ESB-menning og þjóðmenning

Evrópusambandið reynir að búa til ESB-menningu sem réttlætir tilvist sambandsins. Sérstök vefútgáfa heldur utan um menningarstarf Evrópusambandsins. Sumt sem ESB reynir að gera vekur aðhlátur, eins og teiknimyndasögur um Kaptein Euro,  og annað  hneykslan - til dæmis barnabókmenntir um herra og frú Evrópuþingmann.

Engu að síður: Evrópusambandið fjárfestir milljarða í að búa til menningu sem er sambandinu þóknanleg. Á Íslandi fengum við smjörþefinn af menningarstarfinu með Evrópustofu, sem fékk yfir 200 milljónir að kynna ESB.

Páll Skúlason, heimspekingur og fyrrum háskólarektor, skrifar glöggt um menningu. Í ritinu ,,Menning og sjálfstæði" sem kom út 1994 segir Páll

Þjóðin á rétt á sjálfstæði af því hún á sér sérstaka menningu og sjálfstæði þjóðarinnar er skilyrði þess að menning hennar fái að dafna. Menningin er réttlæting sjálfstæðisins - sjálfstæðið er forsenda menningarinnar.

Menning og sjálfstæði helst í hendur. Jafnvel ESB viðurkennir það. Valkostirnir eru eftirfarandi: sjálfstæði þjóða eða sjálfstætt Evrópusamband.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Friðrik Friðriksson

Þetta er nú meiri þvælan þessi færsla.

Friðrik Friðriksson, 12.7.2013 kl. 14:28

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband