvort sem er hafna yfir lög.
Kristjón og Siggi hakkari unnu þannig báðir á Wikileaks þar sem Kristin Hrafnsson er fyrir á fleti en hann hélt mikla ræðu á Austurvelli og varð tíðrætt um siðferðilega yfirburði blaðamanna og mikilvægi þess að þeir fengu að vinna í friði fyrir lögum og reglu. Menn eins og Siggi hakkari eru gagnlegir fjölmiðamönnum og fyrirbærum eins og Wikileaks því þeir eru siðblindir og tilbúnir að gera allt til að pönkast á venjulegu fólki sem á vegi þeirra verður. Ég tel að ef yfirvöld sjá ekki í gegnum þessa siðlausu starfsemi þá sé frelsi venjulegs fólks til persónulegs einkalífs orðin tóm.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Mánudagur, 14. mars 2022
Trump kennt um Úkraínustríðið
Trump ber ábyrgð á Úkraínustríðinu, segir í fréttaskýringu í frjálslyndri bandarískri útgáfu, New York Review of Books. Ljósmynd af Selenskí forseta Úkraínu og Trump, tekin 2019, er í raun sjálfstæð fréttaskýring. Selenskí með skelfingarsvip er segir: úff, allt er glatað, Kaninn ætlar að yfirgefa okkur.
Í raun hlaut að koma að því að frjálslyndir kenndu Trump um ófarirnar í Úkraínu. Forsetatíð glókolls, sem lauk með hvelli í byrjun árs 2021, markaði endalok frjálslyndar alþjóðahyggju. Trump var sakaður um að hafa þegið forsetaembættið frá Pútín í Rússíá. Samkvæmt samsæriskenningunni skrifaði Pútín nokkrar feisbúkkfærslur og Ameríkanar flykktust á kjörstað að kjósa skjólstæðing Kremlarbónda. Frjálslynda alþjóðaelítan kokgleypti kenningunni. Hún trúir líka eins og nýju neti að veðurfar sé manngert og að kóvit kom frá plánetunni Mars en ekki Kína. Vestræna valdaelítan lifir seinni árin æ meira í heimi ímyndunar samfélagsmiðla en hörðum heimi staðreynda. Stjórnmálamenning sem karpar um hvort kynin séu þrjú, fimm eða seytján er komin langt fram yfir síðasta söludag.
En, svona í alvöru talað, þá ber Bandaríkjaforseti ábyrgð á Úkraínustríðinu. Bara ekki Trump. Þegar arftaki glókolls, Biden, beið niðurlægjandi ósigur í Kabúl í Afganistan 15. ágúst í fyrra, sagði uppgjöfin Pútín forseta að Bandaríkin myndu hvorki hreyfa legg né lið í Kænugarði í Úkraínu. Það gekk eftir.
Í fréttaskýringu þýsku útgáfunnar Die Welt segir að Pútín hafi fyrir innrásina haldið spilunum þétt að sér. Aðeins þrem dögum fyrir árás lét forsetinn þau boð út ganga meðal embættismannaveldisins að Úkraínumálið yrði leyst með hervaldi. Þetta er trúlegt. Ef rússneska elítan hefði vitað með lengri fyrirvara um yfirvofandi hernað hefði t.d. Roman Abramaovich selt fótboltaliðið sitt í London í tæka tíð. Nú fæst Chelsea fyrir slikk.
Á hinn bóginn skipuleggur enginn innrás með þriggja daga fyrirvara. Rússar hafa undirbúið aðgerðirnar hið minnsta frá 2014 þegar elítan í Kænugarði lagðist á sveif með ESB og Nató og gaf Rússum langt nef.
Stjórnvöld í Kænugarði máttu vita, þegar á stjórnarárum Trump, að Bandaríkin og þar með vestrið væru í þann veginn að gefa upp á bátinn útþenslupólitíkina eftir kalda stríðið. Uppgjöf Bandaríkjanna, undir forystu Biden, í Afganistan í fyrrasumar var ótvírætt merki um vatnaskil. Á liðnum áratug heyktist vestrið á Írak og Sýrlandi - sem fékk aðstoð Rússa.
Selenskí forseti, rómuð hetja síðustu daga, gefur út yfirlýsingu í hvert sinn sem Rússar taka stærri landsvæði að Úkraína sé um það bil að vinna stríðið. Jafnhliða biður hann um friðarsamninga - sem hann myndi vitanlega ekki gera á sigurbraut - en getur ekkert boðið Rússum. Sennilega er Selenski ekki með umboð frá bakhjörlum sínum til að semja.
Sahra Wagenknecht er þýskur stjórnmálamaður og starfaði sennilega í Vinstri grænum ef hún væri íslensk. Hún segir í viðtali: Allir vita að Úkraína getur ekki unnið stríðið. Eina leiðin til að stöðva Rússa, og blóðbaðið, er að semja. Og til að ná samningum þarf að bjóða Rússum eitthvað.
Wagenknecht segir það sem alþjóð vissi um leið og fyrsta skotinu var hleypt af 24. febrúar síðast liðinn. Hvað eru stjórnvöld í Kænugarði að pæla?
Jú, það er augljóst. Selenskí forseti og hirð hans vonast eftir þriðju heimsstyrjöldinni. Hún gæti sem best byrjað með að Nató tryggði lofthelgina.
Aðeins beint stríð Bandaríkjanna og Rússlands getur bjargað Úkraínu í heilu lagi. En heimurinn verður ekki sprengdur aftur á steinöld til að Selenskí haldi embætti. Ábyggilega er hann góður gaur. En sumt fá ekki einu sinni góðmenni þótt hugur standi til.
Óöldinni í Úkraínu linnir aðeins með friðarsamningum. Stjórnvöld í Kænugarði verða að semja um rússnenskan frið. Í stað þess að framselja úkraínskt fullveldi til Brussel verður Moskva áfangastaðurinn. Harðir kostir vissulega en þeir einu raunhæfu í stöðunni.
![]() |
Lofthelgi verður að tryggja |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Sunnudagur, 13. mars 2022
Logi: Ísland skrái sig í ESB-herinn
Í Evrópu er stríð. Stóru ESB-ríkin, Frakkland og Þýskaland, boða stórfellda hernaðaruppbygginu i kjölfar innrásar Rússa í Úkraínu. Hvað leggur Logi formaður Samfylkingar til? Jú, að Ísland sæki um aðild að ESB.
Logi er blóðþyrstur. Hann sér stöðugt flæði mynda og texta með blóð og ofbeldi í Evrópu og vill íslenska aðild að hildarleiknum.
Logi kann hvorki sögu né pólitískt stöðumat. Ísland er í Nató og með varnarsamning við Bandaríkin. Þær varnir voru meira en nóg allt kalda stríðið þegar sovéskur floti flugvéla og skipa var yfir og í kringum landið. Rússar komast ekki með tærnar þar sem sovéska ógnin hafði hælana.
Logi er lýðskrumari. Hann nýtir sér evrópskan harmleik til að framselja fullveldið til Brussel.
Logi er hæfilegur formaður Samfylkingar. Þaðan koma alltaf tillögurnar er leiða Íslendinga til glötunar. Samfylkingin er arftaki flokksins sem ekki vildi fullveldi 1918 og boðaði fyrstur flokka hugmyndina um Sovét-Ísland.
![]() |
Aðildarumsókn að ESB komist rækilega á dagskrá |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 09:01 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Laugardagur, 12. mars 2022
Stríð er glæpur í Evrópu en aðferð í Asíu
Pútín Rússlandsforseti er evrópskur Saddam sálugi Hussein er fór fyrir Írak. Vesturlönd ákváðu að Hussein væri stríðsglæpamaður og settu hann af með innrás 2003. Það þótti réttlátt stríð siðmenningar gegn ómenningu.
Togstreitan um hvort Úkraína skyldi vera á áhrifasvæði ESB og Nató annars vegar eða hins vegar Rússlands byrjaði fyrir alvöru vorið 2008 þegar Nató-fundur í Búkarest, höfuðborg Rúmeníu, bauð Georgíu og Úkraínu aðild að hernaðarbandalaginu. Þá um sumarið réðst rússneskur her á Georgíu og batt endi á Nató-umsókn smáríkisins á 12 dögum.
Úkraínudeilan stigmagnaðist 2014 með stjórnarbyltingu í Kænugarði, sem studd var af vesturlöndum. Í beinu framhaldi tóku Rússar Krímskaga og studdu uppreisn í austurhluta landsins, Donbass.
Þriðja lota Úkraínudeilunnar hófst með innrás Rússa í landið 24. febrúar síðast liðinn. Frá Búkarest yfirlýsingunni 2008 til innrásar liðu heil 14 ár. Hvað voru ábyrgir aðilar á vesturlöndum að hugsa allan þennan tíma? Svona eftir á að hyggja.
Eina forsendu gáfu vestrænir valdamenn sér. Stríð í Evrópu er glæpur, sem enginn þorir að drýgja. Stríð í öðrum heimsálfum er lögmæt aðferð þegar nauðsyn krefur.
Valdimar Pútín drýgði glæpinn. Kannski gleymdu menn í Washington, Brussel, París og Berlín að helmingur Rússlands liggur í Asíu.
Lærdómur: aldrei skal vanmeta kunnáttu í landafræði.
![]() |
Segja handtöku borgarstjórans stríðsglæp |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Föstudagur, 11. mars 2022
Kújón og Rúinn Trausti - símtalið
Afrit af samtali tveggja ritstjóra, báðir á framfæri auðmanna, rak á tilfallandi fjörur. Ekki er grunur um byrlun og gagnastuld. En jafnvel þó svo væri liggur fyrir úrskurður dómara á Akureyri að heimilt er byrla og stela þegar blaðamenn eiga í hlut. Og, auðvitað, heimildamenn njóta friðhelgi þótt þeir hleri, steli eða byrli. Óumdeilt er að símtalið á erindi við almenning.
Rúinn Trausti (RT) hringir í Kújón. Símtalið virðist 15 daga gamalt eða svo.
Kújón: Já, halló.
RT: Sæll, Rúinn hérna. Hvernig sæki ég að þér?
Kújón: Vel, en ef þú ætlar enn og aftur að bjóða mér vinnu þá er svarið nei, eins og ég hef margoft sagt. Eða ætlar þú kannski að biðjast afsökunar á leiðindunum sem þú ert alltaf að birta í Móðurlífinu þínu?
RT: Rólegur, ég er með tilboð, ekki þó atvinnutilboð. Ég veit þú ert í hassi með útgáfuna þína. Þú hefur ekki borgað laun og auðmaðurinn hefur yfirgefið þig. Ég á enn auðmannapeninga.
Kújón: Hvaða tilboð?
RT: Sjáðu, löggan finnur ekki þann sem braust inn hjá mér, stal tölvum og ...
Kújón: Þú sviðsettir innbrotið, sást í mílu fjarlægð.
RT: Þó svo væri, málið er orðið heitt. Ég þarf reddingu og er tilbúinn að borga vel fyrir.
Kújón: Reddingu?
RT: Já, að þú játir innbrotið...
Kújón: Ertu geðveikur? Á ég að játa á mig glæp?
RT: Ekki stórglæp, bara smáglæp, og ég borga vel fyrir. Þú ert hvort eð er með allt niðrum þig. Ef þú játar dreg ég kæruna tilbaka og við reynum að settla málin við lögguna.
Kújón: Öh, það myndi enginn trúa þessu. Hvers vegna ætti ég að brjótast inn á Móðurlíf?
RT: Tja, við kokkum upp sögu. Að þú sért að hefna þín fyrir að ég hrauni reglulega yfir þig. Svo þarftu auðvitað að segja að Rindill auðmaður sé á bakvið þetta.
Kújón: Ha? Ertu aftur kominn í flöskuna helvítis viðrinið þitt? Á bæði að ljúga upp á mig afbroti og segja að Rindill fjarstýri mér? Tekuru geðlyf með drykkjunni?
RT: Svona, svona. Það er kannski nóg að þú segir að þú hafir haldið að þú værir að gera Rindli góðverk. Ekki dramatísera þetta um of.
Kújón: Dramatísera, fokking hálfvitinn þinn? Þú ert að meiri andskotans krakkhausinn...
RT:...já, kannski en ég á peninga en þú ekki.
Kújón: Satt er það helvítis melurinn þinn. En það trúir þessu enginn.
RT: Fólk trúir aumingjum. Sérstaklega vinstrimenn. Við þurfum að ná til þeirra og þá stjórnum við umræðunni.
Kújón: Ha?
RT: Já, sástu ekki sjónvarpsfuglinn sem játaði sig geðveikan og vinstriaðdáendurnir átu úr lófa hans. Ef hann núna segðist hafa orðið fyrir aðkasti í æsku væru honum allir vegir færir. Við erum að tala um þingmennsku.
Kújón: Þú dópar, drekkur og bryður geðlyf. Af hverju er ég að hlusta á þig?
RT: ég á monní, þú ekki.
Kújón: Haltu kjafti.
RT: Erum við komnir með díl?
Kújón: Þú stendur undir nafni, Rúinn Trausti.
RT: Fínt, þú mætir í settið mitt á Móðurlífi og játar innbrotið og klínir smávegis sekt á Rindil.
Kújón: Ég verð álíka aumingi og þú.
RT: Ég á sykurpabba, þú ekki.
Kújón: Hvenær á ég að mæta í viðtalið?
Afritið af símtalinu nær ekki lengra en framvinda mála gefur til kynna að Kújón og Rúinn Trausti sammælist um játningu fyrrnefnda á sviðsettum glæp síðarnefnda.
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 07:42 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Fimmtudagur, 10. mars 2022
Hatur og hernaður
Hernaður er ekki útrás fyrir hatur, allra síst hjá skipulögðu ríkisvaldi. Hernaður er stundum tækifærismennska, þannig byrjaði fyrra stríð, eða framkvæmd á hugmyndafræði. Þjóðverjar vildu lífsrými í austri og hófu seinna stríð á þeirri forsendu. Hugmyndafræði var ástæða aðildar Bandaríkjanna að stríðsátökum í Víetnam - og raunar mörgum öðrum.
Í sögulegu samhengi eru hvorki tækifærismennska né hugmyndafræði helstu ástæður stríðsátaka ríkja. Meginástæða hernaðar er ógn. Sparta hóf Pelópsskagastríðið er þeim stóð ógn af vaxandi veldi Aþenu. Rómverjar óttuðust Karþagó, stríddu við þá í þrígang, og eyddu loks afríska borgríkinu.
Rússum stendur ógn af útþenslu Nató eftir lok kalda stríðsins. Fyrrum bandalagsríki Rússa úr Varsjárbandalaginu fóru eitt af öðru inn í Nató sem er stefnt gegn Rússum. Ef svo væri ekki hefði Rússlandi verið boðin aðild fyrir lifandi löngu. Hernaðarbandalag er samkvæmt skilgreiningu verkfæri til stríðsátaka, bæði til varnar og sóknar.
Rússar gerðu skýra grein fyrir afstöðu sinni 2014 eftir stjórnarbyltingu í Kænugarði. Þeir tóku Krímskaga og efndu til uppreisnar í austurhéruðum landsins. Síðan eru liðin átta ár. Nægur tími til að finna diplómatíska lausn. Málamiðlun er sefaði ótta Rússa og virti úkraínskt fullveldi virtist ekki flókið viðfangsefni. En það var frændþjóðunum ofraun.
Stríð er framhald stjórnmála, er sígild speki ættuð frá Þjóðverjanum Carl von Clausewitz sem lærði sín fræði í Napóleonsstríðum fyrir 200 árum. Markmið hernaðar, sagði sá þýski, er að beygja andstæðinginn undir vilja sinn. Stjórnmál eru æfing í málamiðlun en hernaður prófsteinn á viljastyrk og getu til að heyja stríð.
Hatur kemur til sögunnar eftir að stríðsátök brjótast út. Lygin líka. Frumhvatirnar leika lausum hala þegar um líf og dauða er að tefla. Í stríði fer siðmenningin ofan í skúffu. Þess vegna viljum helst ekki hernað.
![]() |
Er að verða til nýtt tákn haturs með zetunni? |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 07:58 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)